Fréttablaðið - 02.09.2006, Side 33
LAUGARDAGUR 2. september 2006
Daníel Sigurðsson hefur tryggt
sér Íslandsmeistaratitilinn í
rallakstri 2006.
Þótt enn sé ein keppni eftir í
Íslandsmeistaramótinu í ralli er
Daníel þegar búinn að tryggja sér
Íslandsmeistaratitilinn. „Þetta er
sigur heildarinnar og ekkert
annað. Við erum með frábært lið
og allir sem hafa staðið að þessu
hafa staðið sig mjög vel. Við erum
ekki ríkasta eða flottasta liðið en
við erum alltaf brosandi. Það er
góður og óþvingaður andi hjá
okkur,“ segir Daníel um árangur-
inn.
Keppnisliðið telur á annan tug
manna, þar á meðal Ástu systur
Daníels, sem er aðstoðarökumað-
ur. „Ég dró hana með mér í þetta. Í
upphafi hafði enginn trú á að þetta
gengi upp og fólk gerði grín að því
að hún er ekki komin á bílprófs-
aldur. Svo þegar hún tæki prófið
þekkti hún ekkert annað en rall-
akstur og ökukennararnir myndu
svitna við tilhugsunina um að
kenna henni, hún myndi bara rétta
þeim leiðarnótur og segja þeim að
halda sér,“ segir Daníel hlæjandi.
Systkinin plumuðu sig þó vel í
sumar eins og titillinn ber vitni
um, þrátt fyrir að þetta sé fyrsta
tímabil Daníels á nýjum bíl. „Ég
fékk hann úr tolli þremur dögum
fyrir fyrstu keppni. Þetta er fyrsti
fjórhjóladrifsbíllinn og nú kepp-
um við á fullorðinsbíl sem gaf
okkur möguleika á að vera í flokki
með stóru körlunum,“ segir Daní-
el.
Bíllinn er 2001 árgerð af Mitsu-
bishi Lancer Evo 6 sem hefur
verið breytt í rallýbíl. „Hann er
með tveggja lítra túrbóvél sem
skilar um 270 hestöflum og var
keppt á áður í pólsku meistara-
keppninni. Þetta hafa verið vin-
sælir bílar og hampað heimsmeist-
aratitli í ralli ansi oft.“
Þó að titillinn sé í höfn er ein
keppni eftir og Daníel segist hafa
stungið upp á því við liðið sitt að
hún yrði tekin rólega. „Ég stakk
upp á að spara bílinn og spara pen-
inga og leyfa einhverjum öðrum
að njóta þess að vera á toppnum í
þessari einu keppni. Ég var bara
púaður niður svo það verður allt
gefið í botn. Við ætlum að dauð-
rota þetta.“
Undirbúningur fyrir þetta
keppnistímabil hófst í janúar og
Daníel segist ætla að vera á fullu í
vetur til að geta varið titilinn. „Ég
ætla jafnvel að keppa tvær keppn-
ir erlendis í vetur til að ná mér í
reynslu og halda mér við. Svo
verðum við í þol- og styrktarþjálf-
un í vetur. Undirstaðan að góðum
árangri er að vera í toppformi
sjálfur.“ einareli@frettabladid.is
Sigur heildarinnar
Daníel og Ásta á fleygiferð á síðasta móti. LJÓSMYND: GUÐMUNDUR KARL SIGURDÓRSSON
Daníel hefur keppt í rallinu með hléum í
nokkur ár og landar nú fyrsta Íslandsmeist-
aratitlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Framtíðin í einkaþotum liggur
í hraðskreiðum hvíslurum.
Ný kynslóð hljóðfrárra einkaþotna
gæti verið kveikjan að byltingu í
háhraðaflugi.
Hjá Lockheed Martin er verið
að hanna litla 12 sæta þotu sem á
að ná 1.930 km hraða, eða 1,8
földum hljóðhraða. Stóru frétt-
irnar eru kannski þær að í stað
hvellsins sem heyrðist alltaf
þegar Concorde rauf hljóðmúr-
inn mun nýja þotan bara gefa frá
sér lágvært hvísl, að minnsta
kosti í samanburði. Hún á að vera
tilbúin í fjöldaframleiðslu innan
sjö ára.
Lykillinn að hvellleysinu er
stélið sem minnir á „V“ á hvolfi.
Hönnuðirnir vonast til að það dugi
til þess að hávaðinn við það að
rjúfa hljóðmúrinn verði innan við
eitt prósent af hvellinum sem Con-
corde gaf frá sér. Sá hvellur var
nógu hár til að þotan var bönnuð í
Bandaríkjunum þegar hún var
kynnt til leiks árið 1970. - elí
Hljóðfrá og hljóðlát
Þó að flugferðin taki stuttan tíma verður að vera hægt að taka því rólega um borð.
Þessi einkaþota er verðugur arftaki Concorde.
www.kistufell.com
Vélaviðgerðir, túrbínuviðgerðir
og spíssaviðgerðir.
Vélaverkstæðið Kistufell býður
upp á stimpla og slífar í flestar
gerðir véla frá hinum þekkta
framleiðanda Mahle.
VIÐGERÐIR FYRIR FLESTAR GERÐIR VÉLA
kistufell.com
Pakkningarsett
Ventlar
Vatnsdælur
Tímareimar
Knastásar
Legur
Stimplar
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG BETRA GRAS...
WWW.GRAS.IS