Tíminn - 15.10.1978, Side 37
Sunnudagur 15. október 1978.
37
„Léttan óð
skal laga
bókmenntir
Jónas Friörik Guönason:
FLÓÐHESTAR i GLUGGA.
KVEÐSKAPUR.
(Jtgefiö af höfundi.
71 bls. Prentiön, 1978.
Við Islendingar erum miklir
alvörumenn. Þaö hefur oft veriö
sagt, og vafalitiö meö réttu, að
alvarleg oröræða eigi greiöari
leiðaö okkur en gamansöm, og
vi'st er, aö þeir Islendingar eru
ófáir, sem finnst sér hálfgerð
óviröingger,ef talaö er viö þá i
gamansömum tón. Þegar þess
er gætt, hversuokkurer yfirleitt
þungt um sporiö i þessum
efnum, er sist að undra, þótt
gamansemi okkar vilji oft verða
dálitiö klunnaleg og gjarna aö
talsverðum hluta blandin alvöru
eða jafnvel ádeilu.
Það er þvi einsog að koma lít 1
hlákuvind á vetrardegi að fá i
hendur bók, sem kemur manni
til að hlægja — skella upp Ur
aftur og aftur, jafnvel þótt
enginn maður sé nærstaddur til
þess aö taka þátt i gleðinni. En
það er einmitt þetta, sem bók
Jónasar Friðriks Guðnasonar,
99
Flóöhestar i glugga, gerir
lesendum sinum.
Það fer ekki neitt á milli
mála, að Jónas Friðrik er
maður, sem kann til verka i túni
Braga. Um hann veit ég raunar
fátt utan það að hann mun hafa
ort flesta textana, sem Rió-tri-
óið flutti hér á árunum, og þar
með hefur hann veriö einn af
traustu hornsteinunum á þeim
bæ, þvi að, — eins og einn Rió-
manna komst að orði við undir-
ritaðan, — þá voru það ekki sist
snjallir textar, sem öfluðu Rió-
trióinu vinsælda.
Hér er sem sagt á ferðinni
bók, sem er fær um að skemmta
þeim er hana lesa. Skopskyn
höfundarins er ótvirætt en hins
er ekki að dyljast, að stundum
ofleikur skáldið, þannig að
gamanið verði óþarflega grátt,
spaugið of gróft. — Ég á ekki viö
það, að Jónas Friðrik noti gróf
orð, þótt það hendi hann
reyndar stundum lika, — heldur
hitt, að skopið getur misst
marks, ef of hátt er reitt til
höggs. Kvæðið Þrumarasálmur
er t.d. ósamboðið manni með
hæfileika Jónasar. Þeir hlutir
eru til, sem eiga að vera okkur
heilagir, — já,ég dirfist aö nota
það orð, — og ekkert skáld, sem
kann hið undurfagra ljóð Nú
andar suöriö sæla...eftir Jónas
Hallgrimsson, má yrkja kvæði
eins og Þrumarasálmur eftir
Jónas Friðrik Guönason.
Að þessum orðum skrifuðum
er skylt að minnast hins, að oft
tekst Jónasi að ná hinum létta,
gamansama tóni, sem mörgum
skáldum veitist svo erfitt að
laða fram. Ég get ekki stillt mig
um aöbirta hér eittsýnishornaf
þvi tagi. Það ljóð heitir
„Harðindi fyrir norðan (Laxár-
deilan)”
Bóndinn röltir um bæjarstétt,
ber hann sig gáfulega.
Hordauðar ær og heyin létt
honum valda ei trega.
Virðist meira á huga hans
herja og kosti þrengja,
— hvort verði á morgun
veöur til að sprengja.
Þetta er öldungis ljómandi, og
þaðer einmitt þessi aðferð sem
flestir miklir húmoristar læra,
fyrr eða siðar.
Hér hefur verið dvalist við
gamansömu hliðina á þessari
bók, og vist eru slik kvæði þar
mjög áberandi. A hinn bóginn
kann Jónas Friðrik vel að slá á
alvarlega strengi, það sanna
kvæði eins og 21. ágúst 1968 og
Biö.Þetta siöast talda ljóð sýnir
kannski best, aö hér fer höf-
undur, sem óhætt er að binda
vonir við — og jafnframt að
gera til hans kröfur. Bláeygir
dagar i brekkunnar fangi.
Hún biður síns vinar I lundinum
græna.
Glófextur hestur handan við
ána.
hleypur i draumi. Sumarið
liður.
Loft fer aö korgast og laufið að
grána
og lyng verður rautt...
Svona yrkir enginn, nema sá,
sem er skáld.
Aður var þvi haldið fram, aö
Jónas Friðrik Guðnason kynni
til verka i' túni Braga. Ég sný
ekki aftur með þá fullyrðingu.
Hins vegar sýnist mér ýmislegt
benda til þess, aö skáldfákur
hans sé ekki fulltaminn enn,
enda er Jónas ungur maður.
Gamalt máltæki segir, að oft
verfa góður hestur úr göldum
fola, og áreiðanlega er lengi
hægt að þjálfa og þroska góða
hæfileika, — ef menn hafa á
annaðborö verið svoheppnir að
fá þá i vöggugjöf.
Um hæfileika Jónasar
Friöriks Guðnasonar þarf ekki
að efast. Þess vegna skal sú ósk
borin fram hér aö lokum, að
hannhaldi áfram að yrkja, —aö
þessi fyrsta bók hans sé aöeins
upphafiö. Það er gott að temja
hesta fyrir norðan, þvi að nóg er
olnbogarýmiö þar, viöast hvar.
Og veðráttan þar er holl fyrir
sálina. Ef Jónas heldur áfram
að temja hinn norðlenska skáld-
fák sinn, þá má mikiö vera, ef
sá á ekki eftir að gripa margan
góðan sprett á komandi árum.
—VS
Óskapleg
©
þeirra sem stunda vill verslun
benda til.að þeir hafi sæmilega
afkomu. Þeir væru varla að þessu
annars. Eitthvað dregur.
Frjálslynt félags-
hyggjuþjóðfélag er það
besta
— Mig langar til aö vikja aö
Framsóknarflokknum og Fram-
sóknarstefnunni. Hvert telur þú
meginhlutverk flokksins?
— Ég vildi gjarnan koma þvi að,
að ég hef alltaf meiri og meiri trú
á stefnu Framsóknarflokksins.
Ég held nefnilega að öfgarnar og
öfgasjónarmiðin i þjóðfélaginu
spilli fýrir. öfgasjónarmið hafa
alltaf spillt fyrir alls staöar. Ég
álit t.d. aö öfgarnar hafi hrint af
stað styrjöldunum. Eftir þvi sem
ég fæ meiri reynslu af st jórnmál-
um, þá er ég sifellt aö eflast i
þeirri trú. að hin frjálslynda
félagshyggjustefna Framsóknar-
flokksins hafiyfirburði yfir stefn-
ur annarra flokka.
— Ég hef stundum sagt viö
kunningja mina sitthvoru megin
til aö ganga fram af þeim, aö ts-
lendingar væru i eöli sinu allir
Framsóknarmenn, þótt þeim hafi
ekki skilist þaö ennþá.
— Þaö má kanski segja það.
Mér hefur satt að segja fundist að
stjórnmálinhafistefnt inn á miðj-
una. Ég held aö það væri slæmt
fyrir þjóöféiagiö ef einkarekstur-
inn væri alls ráöandi. Ég held að
félagsrekstur og félagshyggja
þurfi einnig aökoma til. Lika held
ég að það væri mjög slæmt ef
sósialisk uppbygging fengi yfir-
höndina og hér yrði þjóðnýting
alls ráðandi og þvi ofskipulag á
öllum hlutum,þannig aö það væri
engin tök á þvi fyrir einn eða
neinn aö hreyfa sig. Ég held
nefnilega aö þjóðnýtingar þjóð-
félagiö sem felst I þvi aö safna i
rikiseign atvinnutækjum og yfir-
ráðum yfir þeim,þjappi saman
svo miklu þjóðfélagsvaldi á einn
staötil viöbótar við það sem er,aö
sásem ræður þvi hafi ráð hinna i
hendi sér. Þeir geta ekki einu
sinni sagt meiningu sina eins og
dæmin sanna. Það er alltaf vara-
' samt að ganga of langt og ég álft
það afskaplega mikilvægt, að
það sé svigrúm fyrir einstakling-
ana og félögin I þjóðfélaginu.
; Annað yrði svo leiðinlegt þjóð-
félag og einstaklingarnir fá alls
ekki að njóta sin I þvi þjóðfélagi
þarsem þeirhafa ekki visst svig-
rúm. En hin sanna félagshyggja
1 byggist auðvitaö á þvi að frjálsir
einstaklingar stofni og reki félög,
en rikisrekstur byggir á þvi að
valdið komi allt að ofan og aðrir
! verðiaðhlýða þvi. Ótakmarkaður
l einstaklingsrekstur skapar á hinn
: bóginn mikið efnahagslegt mis-
i rétti i þjóðfélaginu. (Jtkoman er
þvi sú að blandaö hagkerfi,frjáls-
i lynt félagshyggjuþjóðfélag sé
besta þjóðfélagið.
Ég held að það sé best að gera
sér grein fyrir þvi að gallalaust
þjóðfélag verður ekki fundið upp
eöa skapað. En ég álit aö frjáls-
lynt félagshyggjuþjóðfélag sé það
best og styrkist i þeirri trú eftir
þvi sem ég verð eldri.
Framkvæmd
o
þeim kröftum mætti beita i
vaxandi mæli i þágu
rannsóknarstarfs. Enn minnti
hann á að fyrirhugaö væri að
gera úttekt á þörfum rannsókna
i þágu orkuarfseminnar, en til
rannsókna i þágu orkumála
hefði miklu fé verið varið á
undanförnum árum og ástæða
til að kanna hvernig þeir
fjármunir mættu nýtast sem
best, auk þess sem gefa þyrfti
gaum að nýjum verkefnum á
orkusviðinu.
Nýlega fékk Rannsóknaráð
rikisins beiðni um að taka að sér
að vinna að samhæfingu á tölvu-
búnaði og rafeindatækni fyrir
frystihús og ætlunin að hafist
veröi handa við það verkefni
alveg á næstunni, en ýmis fyrir-
tæki i fiskiðnaði hafa nú byrjað
aðstarfa að þessu.Stórfyrirtæki
fiskmarkaðarins, svo sem SIS
og SH munu styrkja þetta
verkefni svo og Framkvæmda-
stofnun að nokkru leyti. Reynt
verður að hagnýta þann stóra
markað, sem hér er i frysti-
húsum landsins, til þess að
skapa grundvöll fyrir rafeinda-
iðnað af þessu tagi.
1 I tengslum við þetta verkefni
mun ráðið kanna forsendur
fyrir uppbyggingu rafeinda-
iðnaðar hérlendis og hvaða að-
ferðum mætti beita til þess að
íslendingar gætu komist inn á
þetta svið. Nefndi Vilhjálmur i
þvi sambandi svonefndar
örtölvur, sem i vaxandi mæli
eru teknar i notkun i ýmsum
framleiðslugreinum.
Nú er hjá Rannsóknaráði
unnið að uppsetningu upp-
lýsingadeildar, og sagði
Vilhjálmur að þar með væri
gamall draumur að rætast. Hér
væri um að ræða þjónustu, sem
fæli i sér öflun upplýsinga fyrir
margvislega aðila, svo sem
atvinnufyrirtæki, Háskóla
íslands, bókasöfn og fleiri. Væri
tilgangurinn að komast um eina
miðstöð i samband viö td.
bókasöfn og upplýsingasfn
viöa um heim. þannig aö unnt
yrði að fá upplýsingar um eitt-
hvert áhrifasvið, t.d. á sviði
efnafræði eöa náttúrufræði með
skjótum hætti.
Upplýsingadeildin hefur
fengið húsnæði hjá verkfræði-
deildarhluta Háskólabóka safns
og stenda vonir til aö i framtið-
inni verði hér um aö ræða
nokkurs konar töluvendastöð
fyrir upplýsingar i tengslum við
erlendar upplýsinga-
miöstöövar.
Að endingu minnti Vilhjálmur
á að ótal verkefni væru uppi
sem of langt mál væri að rekja
nánar i stuttu spjalli auk þeirra
verkefna, sem væru i mótun og
vonandi gæfist sem fyrst færi á
að sinna.
Fjárborg O
ekkert. Þaðverður að taka tillit
til þess að dýr af þessu svæði,
þ.e, Reykjavik og Mosfellssveit
eru nú búin að vera saman
sumarlangt i haga, og hafa
veriö það undanfarin ár. Mér
fyndist aða.m.k. mætti biða með
þetta nú yfir veturinn, þar sem
það liggur fyrir að kindurnar
komast ekkert út, en þaö gera
girðingarnar,” sagði Stefán.
Búist er við þvi, að
sauðfjárveikivamir taki endan-
lega ákvörðun á mánudag,
hvort látið verður til skarar
skriða gegn Fjárborgarfénu.
Verður nánar sagt frá þeirri
framvindu i þriðjudagsblaðinu.
O Baldur Jónsson
að þráðurinn haldist óslitinn frá
kynslóð til kynslóðar, þessi lif-
taug islenzks þjóöernis.
Islenzka1' er mikilvægasta
kennslugreinin i öllum skólum
landsins. Henni verður að veita
allt þaö svigrúm, sem hún þarf,
þó aö það veröi þá á kostnað
annarra greina, t.d. erlendra
tungumála.
Hlutverk móöurmálskennar-
anna er mikið og vandasamt.
Það verður aö leggja það á þá
öðrum mönnum fremur aö
koma i vegfyrir, að máliö gliðni
i einhverjum þeim skilningi,
sem hér hefir verið rætt um.
Reyndar eru allir kennarar
móðurmálskennarar, hver á
sinu sviði, en þeir, sem kenna
islenzku sérstaklega, verða aö
geta tekið aö sér forystuhlut-
verkið í skólanum.
Minnumst þess að lokum,
þegar róðurinn virðist þungur,
aö börn og unglingar eru ekki
fullvaxta fólk og eiga eftir að
taka út mikinn málfarslegan
þroska. Undarlegir málkækir
þeirra eru ekkert til aö hlaupa
eftir. Einmitt vegna ófullkom-
ins þroska þarf að leiðbeina
nemendum i skólunum. Upp-
eldið er fólgið i þvi aö láta þá
læra, hvernig málið hefir verið
og á aö vera, eins og kennarinn
kann það bezt.
Þess vegna rfður á, að hann sé
sjálfur vel að sér og vel máli
farinn. En höfum það hugfast,
að við erum ekki fullnuma i
málinu og verðum þaö aldrei.
Enginn kann máliö til hlitar. En
það er skylda vor móöurmáls-
kennara að vera öðrum til fyrir-
myndar um meðferð máls.
Kennarar verða þvi aö taka
sjálfa sig til bæna fyrst, aga
sjálfa sig, aga eigið tungutak og
kunna að taka ábendingum
annarra, eki sizt hver frá öðr-
um. Þá er von til þess, að takast
megi aðskila tungu feöranna til
næstu kynslóöar meö vöxtum,
einsog skyldan býöur.
Til leigu
Höfum verið beðin að útvega 4ra-5 herb.
ibúð i Seljahverfi. Raðhús kæmi til greina.
íbúðamiðlunin
Laugavegi 28 simi 10-0-13
Heimasimi 38430
Vantar mann
Duglegur fjósamaður óskast eða óvanur
maður með áhuga fyrir búskap.
Upplýsingar gefnar i Ármóti simi um
Hvolsvöll.
Ritstjórn, skrifstofa oy afgreiðsla