Tíminn - 15.10.1978, Síða 31
Sunnudagur 15. október 1978.
31
Uppi á Hellisheiði, rétt hjá Þrengslavegarafleggjaranum fylgdist þessi svipmikli sau&arhaus með
umferðinni á Suðurlandsvegi, er Timamenn áttu þar leiö um fyrir skemmstu.
Hvaö hausinn hefur veriö þarna lengi, hvernig hann komst þangaö og hvers vegna hann er þarna,
vitum viö ekki. En hann tekur sig óneitanlega vel út á þessari mynd Róberts ljósmyndara.
o Islenskar
handbækur
Ut er komib ritiö tslenskar
handbækur, flokkuö skrá meö
umsögnum, tekiö saman af
Sigriöi Láru Guðmundsdóttur
og Inga Sigurössyni.
Ritið tekur til allra efnissviöa
og er f jallað um samtals 521 rit,
en aftast er registur þar sem
greindir eru bókatitlar, höfund-
ar, þýöendur og aörir sem aöild
aga aö þeim ritum sem fjallaö
er um i bókinni.
Bókin er samin i Háskóla-
bóksasafni, en Rikisprentsmiöj-
an Gutenberg offsetprentaöi.
Útgefandi er Bóksala stúdenta.
Bókin tslenskar handbækur
eru 218 bls. í handhægu broti, og
eru efninu gerð skil i í skýru
samþjöppuöu máli.
o Bústaöasókn:
Umræður eftir
messur
Eins og undanfarna vetur'
veröur efnt til umræöna yfir
kaffibollaeftir messu i BUstaöa-
sókn einn sunnudag i hverjum
mánuöi nú i vetur. Hin fyrsta
slikra samverustunda veröur á
sunnudaginn kemur, þ. 14.
október, en viö messuna predik-
ar dr. Einar Sigurbjörnsson,
prófessor, en hinn predikarinn,
sem skiptist á viö séra Einar um
þessar mánaöarlegu messur,
veröur séra Bjarni Sigurösson,
lektor viö Háskóla tslands. Hef-
ur þessi tilbreyting gefist mjög
vel og vakiö athygli.
Félagsstarf fyrir aldraöa er
nú hafiö á ný eftir sumarleyfi og
er þaö vikulega, á miövikudög-
um milli 2 og 5. Eru ævinlega
margir ellilífeyrisþegar saman-
komnir og létt yfir hópnum. Eru
allir velkomnir.
o Nato styrkir
fræðirannsóknir
Atlantshafsbandalagið
(NATO) mun að venju veita
nokkra styrki til fræöi-
rannsókna i aöildarrikjum
bandalagsins á háskólaárinu
1979-1980. Markmiö styrkveit-
inganna er aö stuöla aö
rannsóknum og aukinni þekk-
ingu á tilgreindum viöfangsefn-
um, er snerta sameiginlega
hagsmuni aðildarrikja Atlants-
hafsbandalagsins. Er stefnt aö
þvi, aö niöurstööur rannsókn-
anna veröi gefnar út. Viöfangs-
efni aö þessu sinni eru:
— Viöhorf til Atlantshafs-
bandalagsins i fjölmiölum ein-
stakra rikja.
— Vandamál, er varöa efna-
hagssamvinnu bandalagsrikj-
anna og hemaðaraðstoð.
— Samræming tveggja
meginhlutverka bandalagsins:
Viöhalds hernaöaröryggis og
viöleitni til slökunar á spennu,
vopnaeftirliti og afvopnunar.
— Hlutverk Atlantshafs-
bandalagsins eftir 30 ára friö I
Evrópu.
— Aframhald bættrar sam-
búöar austurs og vesturs.
— Hlutverk Atlantshafs-
bandalagsins viö aö draga úr
spennu.
— Stjórnmálasamráö innan
Atlantshafsbandalagsins.
— Efnahagsvandamál vest-
rænna rikja og fjármögnun
sameiginlegra varna.
— Afstaða þjóöþinga I
Atlantshafsbandalagsrikjúnum
til málefna er snerta bandalag-
ið.
— Sameiginlegur menningar-
arfur Atlantshafsbandalags-
rikja.
— Lögfræöileg vandamál er
snerta samvinnu Atlantshafs-
bandalagsrikja á einstökum
sviöum.
Upphæö hvers styrks er 23.000
belgiskir frankar (um 232 þús.
isl. kr.) á mánuöi — um 2-4
mánaöa skeiö aö jafnaöi — eöa
jafnviröi þeirrar fjárhæöar I
gjaldmiöli annars aðildarrikis,
auk ferðakostnaöar, en gert er
ráðfyrir aö rannsóknir getí far-
ið fram I fleiri en einu riki.
Styrkirnir veröa aöallega
veittír háskólamenntuöu fólki,
þótt hægt sé aö gera undantekn-
ingar frá þvi.
Utanrikisráðuneytiö veitir
allar nánari upplýsingar og læt-
ur i té umsóknareyðublöö.
Umsóknir skulu berast
ráðuneytinu eigi siðar en 29.
desember 1978.
o 15 og 20 þúsund
þátttakendur
Undanfarið hefur veriö i
undirbúningi framkvæmd sam-
ræmdra skólaskákmóta í öllum
grunnskólum landsins,en á siö-
asta aöalfúndi Skáksambands-
ins var samþykkt tillaga um
þetta efni frá Skáksambandi
Suöurlands. I greinargerö meö
tillögunni, sem byggö er á
reynslu SS á sl. vetri, segir
m.a.: „t fáum greinum leikja,
iþrótta og lista upphefst kyn-
slóðabiliö greinilegar en i skák-
inni. bessi eöliskostur skákar-
innar gerir hana aögengilegri
tómstundaiöju i fámenni en flest
annaö. Grundvöllur þess aö
skákáhugamannafélög geti
starfaö i dreifbýli, er aö skákin
veröi öflugur fáagslegur þáttur
i starfi grunnskólanna.”
Nefnd sú, sém sett var á lagg-
irnar til aö semja reglugerö
fyrir keppnina undir for-
mennsku Dr. Ingimars Jónsson-
ar hefur nú skilaö álití, sem
hlotiö hefur staöfestingu stjórn-
ar Skáksambands Islands og
veriö kynnt menntamála-
ráöuneytinu. t stórum dráttum
er þar gert ráö fyrir aö sérstakt
skólaskákmót veröi haldiö i öll-
um grunnskólum landsins eöa i
210 skólum. 1 keppninni skal
nemendum skipt I 2 flokka. t
yngra flokki, 7-12 ára, keppa
nemendur I 1-6. bekk, en I eldra
flokki 13-16ára, nemendur i 7.-9.
bekk. Alls geta skólamótin oröið
183 i barnaflokki og 132 I
unglingaflokki. Keppnin skiptist
i: a) skólamót.þarsemkeppt er
um titílinn skólaskákmeistari
viökomandi skóla. b) sýslumót/
kaupstaöamót, sem i keppa
skákmeistarar skólanna innan
hverrarsýslu og i hvorum floldci
um titilinn sýslu- eða
kaupstaðarmeistari i skólaskák,
c) kjördæmamót.sem I keppa 2
efstu menn hverrar sýslu eöa
kaupstaöar i viökomandi
kjördæmi, um titilinn
kjördæmismeistari i skólaskák.
d) Landsmót, þar sem skóla-
skákmeistarar kjördæmanna
keppa og 2 frá Reykjavik, um
titilinn Skólaskákmeistari
Islands I hvorum flokki fyrir
sig. Alls geta skákmótin oröið
349 talsins, 315 skólamót, 25
sýslu-eöa kaupstaöamót, 8.
kjördæmamót og 1 landsmót.
Þátttakendur gætu hæglega
orðiö á bilinu 15-20 þúsund. Er
þvi hér um aö ræöa stærstu
skákkeppni, sem skipulögö hef-
ur veriö hér á landi og þó viöar
væri leitað. ,
Sími 10-0-13
Til kaups
Höfum verið beðin að útvega einbýlishús i
Hafnarfirði.þó ekki skilyrði, mætti gjarn-
an vera á öðrum stað á Reykjavikursvæð-
inu.
Höfum kaupanda að raðhúsi.
Þarf ekki að vera full klárað.
Einnig höfum við verið beðin um að út-
vega verkstæðispláss 100 til 150 ferm.
Til sölu:
I Hliðarhverfi vönduð 4ra herb. ibúð Útb.
II millj. Verð 13-14 millj.
3ja herb. ibúð á góðum stað.Útb. 9-10 millj.
Verð 13-14 millj.
Laugarneshverfi 4ra herb. ibúð. Útb. 10
millj. Verð 16 millj.
íbúðamiðlunin
Laugavegi 28 Simi 10-0-13
Heimasimi sölum. 38430
Trésmiðir -
Byggingaverktakar
Til sölu eru dönsk steypuflekamót hentug
til hverskonar húsbygginga og mann-
virkjagerðar. Hagstætt verð.
Upplýsingar i sima 99-1826 og 99-1349.
Orðsending til bænda
Ath. að veturinn er rétti timinn til að láta
yfirfara búvélarnar.
Siminn okkar er 99-4166.
Bila & búvélaverkstæði
A. Michelsen
Hveragerði
nýtt denb
Veggeiningarnar henta hvar sem
er, í heimilið, á skrifstofuna og
allsstaðar þar sem vegghúsgagna
er þörf.
Sérstaklega hagkvæmar, þar sem
hægt er að kaupa eina eða fleiri
einingar og bæta svo við eftir
efnum og þörfum.
SOGAVEGI 188
SÍMI 37-2-10