Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 34
2. september 2006 LAUGARDAGUR4
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Góðir vegir eru leiðinlegir
vegir. Nú er ég ekki að segja að
slysagildrur séu af hinu góða,
en að keyra góðan veg er svona
álíka skemmtilegt til lengdar
og fiskabúr. Tómt fiskabúr.
Ég held samt að ég verði að
útskýra þetta betur. Sko, ég hef
gaman af því að keyra. Það er
eitthvað við samband vélar,
manns og vegar sem ég sæki
mikla gleði í, sérstaklega ef
bíllinn er góður og vegurinn
reynir aðeins á hann og mig.
Þannig er mjög gaman að keyra
malbikaða og slétta vegi ef þeir
eru bugðóttir og maður þarf að
beita bílnum í hverja beygjuna
á fætur annarri. Það er líka
gaman að keyra malarvegi þar
sem bílnum hættir til að skrika
og maður þarf að stýra á móti,
forðast holur, spila á gírkass-
ann og passa sig á rollunum.
Af þessu leiðir að góðir vegir,
sléttir og beinir, eru ekki sem
slíkir mjög spennandi. Öruggir,
skilvirkir og praktískir? Já.
Spennandi? Nei.
Og mér finnst mjög gott til
þess að hugsa að Reykjavíkur-
borg virðist vera á sama máli.
Það er að minnsta kosti orðið
mjög erfitt að skipta um akrein
á Miklubrautinni án þess að
vera í fjórhjóladrifinu, slík eru
hjólförin í malbikinu. Upp-
fræstar götur eru látnar ósnert-
ar svo vikum skiptir til að reyna
á hæfileika borgarbúa til að
skipta um dekk og dempara.
Svona á þetta að vera! Auðvitað
á að vera meira spennandi að
demba sér út í umferðina en að
sitja heima og glápa á veru-
leikasjónvarp. Og hættulegra.
En fyrir adrenalínfíkla eins
og mig er samt fátt meira
spennandi en að keyra hring-
veginn. Nýlega lauk vegrýnis-
úttekt á völdum vegköflum í
nágrenni Reykjavíkur og fengu
þeir bara ágætis einkunn. Enda
nær einungis nýlagðir kaflar í
úrtakinu. Um leið og þeim
sleppir taka við rússíbanabraut-
ir í bland við stökkbretti og
holur. Íslenskir vegir hafa
nefnilega tilhneygingu til að
krumpast með árunum, þegar
frosið undirlagði þiðnar og
rennur í burtu.
Já, ef göturnar í höfuðborg-
inni eru dægrastytting, þá er á
við gott tívolí að keyra þar sem
Vegagerðin ræður ríkjum.
Er ekki kominn tími til að
gera hlutina almennilega?
Draga markvisst úr nagla-
dekkjanotkun höfuðborgarbúa,
sjá til þess að umferðaræðarn-
ar séu ekki lífshættulegar í
rigningu og einbeita sér að því
að halda þjóðvegunum okkar
við, frekar en að bora sundur
fjöll, leggja nýja vegi í frosti,
plana þess á milli vita gagns-
lausar hálendishraðbrautir og
halda úti verst nýtta strætó-
kerfi norðan Alpafjallanna?
Götur, og í það minnsta
hringvegurinn líka, eiga nefni-
lega bara að vera fiskabúr, ekki
hákarlatjarnir.
Lífslíkuaukandi leiðindi
Öflugri dísilvél og meiri staðal-
búnaður.
KIA-umboðið efnir til bílasýning-
ar um helgina. Frumsýndur verð-
ur nýr KIA Sorento en þessi öflugi
bíll hefur undanfarin ár notið mik-
illa vinsælda hér á landi og var
næstsöluhæsti jeppinn hér á landi
á síðasta ári.
Helstu breytingar á nýjum Sor-
ento eru þær að nú fæst hann með
enn öflugri dísilvél sem skilar 170
hestöflum, auk þess sem staðal-
búnaður Sorento er orðinn meiri
og innrétting ný. ESP-stöðugleika-
stýring er loks mikilvæg viðbót
við öryggisbúnað bílsins.
Í tilefni frumsýningarinnar
verða sýningartilboð á öðrum KIA
tegundum, auk þess sem KIA eig-
endum verður boðið upp á þrif á
bílum sínum á laugardaginn. Sýn-
ingin er í sýningarsal KIA að
Laugavegi 172 og verður opin
laugardag frá kl. 12-17 og sunnu-
dag frá kl. 12-16.
Nýi Sorento-jeppinn verður
einnig frumsýndur hjá söluum-
boðum á Selfossi, Reyðarfirði, Ísa-
firði, hjá Höldi á Akureyri og í
Vestmannaeyjum á laugardag frá
klukkan 12 til 17.
Nýr Sorento frum-
sýndur um helgina
Nýr Sorento hefur meðal annars fengið nýja innréttingu og ESP stöðugleikakerfi.
SPORTBÍLL ÁRSINS Á ÍSLANDI FYRIR
TVEIMUR ÁRUM.
Mazda hyggst innkalla alla bíla af
árgerðum 2004, 2005 og 2006 af gerð-
inni RX-8. Fyrirtækið sjálft hefur ekki
gefið frá sér yfirlýsingu um málið en
samkvæmt fréttum erlendra netmiðla
tengist vandamálið hinni óvenjulegu vél
bílsins.
Vélin er ólík öðrum bílvélum að
því leyti að í stað stimpla er hvelfdur
þríhyrningur inni í næstum sívölu rými.
Þríhyrningurinn snýst þegar eldsneytið
brennur í holum milli hans og innri
veggja sívalingsins.
Wankel-vélin er fyrirferðarlítil og létt
miðað við afl. Hins vegar er brunahol
hennar óheppilega lagað, yfirborð þess
er mikið miðað við rúmmál (besta
lögun brunahols er kúla, minnst yfirborð
á rúmmálseiningu). Það þýðir að vélin
krefst mikillar kælingar og eyðir miklu
eldsneyti.
Hafa í gegnum tíðina komið upp
bilanir í vélinni en Mazda taldi sig
hafa leyst þau vandamál sem við var
að glíma. RX-8 þykir skemmtilegur
akstursbíll og var valinn sportbíll ársins
af Bandalagi íslenskra bílablaðamanna
(BÍBB) fyrir tveimur árum.
Gert er ráð fyrir yfirlýsingu frá Mazda
innan skamms en samkvæmt þeim
upplýsingum sem nú liggja fyrir þarf að
skipta um vélar í mörgum tilvikum. Allar
vélar sem ekki þola þrýstipróf verður
skipt um.
Segja má að málið hafi farið á
hreyfingu eftir endurteknar umkvartanir
neytenda vegna bílanna. Eftir því sem
næst verður komist lekur olía frá vél en
á sínum tíma reyndist mjög erfitt að
hanna endingargóðar þéttingar við völt
vélarinnar (þéttingar sem svara til stimp-
ilhringja í hefðbundinni stimpilvél), og
vildu þær gefa sig eftir stutta notkun.
(www.billinn.is)
RX-8 innkallaður
Mazda RX-8 hefur fengið góða dóma
sem akstursbíll en Wankel-vélin er ennþá
til ófriðs þrátt fyrir miklar úrbætur.