Fréttablaðið - 02.09.2006, Blaðsíða 45
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { hausttíska } ■■■■ 5
Mikið frjálsræði ríkir í því hvern-
ig belti eru notuð. Það er liðin tíð
að þau séu praktíkin ein saman,
strengur sem heldur buxunum
uppi. Þau eru orðin fylgihlutir
og jafnvel skartgripir sem lífga
og fríska upp á útlitið.
Belti fást nánast í hverri ein-
ustu fatabúð og úrvalið er yfir-
leitt gott. Hérna eru nokkrar
hugmyndir að flottum beltum
sem voru að detta inn í verslanir
og ættu að leggja línurnar fyrir
haustið.
Girtu þig
stúlka!
BELTI ERU MÁLIÐ Í DAG.
HVORT SEM ÞAU HANGA Á
MJÖÐMUM, ERU UM MITTI,
VIÐ PILS EÐA BUXUR, ÞYK-
IR ÞAÐ MÓÐINS AÐ HAFA
EITTHVAÐ UM SIG MIÐJA.
Þetta
belti er úr
Flash og kostar 1.490
krónur
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Flash á
Laugaveg-
inum selur þetta
flotta belti á 1.990
krónur.
Í Sautján fæst þetta
belti á 2.990 krónur.
Þetta
belti/
mittislindi
er skreytt
pallíettum sem
verða einmitt mikið
notaðar í haust. Beltið
kostar 2.499 krónur í
Accessorize.
Svart er
alltaf klassískt
en þetta teygjubelti
er úr Accessorize og kostar
2.099 krónur.
Þetta brúna
belti er úr Acc-
essorize og kostar 2.999
krónur.
Hættið að klæðast einungis hefðbundnum hvít-
um og svörtum sokkum. Munstur og litir gleðja
og kæta bæði tærnar og aðra.
Enginn efast um þá staðreynd að karlmenn
eru farnir að hugsa meira en áður um tísku og
hverju þeir klæðast. Þrátt fyrir það hefur þessi
þróun ekki ennþá náð alla leið niður á tærnar.
Hvítu og svörtu sokkarnir eru ennþá ríkjandi
sem er algjör synd þar sem öðruvísi sokkar vekja
eftirtekt og eru mun frumlegri en skítugu tenn-
issokkarnir.
Munstraðir sokkar eru langt frá því að vera
yfirþyrmandi heldur lífga þeir upp á frekar
dauft svæði á líkamanum. Röndóttir, skræpóttir,
stjörnóttir eða hvernig sem er, öðruvísi sokkar
eru einfaldlega flottari en hinir hefðbundnu. Nú
er kominn tími til þess að fleygja öllum einlitu
sokkunum og skella sér á nokkra flottari og
frumlegri sokka.
Flottir og öðruvísi sokkar
Hættið að klæðast einungis hefðbundnum sokkum. Munstur og litir gleðja og kæta.
Kultur
Elvis
Sock Shop
Spúútnik
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 1