Fréttablaðið - 02.09.2006, Page 19
LAUGARDAGUR 2. september 2006 19
EN
NE
M
M
/
SÍ
A
Leiks‡ningar, lú›rasveit
og tónlistaratri›i
Sjón er sögu ríkari!
Svæ›i›
ver›ur
opi›
frá kl.
11.00
til 17.0
0
Opi› hús í Straumsvík sunnudaginn 3. september
Í tilefni af 40 ára afmæli Alcan í Straumsvík ver›a dyrnar a› álverinu opna›ar almenningi
sunnudaginn 3. september. Bo›i› ver›ur upp á sko›unarfer›ir um álveri› undir lei›sögn
starfsmanna, skemmtun fyrir börn og fullor›na, menningu og fræ›slu af ‡msum toga.
Nota›u tækifæri› og sjá›u hvernig álver lítur út!
Til a› lágmarka umfer› einkabíla ver›ur bo›i› upp á rútufer›ir til Straumsvíkur
frá bílaplani Fjar›arkaupa vi› Bæjarhraun í Hafnarfir›i á hálftíma fresti.
Opi› frá 11.00 – 17.00 dagskrá í bo›i allan daginn:
• Lei›sögn um svæ›i› me› rútum
• Véla og tækjas‡ning
• Myndlistars‡ningin „Hin blí›u hraun í Straumsvík“
• Ökuleikniss‡ning
• Hoppukastalar
• Kassabílarallí og hlaup
• Lú›rasveit Hafnarfjar›ar spilar
Kl. 12.00, 13.00, 14.00, 15.00 og 16.00
• Möguleikhúsi› s‡nir leikverki› „Áslákur í álveri“
Kl. 13.00 og 15.00
• Kynningar á umhverfismálum og mögulegri stækkun
Kl. 12.30 og 14.30
• Gunni og Felix
• Óperukór Hafnarfjar›ar
• Fri›rik Ómar og Gu›rún Gunnars
Kaffihús og veitingar allan daginn
Fræ›sla og
sko›unarfer›ir
um álveri›
Hoppukastalar
fyrir krakkana
Myndlistars‡ningin
Hin blí›u hraun í
Straumsvík
Alcanhlaupi› flar
sem allir fá
ver›laun
Spennandi
og lífleg
dagskrá
Sunnudagskaffi
í Straumsvík
Kassabílarallí
Umræðan | Viglínur í pólitík
Brúarjökull, Búrfellsflói, Desjarár-
dalur, Efra-Jökulsárgil, Ekkjufells-
hólmar, Eyjabakkafoss, Faxi, Fola-
vatn, Gjögurfossar, Gljúfrakvísl,
Grjótá, Hafrahvammagljúfur, Háls,
Héraðsflói, Hjalladalur, Hníflafoss,
Hölkná, Hólmaflúðir, Hrakstrandar-
foss, Hreinatungur, Jökla, Jökul-
dalur, Jökulsá á Brú, Jökulsá á Dal,
Jökulsá í Fljótsdal, Kárahnjúkar,
Kirkjufoss, Klapparlækur, Kleifar-
skógur, Kringilsárrani, Lagarfljót,
Lindur, Rauðaflúð, Sauðá, Sauða-
kofi, Sauðárdalur, Skakkifoss,
Slæðufoss, Snikilsá, Sporður, Trölla-
gilslækur, Tungufoss, Töðuhraukar,
Töfrafoss.
Öllu þessu var ákveðið að fórna í
örlagaríkri atkvæðagreiðslu á
Alþingi Íslendinga 8. apríl árið 2002.
44 þingmenn samþykktu fórnina.
44 þingmenn sem samþykktu að
sökkva dýrmætu landi, meina
afkomendum okkar að njóta og
skoða. Ábyrgð þessara þingmanna
er mikil. Nöfn þeirra á að draga
fram í dagsljósið. Ákvörðunin fól í
sér óafturkræfar breytingar á áður
ósnortinni náttúru. Slík ákvörðun
ætti að vera ígrunduð og byggð á
rannsóknum þar sem allir þættir
eru metnir. Skipulagsstofnun mat
það svo að ekki væri tímabært að
taka ákvörðunina, rannsóknir
skorti. Jarðvísindamenn lögðu fram
varnaðarorð, strax 2001. Öllum átti
að vera ljóst hversu afdrifaríka
ákvörðun var um að ræða.
Við sem höfum varað við virkjun-
inni fyrst og fremst vegna náttúru-
verndarsjónarmiða höfum iðulega
verið sökuð um að beita til-
finningarökum. Við erum
spurð hvort við höfum
komið þangað, verið þar.
Land sem þú hefur ekki
séð, því má eyða! Ég vil
snúa spurningunni við og
spyrja: Valgerður, hefur
þú setið í bláberjabrekku
við Tröllagilslæk? Valgerð-
ur, hefur þú setið við Töfra-
foss og horft á hvernig
ljósbrotið teiknar myndir
og látið hressandi úðann
baða þig? Hefur þú, Val-
gerður, gengið með Rauðu-
flúð og fundið landið nötra undan
krafti Jöklu? Eða hefur þú, Val-
gerður, setið í grónum Hraukunum
á Kringilsárrana, borðað nesti og
horft á hreindýrstarfana í sínu
náttúrulega friðlandi? Halldór og
Davíð eru báðir hlaupnir í skjól frá
ábyrgðinni., Valgerður og Siv sitja
áfram í ráðherraembættum. Ykkar
er ábyrgðin og þingmannanna 40
til viðbótar. Hvernig ætla þessir 44
lýðræðislega kjörnu fulltrúar að
axla sína ábyrgð? Skýrsla Gríms
Björnssonar er bara eitt dæmi um
upplýsingar sem lítið hefur verið
gert með í þessu ferli öllu. Varnaðar-
orð hafa verið sniðgengin, hvort
sem þau hafa varðað öryggi mann-
virkja, arðsemi eða
áhrifin á samfélagið.
Framkvæmdin var
knúin áfram með látum
og þau sem vildu
staldra við lágu undir
ámæli um að vera á
móti framtíðinni.
Vinnubrögð stór-
iðjusinna hafa verið til
skammar. Blekkingum
hefur verið beitt af
ríkisrekinni áróðurs-
vél Landsvirkjunar,
ítrekað kemur í ljós að
vísindamönnum hefur
ýmist verið meinað að tala eða
þeim gert erfitt fyrir á annan hátt,
þeir jafnvel sakaðir um að láta
pólitískar skoðanir sínar þvælast
fyrir vísindaheiðri sínum.
Á þeim tíma sem ákvörðunin
var tekin var upplýsingum stung-
ið undir stól, alþingi meinaður
aðgangur að varnaðarorðum vís-
indamanna. Á þeim tíma vildu
Halldór og Davíð eina ferðina enn
teyma þingið að „já-inu“ án
umræðu. Ekki í fyrsta skipti og
ekki það síðasta. Þá hentaði ekki
að fá öll sjónarmið fram. Þá hent-
aði að binda fyrir augu þingsins.
Ný víglína er að myndast í
pólitík. Víglína milli okkar sem
forgangsröðum í þágu umhverfis
og náttúru, og hinna sem hafa
sagt okkur vera á móti framtíð-
inni. Framtíðin stendur með
náttúrunni og lýðræðinu en for-
tíðin, yfirgangurinn og athafna-
stjórnmálin tilheyra liðinni tíð.
Halldór og Davíð eru farnir. Næst
er það Valgerður og svo ríkis-
stjórnin öll í vor.
Hefur þú komið þangað?
Ný víglína er að myndast í
pólitík. Víglína milli okkar
sem forgangsröðum í þágu
umhverfis og náttúru, og hinna
sem hafa sagt okkur vera á
móti framtíðinni.
SVANDÍS SVAVARS-
DÓTTIR Borgarfulltrúi
Vinstri Grænna
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Umræðan | Baugsrannsókn
Ættjarðarvininum Eggerti
Ólafssyni varð öfundin yrkisefni,
en snéri henni upp á sig sjálfan.
„Öfund knýr og eltir mig - til
ókunnugra þjóða - Fæ ég ekki að
faðma þig - fósturlandið
góða.“ Vonandi er rétt
með farið.
Græðgi og öfund
trjóna efst af erfðagöllum
mannsins og fá allir sinn
skerf.
Jóhannes Jónsson í
Bónus hefur fengið að
kenna á báðum ógnvöld-
unum. Síðastliðin tólf ár
hefur ríkisstjórn Íslend-
inga, lengst af undir
forsæti Davíðs Oddsson-
ar, valdið þjóðinni svo miklum
skaða, að ég trúi nær öllu slæmu
á hana. Þar á meðal, að hefja
ofsóknir þær, sem Jóhannes
fullyrti á NFS að hún hefði staðið
fyrir gegn sér og fjölskyldu
sinni. Furðu margt hnígur að því,
að stjórnvöld hafi látið öfund-
sjúka gróðafíkla leiða sig út í
brjálæðislegar ofsóknir gegn
brautryðjanda lágvöruverslana
og fjölskyldu hans. Kostnaður
þjóðarinnar af offorsinu skiptir
hundruðum milljóna. Auðvitað á
að kanna mál, ef grunur um
misferli kemur upp.
En saksóknari þessa máls
virðist hafa ætt áfram með lokuð
augun, löngu eftir að öðrum
sýndist allt í lagi. Hvort sem
upphaf frumhlaupsins og
áframhaldið var runnið undan
rifjum þáverandi forsætisráð-
herra, eða annara, jaðrar það við
glæp. Það er ámælisvert að
leggja slíkt á þjóðina og enn
verra gagnvart Jóhannesi og
fjölskyldu hans. Tímasetning
aðfarar saksóknaraembættisins
að fyrirtækjum
feðgana Jóhannesar
og Jóns Ásgeirs líkist
hnitmiðaðri eyðilegg-
ingarstarfsemi.
Jóhannes telur að
þeir hafi orðið af
eitthundrað og
þrjátíu til fjörutíu
milljörðum, fyrir
utan margt annað.
Menn hafa sagt við
mig, að þeir séu nógu
ríkir fyrir, en ég álít
þetta ekki snúast um það. Það
snýst um rétt og rangt og að
menn geti rekið fyrirtæki. Fáir
ásaka bankana, sem féfletta
almenning sem aldrei fyrr, á
sama tíma og Jóhannes lætur
gott af sér leiða. Það er ekki
glæpur að standa sig og hagnast,
sé það gert með heiðarlegum
hætti. Aftur á móti mætti hluti af
ofurgróða fara í hjálparstörf, þar
sem sárlega vantar vatn og skóla.
Sú staðreynd, að forsvarsmenn
banka, hafi tuttugu og tvær og
hálfa milljón á mánuði, hlýtur að
vekja viðbjóð hugsandi fólks. Sjö
til átta skuldlausar íbúðir á ári í
vinnulaun og þessir gráðugu
mikilmennskubrjálæðingar tala
um það sem eðlilegan hlut. Í
mínum huga eru þeir arðræn-
ingjar, öndvert við Jóhannes sem
hefur unnið sig upp með atvinnu-
sköpun á eigin forsendum og
látið alþýðu njóta. Mér finnst
eðlilegt að hann sé efnaður og vil
að gefnu tilefni spyrja Jóhannes:
Hefði þjóðin notið góðs af, ef
samningar um verslunarkeðjurn-
ar hefðu náðst?
Jóhannes í Bónus
ALBERT JENSEN
Trésmíðameistari
Í mínum huga, eru þeir arð-
rænigar, öndvert við Jóhannes
sem hefur unnið sig upp með
atvinnusköpun á eigin forsend-
um og látið alþýðu njóta.