Fréttablaðið - 02.09.2006, Side 12
2. september 2006 LAUGARDAGUR12
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.064 +0,78% Fjöldi viðskipta: 386
Velta: 2.501 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 65,70 -0,46% ... Alfesca
4,56 -2,36% ... Atlantic Petroleum 578,00 -1,87% ... Atorka 6,25
+0,00% ... Avion 33,50 +0,90% ... Bakkavör 54,30 +0,19% ...
Dagsbrún 5,14 -0,19% ... FL Group 18,80 +1,62% ... Glitnir 19,90
+0,51% ... KB banki 828,00 +0,61% ... Landsbankinn 25,30
+2,02% ... Marel 77,00 +0,00% ... Mosaic Fashions 17,70 +0,57%
... Straumur-Burðarás 16,80 +2,44% ... Össur 125,00 -0,40%
MESTA HÆKKUN
Straumur-Burðarás +2,44%
Landsbankinn +2,02%
FL Group +1,62%
MESTA LÆKKUN
Flaga -2,39%
Alfesca -2,36%
Atlantic Petroleum -1,87%
Markaðsvirði Exista liggur á bilinu
211 til 233 milljarðar króna, en
endanlegt virði félagsins kemur í
ljós þann 7. september næstkom-
andi, þegar útboð til fagfjárfesta
hefst. Þetta gerir Exista að fjórða
eða fimmta verðmætasta félagi í
Kauphöll Íslands.
Endanlegt útboðsverð mun
ákvarðast af áskriftarverðlagningu
(book-building) í fyrsta af þremur
áföngum útboðsins en seljandi bréf-
anna er KB banki, næststærsti hlut-
hafinn í Exista.
Jafnframt ætlar bankinn að selja
bréf til starfsmanna og almennra
fjárfesta og gæti heildarvirði söl-
unnar numið sex milljörðum króna.
KB banki hefur áskilið sér rétt að
tvöfalda það sem í boði er í fyrsta
áfanga sölunnar, þannig að heildar-
virði útboðsins gæti farið upp í 9,2
milljarða króna. Jafnframt ætlar
KB banki að greiða út sjötíu pró-
sent af eignarhlut sínum í Exista til
hluthafa sinna, sem eru nærri 31
þúsund. Er ljóst að Exista verður
eitt fjölmennasta hlutafélag lands-
ins á næstu mánuðum.
Stefnt er að því að skrásetja
hlutabréf Exista í Kauphöllina þann
15. september. Félagið hefur marg-
faldast í stærð á síðustu árum sam-
fara hækkandi hlutabréfaverði,
samruna við önnur félög og fyrir-
tækjakaupum. Í lok árs 2003 voru
heildareignir Exista 23,2 milljarðar
króna og eigið fé tæpir 11,5 millj-
arðar króna. Um mitt þetta ár höfðu
eignir vaxið í 311 milljarða króna,
eða þrettánfaldast, og stóð eigið fé í
143 milljörðum.
Hagnaður Exista nam fimmtíu
milljörðum króna á síðasta ári en
aftur á móti skilaði félagið tapi að
fjárhæð um 3,3 milljarðar króna á
fyrri helmingi þessa árs.
Exista skilgreinir sig sem fjár-
málaþjónustufyrirtæki er byggir
stoðir sínar á fjárfestingum í
rekstrarfélögum og fjármálatengd-
um fyrirtækjum. Félagið var stofn-
að árið 2001 af hópi sparisjóða en
stærsti hluthafinn er Bakkabraedur
Holding, eignarhaldsfélag Ágústs
og Lýðs Guðmundssona. Hlutur
þeirra bræðra er 47 prósent af
heildarhlutafé, sem er yfir yfir-
tökumörkum, en þar sem sá eignar-
hlutur varð til fyrir skráningu eru
þeir ekki skyldir til að leggja fram
yfirtökutilboð.
Stærstu skráðu eignir Exista eru
fjórðungshlutur í KB banka og tæp-
lega 39 prósenta hlutur í Bakkavör,
en samanlagt virði þessara eignar-
hluta er yfir 180 milljarðar króna.
Exista er einnig kjölfestufjárfestir
í Flögu. Þá kemur fram í skráningar-
gögnum að félagið eigi bréf í Royal
Bank of Scotland og fimm prósent
stofnfjár í SPRON. Af óskráðum
eignum ber helst að nefna 43 pró-
senta hlut í Símanum og þá á félag-
ið Vátryggingafélagið og Lýsingu
að fullu.
eggert@frettabladid.is
Verðmæti Exista á bilinu
211 til 233 milljarðar
Hluthafar Exista verða yfir 30 þúsund talsins á næstunni. Eignir Exista þrettán-
földuðust á tveimur og hálfu ári. Bakkabræður undanþegnir yfirtöku.
Evrópski seðlabankinn ákvað að
loknum vaxtaákvörðunarfundi sínum
í vikulokin að halda stýrivöxtum á
evrusvæðinu óbreyttum þrátt fyrir
að verðbólga hafi dregist saman um
0,1 prósentustig. Vextirnir standa nú í
þremur prósentum.
Greiningaraðilar telja líkur á að bank-
inn hækki vextina í október. Almennt
var búist við þessari niðurstöðu enda
jókst hagvöxtur innan aðildarríkja
Evrópusambandsins (ESB) um 0,9
prósent á öðrum ársfjórðungi sem
er 0,1 prósenti meira en fjórðung-
inn á undan pg talsvert meira en í
Bandaríkjunum og Japan. Hagvöxtur
á ársgrundvelli nemur 2,8 prósentum
innan ESB.
Evrópski seðlabankinn hefur hækkað
stýrivexti fjórum sinnum á síðustu átta
mánuðum, en verðbólga á evrusvæð-
inu hefur verið yfir tveggja prósenta
verðbólgumarkmiði Seðlabankans frá
því í febrúar í fyrra.
Atvinnuleysi í ESB nokkuð yfir saman-
burðarlöndunum en það mældist 8
prósent á tímabilinu samanborið við
4,8 prósenta atvinnuleysi í Bandaríkj-
unum en 4,1 prósents atvinnuleysi í
Japan. - jab
Óbreyttir stýrivextir
VERÐMÆTUSTU FÉLÖG KAUP-
HALLAR ÍSLANDS (Í MILLJÖRÐUM KR.)
1. KB banki 550
2. Glitnir 284
3. Landsbankinn 276
4.-5. Actavis 221
4.-5. Exista 211-233
6. Straumur 172
7. FL Group 148
8. Bakkavör Group 116
Vátryggingafélag Íslands hagnað-
ist um 468 milljónir króna á fyrri
árshelmingi og nam eigið fé félags-
ins 15,7 milljörðum króna. Allt árið
í fyrra hagnaðist VÍS um 8,4 millj-
arða króna.
Á sama tíma hagnaðist Líftrygg-
ingafélag Íslands (Lífís) um tæpar
154 milljónir króna.
Exista eignaðist bæði félögin í
maí en þá voru þau undir merkjum
VÍS eignarhaldsfélags sem saman-
stóð einnig af fleiri félögum. Nam
kaupverðið á eignarhaldsfélaginu
53 milljörðum króna og fengu selj-
endur hlutabréf í Exista sem gagn-
gjald. - eþa
ÁSGEIR BALDURS, FRAMKVÆMDASTJÓRI
VÍS Félagið hagnaðist um 468 milljónir
króna á fyrri hluta árs.
VÍS hagnaðist um
468 milljónir króna
Norræna lággjaldaflugfélagið
FlyMe, sem Pálmi Haraldsson í
Fons á stærstan hluta í, hefur
keypt fimmtíu og eins prósents
hlut í breska leiguflugfélaginu
Astreus.
Kaupverð er tæpar átta hundr-
uð milljónir íslenskra króna. Selj-
andi er Aberdeen Asset Manage-
ment sem verður minnihlutaeigandi
í Astreus.
Astreus var stofnað árið 2002 og
er með höfuðstöðvar á Gatwick
flugvelli í Lundúnum. Félagið flyt-
ur um átta hundruð þúsund farþega
á ári hverju og veltir um 11,4 millj-
örðum króna. Astreus rekur tíu
Boeing breiðþotur sem það leigir
út, auk þess að fljúga til áfanga-
staða í Vestur-Afríku og Austur-
Evrópu. Tæplega fjögur hundruð
manns starfa hjá félaginu.
FlyMe á fyrir fimm Boeing
breiðþotur. Finn Thaulow, for-
stjóri FlyMe, segir mikil samlegðar-
áhrif milli FlyMe og Astreus:
„Með kaupunum náum við að nýta
flugflota okkar mun betur en
áður.“ FlyMe tapaði 1,1 milljarði
króna á fyrri árshelmingi. Tap
félagsins tvöfaldaðist milli ára.
- jsk
FlyMe kaupir Astreus í Bretlandi
Flugvélafloti FlyMe þrefaldast með kaupum á breska leigufélaginu Astreus.
FLUGVÉL FLYME Í FLUGTAKI FlyMe greiðir átta hundruð milljónir króna fyrir fimmtíu
og eins prósents hlut í breska leiguflugfélaginu Astreus.
MARKAÐSPUNKTAR
Landsafl hf., fasteignafélag í eigu
Landsbankans og Straums-Burðaráss
fjárfestingarbanka, skilaði 241,4 milljóna
króna hagnaði á fyrri helmingi ársins
samanborið við tæplega 1,4 milljarða
króna hagnað á sama tímabili í fyrra.
Jeratún ehf., einkafyrirtæki í eigu
Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar,
sem sér um byggingu og rekstur skóla-
húsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í
Grundarfirði, tapaði tæpum 14 milljón-
um króna á fyrstu sex mánuðum ársins.
Rétt rúmlega eins milljarðs króna tap
varð á rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar á fyrstu sex mánuðum ársins. Á
sama tíma fyrir ári skilaði reksturinn 380
milljóna króna hagnaði.
FRÁ KAUPUM EXISTA OG FLEIRI FJÁRFESTA Á SÍMANUM Í FYRRA Standandi frá vinstri eru Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista, Geir Haarde
forsætisráðherra, og bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir sem eru stærstu hluthafar Exista, með 47 prósenta hlut. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
NEMI heim
Tryggingamiðstöðin (TM) hefur eignast 90,001
prósent í norska tryggingafélaginu NEMI Forsikring.
Með því að hafa eignast yfir níutíu prósent af
útgefnu hlutafé norska tryggingafélagsins ávann TM
sér rétt til að innkalla þau hlutabréf sem enn vantar
upp á. Sér því fyrir endann á að TM eignist NEMI
að fullu, eftir skammvinnt ferli. TM lýsti fyrirætlun-
um sínum um að gera kauptilboð í fyrirtækið eftir
lokun markaða 31. mars síðastliðinn. NEMI býður
upp á alhliða skaðatryggingar en hefur þó sterka
stöðu á ýmsum sviðum sem vel kunna að
falla að íslensku atvinnulífi, svo sem í skipa-
tryggingum og á afmarkaðri hlutum
tryggingamarkaðar, svo sem í
tryggingum á vatnsaflsvirkjunum.
Þá býður NEMI upp á trygg-
ingar fyrir verslun og þjónustu,
fiskeldistryggingar, farmtryggingar
og flugvélatryggingar.
Markmið og gildi
„Vandamál eru tækifæri sem bíða eftir að vera
sigruð.“ Svo hljóðar opinbert slagorð fjárfestinga-
félagsins Fons, sem blasir við gestum á heimasíðu
félagsins. Slagorðið þykir heldur óþjált og jafnvel
enskuskotið. Sumir hafa meira að segja bent á
hugsanavillu, þar sem allsendis ómögulegt sé að
sigra tækifæri. Aðrir telja slagorðið nýtískulegt og
til marks um alþjóðavæðingu íslensks viðskiptalífs.
Hvernig sem á málið er litið er ljóst að slagorð Fons
er hluti af nýlega útbreiddri tísku meðal íslenskra
fyrirtækja. Nú þykir ekkert fyrirtæki
meðal fyrirtækja nema það hafi bæði
markmið og gildi. Þannig kynnti
stórfyrirtæki hér í bæ ný gildi nú
fyrir helgi; sköpunargleði,
samstarf, arðsemi og
áreiðanleiki. Það er ekki
farið fram á lítið.
Peningaskápurinn...