Fréttablaðið - 02.09.2006, Qupperneq 42
■■■■ { hausttíska } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Grátt er tvímælalaust heitasti
liturinn í haust. Kjóllinn
fæst í Centrum.
Blágráar gallabuxur
úr Sautján.
2
Nú er mikið um áhrif frá tíunda
áratugnum en Marc Jacobs hefur
þó vakið mestu athyglina fyrir
sínar fatalínur sem þykja minna
óneitanlega mikið á allra fyrstu
tískusýninguna hans. Þá hann-
aði hann fyrir Perry Ellis og marg-
ir minnast þeirrar línu sem „grunge“
línunnar. Menn þar á bæ voru þó ekki svo
hrifnir af druslustílnum og rokkáhrifunum
og var greyið Marc fljótlega rekinn.
Stíllinn, sem nú er aftur orðinn heit-
ur, snýst aðallega um upphafningu hvers-
dagsleikans. Víðir bolir, þægilegar leggings,
klossaðir skór, ullarsokkar, víðar og köfl-
óttar skyrtur og nóg af ódýru glingri. Auð-
velt ætti að vera að tileinka sér þennan stíl
með því að grafa í geymslunni, finna stóra
skyrtu af pabba og smella sér í ullarsokka
yfir leggings buxurnar.
Blessunarlega koma þó
ekki öll trend tíunda
áratugarins aftur og eru
sennilega flestir fegnir að
vera lausir við lituð Lennon
gleraugu, þröng og síð pils úr
sundbolaefni og krumputeygjur
úr lífi sínu. Ekki ná í þetta dót úr
geymslunni.
Auðvelt og mun skemmtilegra er líka
að klæðast í þessum stíl á örlítið dýrari
en um leið afar ómótstæðilegan hátt.
Þá er um að gera að fara í fín-
ustu tískubúðir bæjarins og velja
sér vandaða peysu frá Vivienne
Westwood, köflóttan kjól frá
Bernard Wilhelm eða fallega
prjónapeysu frá Preen.
Upphafning
hversdagsleikans
Stíll tíunda áratugarins, með sínar vísanir í druslulegan stíl Kurts Cobain, Billy
Corgan og annarra rokkgoða sem þá þóttu flottust, hefur laumað sér inn í
tískuna á ný.
Fylgihlutir verða að vera
örlítið druslulegir en um
leið óneitanlega töff.
Hnébuxur, fást
í Sautján.
Hér er bútasaumur notað-
ur á óvenjulega töff máta.
Taskan fæst í Trilogiu.
Þessi bolur úr
Sautján væri góður
undir flottri skyrtu
eða vesti.
Þykkar spangir fara
fljótlega að prýða kolla
ungra kvenna á ný. Fást
í Skarthúsinu.
Kurt Cobain hafði mikil áhrif á tísku
unga fólksins á sínum tíma þótt það
hafi ekki verið hans helsta markmið.
Flott hauskúpuháls-
festi úr Sautján.
Hrikalega fallegt pils frá Donnu
Karan sem smellpassar inn í
„grunge“ stílinn. Fæst í Evu.
Tuskuleg en um leið
ótrúlega töff peysa
úr AllSaints.
Vítt og flaksandi. Glæsileg
samsetning úr haustlínu
Marc by Marc Jacobs.
Haustlína Marc
Jacobs vakti
mikla og verð-
skuldaða athygli.
Rokkaralegt vesti frá
Diesel, fæst í Sautján.
Parka jakka er nauð-
synlegt að eiga í haust.
Þessi fæst í Kronkron.
Unaðslega töff peysa
frá Vivienne Westwood.
Fæst í Kronkron.
Síður bolur úr Sautján.
Gaman er að blanda
örlitlu glimmeri í þennan
hversdagslega stíl.
Þessi kjóll er vel
í anda tíunda
áratugarins og eykur
fínflauelið á þau
áhrif. Fæst í Trilogiu.
Fínt vesti.
Fæst í Sautján.
Flottur og
öðruvísi samfest-
ingur úr Spúútnik.
Uppreimaðir glæsileg-
ir skór úr Kron.
FRÉTTABLADID/EINAR ÓLA
Örlítið druslulegt en samt
sjarmerandi glingur. Sautján.
Köflótt mynstur
kemur sterkt inn í
hausttískunni. Jakkinn
er frá Bernard Wilhelm
og fæst í Kronkron.
Brúnir og örlítið gamaldags
skór úr Spúútnik.
Leggings eru nauð-
synlegar í fataskáp-
inn í haust. Þessar
fást í Sautján.
Batík hettupeysa úr
KronKron.
Ferskjulitaður, stór og flott-
ur bolur úr AllSaints.