Fréttablaðið - 02.09.2006, Page 16

Fréttablaðið - 02.09.2006, Page 16
16 2. september 2006 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFANG: ritstjorn@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS Það er ekki þrautalaust að ná árangri. Í hverju sem er, hvort sem það er í hjónabandinu, atvinnunni, fótboltanum, nú eða þá bara í lífinu almennt. Látið mig þekkja það, búinn að ganga í gegnum þetta allt. Og svo á gamals aldri, þegar maður heldur að þetta árangurstengda stríð sé loks á enda, hvað tekur þá við? Jú, golfið, sem er í rauninni miklu áleitnara og alvarlegra viðfangsefni en öll hin til samans. Í hjónabandinu getur maður beðist afsökunar á misgjörðum sínum, í vinnunni kemst maður stundum upp með það að gera ekki neitt. Í boltan- um er klappað á kollinn á manni og sagt: þetta gengur betur næst. Í golfinu er vandinn hins vegar sá að mistökin verða ekki aftur tekin. Skorkortið er bæði húsbóndi og dómari. Þú situr sem sagt uppi með þá staðreynd að ekkert, hvorki fyrirgefning, ást né umburðarlyndi, getur forðað þér frá þeirri staðreynd að það eru höggin sem telja. Jafnvel þótt þú setjir upp þitt blíðasta bros og allan þinn sjarma í gang. Ég er löngu orðinn meðvitað- ur um þetta harðræði. Allt frá því að ég byrjaði að leika golf fyrir fjórum fimm árum hef ég setið uppi með þá miskunnnar- lausu og ég vil segja skelfilegu niðurstöðu, að það er sama hvað ég reyni, hvað ég legg mig fram, þá kemur skorkortið upp um mig. En af því ég er nú keppnis- maður af Guðs náð ákvað ég í sumar, ykkur að segja, að taka þetta föstum tökum, taka heila viku í golfið. Ef ekki tvær. Frá morgni til kvölds, frá degi til dags. Ekki það að ég gæti ekki verið að gera eitthvað annað. Það á eftir að mála gluggana á húsinu, það er kominn tími til að laga til í kjallaranum heima, ég á ennþá ýmislegt óuppgert á skrifstofunni og guð má vita, að það tekur sinn tíma að hafa ofan af fyrir sér, þegar ekkert sérstakt er á döfinni. Það er ekki heiglum hent að vera atvinnu- laus. Vikan var sem sagt á þessa leið: Á mánudeginum vippaði ég í garðinum heima fyrir hádegi, skrapp síðan út á Nesvöll, þar sem ég hitti Walter vin minn, sem er á áttræðisaldri og saman tókum við hring, sem tókst með ágætum nema hvað að hann var samt á betra skori en ég. Á þriðjudeginum hittumst við félagarnir úr íþróttahreyfing- unni, týndum sextán kúlum og bölvuðum vellinum og veðrinu. Einkum þó ég. Daginn eftir var ég aftur mættur á golfvöllinn á Nesinu, slóst í fylgd með Kristjáni Skerjafjarðarskáldi. Kristján er ekki íþróttamanns- lega vaxinn, en milli þess að svara í farsímann og taka niður pantanir um ljóðagerð hafði hann betur í skorinu. Hringdi í Stebba Kon og Bjögga bróður á fimmtudeginum, en hvorugur hafði tíma, þannig að ég fór einn og slóst í för með séra Erni, sem var líka einn og ég sagði vel slegið og hann sagði gott högg og þetta var sem sagt allt á kristi- legum og jákvæðum nótum, þangað til við lögðum saman skorkortið. Hann vann. Um kvöldið fór ég snemma í háttinn, vildi hvíla mig og sofnaði snemma út frá tæknileg- um hugrenningum mínum um upphafshöggin á fjórðu braut. Náði raunar þvílíku höggi, að kúlan hvarf mér sýnum, svo ég hrökk upp með andfælum, ýtti við Ágústu konu minni, sem svaf draumlausum og golflausum svefni, og ég spurði, þegar hún reis upp við dogg: Sástu hvar hún lenti? Sá ég hvað hver lenti? spurði hún fúl á móti. Nú golfkúlan, auðvitað, svaraði ég og hún leit á mig eins og ég væri fífl, eða eitthvað þaðan af verra og það var augljóst um leið og hún svaraði, að þessi kúla var týnd, Titleist 4, hvít á lit. Með betri kúlum sem ég hef átt. Þar fór gott högg fyrir lítið. Á laugardeginum fórum við saman hjónin og spiluðum átján holur. Í indælu veðri og í góðu kompaníi og í rauninni var þetta hin ánægjulegasti eftirmiðdagur, þar til á þriðju braut, í hita leiksins, þegar ég fór að segja henni til, sem ég hefði aldrei átt að gera, því eftir það var lítið talað saman og hjónabandið hékk á bláþræði, þangað til hún setti púttið niður á átjándu af fimm metra færi. Þá brosti hún aftur. Ég þakkaði Guði fyrir en bölvaði honum um leið fyrir þessa óbærilegu déskotans áráttu mína að vera árangurs- tengdur. Í hita leiksins Í golfinu er vandinn hins vegar sá að mistökin verða ekki aftur tekin. Skorkortið er bæði hús- bóndi og dómari. Í DAG | ELLERT B. SCHRAM á golfvellinum Ragnar Árnason prófessor hefur undanfarið kynnt hugmyndir um algera sjálfstjórn útgerðarmanna á nýtingu og umgengni við sjávar- auðlindina. Hann hefur einnig lagt ríka áherslu á að eignaréttindi útgerðarmanna á auðlindinni þurfi að vera sem skýrust og það eigi ein- göngu að vera á valdi þeirra sem nýttu auðlindina að ákveða með hvaða hætti það verði gert og ríkið eigi ekkert að koma nærri því. Hann- es Hólmsteinn Gissurarson tekur undir þessa skoðun í pistli í Fréttablaðinu í gær og skal engan undra þar sem Hannes Hólmsteinn hefur lengi verið baráttumaður fyrir einka- væðingu fiskimiðanna. Útgerðarmenn hafa lengi kvartað yfir því að afar hóflegt og afkomutengt veiðigjald var tekið upp og helst hefur mátt skilja að þetta hóflega gjald geti lagt útgerð í landinu í rúst. Með hækkandi olíu- verði hefur veiðigjaldið verið að lækka og afkomu- tengingin gerir það að verkum að afkoma í grein- inni ræður endanlegu gjaldi. Samtök útgerðarmanna hafa barist fyrir því að gjaldið verði lagt niður og því kemur nú á óvart ef það er skoðun sem útgerðarmenn taka undir að hægt sé að leggja á þá kostn- að sem nemur 3-4 milljörðum á ári, algjörlega óháð afkomu. Kannski felst það í hugmyndum Ragnars að ef skil- yrði í greininni verði óhagstæð þá dragi menn bara úr eftirliti og rann- sóknum, sem eru meginkostnaðarliðir ríkisins í dag varðandi sjávarútveg. Á hverju ættu þá útgerðarmennirnir sjálfir að byggja ákvörðun um hámarksafla? Á slík ákvörðun þá ein- ungis að vera geðþóttaákvörðun LÍÚ? Sameign þjóðarinnar á fiskveiði- auðlindinni er hornsteinn í sjávar- útvegsstefnu Samfylkingarinnar. Undir stjórn núverandi stjórnarflokka hefur verið gerð alvarleg tilraun til þess að færa útgerðar- mönnum einkaeign á fiskimiðunum. Þær tillögur sem Ragnar Árnason hefur kynnt um sjálfstjórn útgerðarmanna á auðlindinni hníga í sömu átt og mikilvægt að slíkt gerist aldrei. Sjálfstæðisflokk- ur og Framsóknarflokkur verða að svara því skýrt hvort þeir aðhyllist einkavæðingu fiskimiðanna eða hvort tryggja skuli þjóðareign í stjórnarskrá. Höfundur er þingmaður Samfylkingar í Suðurkjördæmi. Einkavæðing fiskimiðanna? JÓN GUNNARSSON VIÐBRÖGÐ | Jón Gunnarsson bregst við hugmyndum Ragnars Árnasonar Missti af Birni í Kastljósinu Sigurjóni Þórðarsyni þykir sem Kast- ljósmenn séu gengnir til liðs við stjórn- ina við að storka stjórnarandstöðunni eftir að ritstjóri þáttarins varð við ósk Valgerðar Sverrisdóttur um að sitja ein fyrir svörum um skýrslu Gríms Björnssonar. Svo leiðir hann hugann að því á vefsíðu sinni í gær hvort Björn Bjarna- son hljóti ekki að vera næsti ráðherra til að koma fram í Kastljós- inu þar sem hann sé þekkt- ur fyrir s t j ó r n - s e m i og að svara ekki spurningum. Björn var hinsvegar að svara spurningum í Kastljósþættinum í fyrradag og var því næsti Kastljósgestur á eftir Valgerði. Það hefur farið framhjá Sigurjóni, sem sennilegast horfir ekki á þætti sem storka stjórnarandstöðunni. Einmana þingmaður Svo heldur Sigurjón áfram og segir: „Enginn fjölmiðill hefur haft áhuga á að koma skoðunum mínum á fiskveiðistjórn á framfæri...“ Og svo segir hann að Björn Bjarnason hafi ekki svarað spurningum hans á þingi þegar hann spurði ráðherrann um Baugsmálið. Eru allir hættir að tala við þingmanninn, eða hvað? Enginn slítur þau bönd... Á fréttavefnum BB segir frá því að Pálmi Gestsson, leikarinn góðkunni, hafi fest kaup á æskuheimili sínu í Bolungarvík. Þar er haft eftir Pálma: „Ég hlaut gott uppeldi í Bolungarvík og það skiptir mig miklu máli að geta endurgoldið henni vistina með að hressa upp á uppeldisstöð mína með þessu framtaki.“ Ýmislegt hefur verið reynt til að hressa upp á þorp og bæi á landsbyggðinni en sennilegast gagn- ast ekkert betur í þeim tilgangi en nostalgía hinna brottfluttu. jse@frettabladid. isR agnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, áætlar að útgjöld ríkisins muni minnka um þrjá milljarða króna á hverju ári fái sjávarútvegurinn að ráða sér sjálfur án afskipta hins opinbera. Það þýðir að handhafar aflaheimilda myndu standa straum af öllum kostnaði tengdum greininni eins og eftirliti og rannsóknum. Sjávarútvegurinn yrði þá líkari flestum öðrum atvinnugreinum. Frá sjónarhóli skattgreiðenda væri þetta ekki ósanngjarnt fyrirkomulag. Það er sjávarútvegsfyrirtækjunum í hag að eftir- lit með fiskimiðunum sé skilvirkt og hafrannsóknir árangurs- ríkar. Það myndi miða að því að hámarka arð af fiskveiðiauðlind- inni með sjálfbærri nýtingu. Afkoma sjávarútvegsins er undir því komin að rannsóknir séu fullnægjandi og rányrkja ekki stunduð. Með því að hafa þessa hagsmuni á sömu hendi telur Ragnar Árnason og fleiri fræðimenn að betri árangur náist. Útgjöld ríkisins minnki og tekjur sjávarútvegsins aukist. Á ráðstefnu Rannsóknarstofnunar um samfélags- og efnahags- mál um sjávarútvegsmál í vikunni kom fram að þetta fyrirkomu- lag gæti gengið innan núverandi kvótakerfis. Hins vegar hlýtur tryggari eignarréttur yfir aflaheimildum að vera mikilvæg for- senda fyrir því að þetta gangi upp. Fræðimenn halda því fram að eignarrétturinn sé mikilvægur til að stuðla að hagkvæmri nýt- ingu náttúruauðlinda og koma í veg fyrir sóun. Sé eignarréttur- inn ótryggur verði ekki ráðist í nauðsynlegar fjárfestingar, því menn eiga á hættu á að njóta ekki arð af fjárfestingum sínum, og dregið sé úr hvatanum til að leita nýrra tækifæra. Þótt doktor Guðrún Gauksdóttir hafi haldið því fram í erindi sem hún flutti á aðalfundi LÍÚ í fyrra, að aflaheimildir væru eign í skilningi 72. greinar stjórnarskrárinnar, eru skiptar skoðanir um hvort það standist. Í kosningastefnu Samfylkingarinnar, sem samþykkt var 5. apríl 2003, segir meðal annars: „Samfylking- in vill að kvótinn verði innkallaður í smáum, árlegum áföngum, þannig að sjávarútvegurinn geti lagað sig að breytingum og að sem mest sátt verði um þær. Þetta er svokölluð fyrningarleið.“ Það er ólíkegt að útgerðarmenn ráðist í stórhuga framkvæmd- ir, sem stuðla að betri nýtingu fiskistofnanna, ef hætta er á að aflaheimildir þeirra verði gerðar upptækar. Ótryggur eignar- réttur stuðlar því að óhagkvæmni í greininni, sem bitnar á öllum sem vinna við hana. Í ályktun á landsfundi Samfylkingarinnar í maí 2005 var dregið í land með fyrningarleiðina. Formaður Samfylkingar- innar boðaði sátt um sjávarútveg á aðalfundi Landssambands útgerðarmanna í október sama ár. Mikilvægur liður í sáttinni væri að útgerðarmenn hættu að tala um eignarréttindi á kvótan- um og viðurkenndu að um nýtingarrétt væri að ræða, sem nyti verndar sem óbein eignarréttindi. Þetta var mikilvægt skref í átt að sátt hjá Samfylkingunni og skapar sjávarútvegsfyrirtækjum landsins tryggari rekstrar- grundvöll. Þó að ekki verði gengið jafn langt og hugmyndir Ragn- ars Árnasonar boða er hætta á umbyltingu í greininni hverfandi, óháð niðurstöðu alþingiskosninganna næsta vor. Sjálfstjórn sjávarútvegsins: Eignarrétturinn er mikilvægur BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON SKRIFAR ���������������������������������������������������������������������� ������������ ������������� ������������ ������������������������� ���������������������������������������������������������������� ���� ����� ����� ��

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.