Fréttablaðið - 02.09.2006, Qupperneq 8
8 2. september 2006 LAUGARDAGUR
NÁM Gengið hefur verið frá kaup-
um Fjöltækniskóla Íslands á Flug-
skóla Íslands. Fjöltækniskólinn
kaupir allt hlutafé í Flugskólanum
og mun þá annast rekstur Flug-
skólans.
Fjöltækni-
skóli Íslands er
einkahlutafélag
og var stofnað-
ur í ágúst 2003
með samningi
við mennta-
málaráðuneyt-
ið. Verkefni
skólans var að
yfirtaka rekst-
ur Stýrimanna-
skólans og Vél-
skóla Íslands og fyrir um ári síðan
voru skólarnir endanlega samein-
aðir undir nafni Fjöltækniskól-
ans.
Flugskóli Íslands er hlutafélag
og hefur verið rekinn síðan 1998,
en á síðasta ári var honum alfarið
komið í hendur einkaaðila. Flug-
nám hefur fallið undir samgöngu-
ráðuneytið, á meðan næstum allt
annað nám hefur fallið undir
menntamálaráðuneytið. Flugskól-
inn hefur því alltaf fengið ákveðna
fjárupphæð árlega frá samgöngu-
ráðuneytinu.
„Kaupin eru meðal annars fjár-
mögnuð með hjálp Landsbank-
ans,“ segir Jón B. Stefánsson,
skólameistari Fjöltækniskólans.
„Þetta er líklega í fyrsta sinn sem
skóli á Íslandi kaupir annan á
þennan hátt. Við munum reka
Flugskólann áfram sem sjálfstætt
fyrirtæki og alveg óbreyttan, að
undanskildu því að við munum
flytja bóklega hluta námsins í Sjó-
mannaskólahúsið á Háteigsvegi.
Það verður breyting strax hvað
það varðar.“
Jón segir ástæðu kaupanna
vera þá samleið sem skólarnir
tveir eiga í menntamálum. „Ef
horft er á skipstjórnarnám og
flugstjórnarnám þá er það að
mörgu leyti líkt, til dæmis hvað
varðar siglingafræði, veðurfræði
og GPS-tækni. Skipstjórnarnámið
er bundið alþjóðlegum reglugerð-
um og við útskrifum fólk með
alþjóðaréttindi. Flugskólinn er að
gera það sama. Prófin koma að
utan og námsefnið er erlent svo að
staðlar fyrir atvinnuflugmenn eru
þeir sömu alls staðar,“ segir Jón.
„Þetta nám er svo alþjóðlegt að
við sjáum tækifæri í því að fá
nemendur frá öðrum löndum. Við
höfum líka áhuga á því að bjóða
upp á nám í flugvélvirkjun, en það
hefur ekki verið boðið upp á það
hingað til á Íslandi. Það eru mörg
tækifæri og mikil sátt um þessa
sameiningu meðal stjórnenda
skólanna.“ steindor@frettabladid.is
Flugskólinn keyptur
Fjöltækniskóli Íslands kaupir allt hlutafé í Flugskóla Íslands og tekur við rekstri
hans. Margt sameiginlegt hjá skólunum og mörg tækifæri, en lítil breyting á
starfseminni fyrst um sinn, segir skólameistari Fjöltækniskólans.
JÓN B. STEFÁNSSON
FJÖLTÆKNISKÓLI ÍSLANDS Fjöltækniskólinn varð til við sameiningu Stýrimannaskól-
ans og Vélskólans. Sameiningin varð árið 2003.
FISKELDI Mikið tjón varð í laxeldisstöð Sæsilfurs í
Mjóafirði aðfaranótt fimmtudags, þegar marglyttur
komust í allar kvíar stöðvarinnar. Fiskurinn í kvíun-
um, sem eru fjórtán talsins, er um átta hundruð millj-
ón króna virði en ekki er vitað hve mikið af laxinum
skaðaðist. „Það er mjög erfitt að meta tjónið, en það
er mikið,“ segir Jón Kjartan Jónsson, framkvæmda-
stjóri fiskeldis Samherja og Sæsilfurs.
„Við erum að reyna að slátra þeim hluta sem skað-
aðist, á meðan hann er ennþá í lagi,“ segir Jón Kjart-
an, en frá því á fimmtudag hafa tugir manna unnið að
slátrun fisksins í Neskaupsstað dag og nótt. Búist er
við að slátrunin taki nokkra daga. Marglyttur ollu
fyrir nokkrum árum vandræðum í stöðinni en eftir
það var varnarbúnaði komið fyrir sem blæs lofti í
sjóinn og bægir marglyttunum frá. Nú virðist sem
sterkir hafstraumar hafi borið varnarbúnaðinn ofur-
liði þannig að marglytturnar komust í kvíarnar. - rsg
Áfall fyrir eigendur laxeldisstöðvarinnar Sæsilfurs í Mjóafirði:
Mikið tjón vegna marglytta
LAXELDI Í MJÓAFIRÐI Laxarnir fengu skeinusár af völdum
marglyttanna.
RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUM
NÚ ER TÆKIFÆRI TIL AÐ KAUPA ÞAÐ SEM ÞIG HEFUR ALLTAF LANGAÐ Í
Lumex
Skipholti 37
Sími 568 8388
www.lumex.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
�����������
�������������
�
����������������������������������������������
��������������������������������� �����
�
������������� �����
������������ �����
�
������� �����
Nýtt aðsetur
Skrifstofa Samvinnulífeyrissjóðsins
hefur verið flutt úr Húsi verslunarinnar
að Stórhöfða 31 í Reykjavík.
Hún er opin virka daga kl. 8:00-16:00.
Samvinnulífeyrissjóðurinn
Stórhöfða 31, 110 Reykjavík
Sími 520 5500 - Fax 581 3642