Fréttablaðið - 02.09.2006, Síða 73
LAUGARDAGUR 2. september 2006 37
„Ég tek þrjú verkefni í Þjóðleik-
húsinu og fæ þannig sjálfkrafa
fastráðningu í eitt ár. Fyrsta hlut-
verkið er í leikriti um Florence
Foster Jenkins, sem hefur verið
kölluð versta söngkona í heimi,“
segir Hallur, sem mun fara með
hlutverk undirleikara söngkonunnar
í verkinu. Florence þessi komst
ansi langt miðað við þá litlu söng-
hæfileika sem hún bjó yfir og var
hápunkturinn á ferlinum þegar hún
söng fyrir um fimm þúsund manns
í Carnegie Hall. Það kemur í hlut
Ólafíu Hrannar að túlka söngkon-
una. „Verkið fjallar um ævi þess-
arar söngkonu, sem hefur þennan
vafasama titil, og er byggt á sann-
sögulegum heimildum. Við fáum
að njóta söngs Florence en ég eyddi
einmitt sumrinu í að hlusta á hana
og er að verða bilaður,“ segir Hallur
hlæjandi.
Leikarinn nýútskrifaði kunni lítið
sem ekkert á píanó áður en hann
hóf að undirbúa sig fyrir undirleik-
inn, en hefur hlotið góða ráðgjöf hjá
Jóhanni G. Jóhannssyni, tónlistar-
stjóra Þjóðleikhússins, og hjá Matt-
hildi Önnu Gísladóttur, tónlistar-
nema við Listaháskóla Íslands.
„Þetta eru nú allt litlar aríur og ég
býst ekki við að spila sjálfur á
píanóið. Ég hef aðallega verið að
kynnast hljóðfærinu og læra hvernig
ég á að bera mig að við það.“
Undirleikur og guðdómleikur
Hin verkefnin tvö sem liggja fyrir
hjá Halli eru verkin Leg eftir Hug-
leik Dagsson, sem fjallar um ólétta
táningsstelpu, og Bakkynjur, sem
er grískur harmleikur og jólasýn-
ing Þjóðleikhússins. Þar bregður
Hallur sér í hlutverk guðsins
Díónýsosar. Leikstjóri Bakkynja er
Giorgos Zamboulakis, sem sá um
radd- og grímuleikstjórn og sviðs-
hreyfingar í Mýrarljósi, en hann
fær hjálp frá Thanos Vovolis og
Ernu Ómarsdóttur dansara við að
koma verkinu upp.
„Leikferillinn fer því nokkuð vel af
stað hjá mér. Það sama á í raun um
alla bekkjarfélaga mína sem flestir
eru komnir með vinnu hjá stóru
leikhúsunum og þeir sem eru ekki
komnir með vinnu þar eru að setja
upp sína eigin hluti. Þó að nýút-
skrifaðir leikarar fari ekki strax
inn í leikhúsin eru alls konar spenn-
andi hlutir að gerast,“ segir Hallur,
en hans bíða fjölbreytt verkefni í
vetur, allt frá undirleik til guðdóm-
leiks. „Það verður gaman að kynn-
ast hlið stóru leikhúsanna og ég
hlakka til að takast á við hlutverkin
enda eru þau mjög spennandi.“
Fleiri dyr að opnast
Leikaranum unga finnast nýir og
spennandi hlutir vera að gerast í
íslensku leikhúslífi. „Mér finnst
Þjóðleikhúsið til dæmis vera að
gera góða hluti, með nýjum leik-
hússtjóra og með nýjum áherslum.
Svo er það líka Leikfélag Akureyrar.
Þar er landsbyggðin að koma sterk
inn og það eru skemmtilegir hlutir
að gerast þar.“
„Ég er mjög þakklátur fyrir að fá
að koma inn í leikhúsið á þessum
tíma og fá þessar rullur og ábyrgð-
ina sem þeim fylgir. Það virðist
vera mikill uppgangur í leikhúslíf-
inu og þar sem við bekkjarfélag-
arnir erum flest allir að vinna hörð-
um höndum, virðist vera eftirspurn
eftir leikurum og þar af leiðandi
framboð af áhorfendum.“ Spurður
hvort þessari eftirspurn eftir leik-
urum sé meðal annars sjálfstæðu
leikhópunum að þakka segir Hallur:
„Það má vel vera. En það hafa alla
vega verið að opnast nýjar hliðar í
leikhúsinu. Leikhópurinn okkar,
Vér morðingjar, var til dæmis
stofnaður þar síðasta sumar í
kringum Nýsköpunarsjóð. Þá feng-
um við styrk til að rannsaka hvort
leikarar gætu unnið með geðsjúk-
um og öfugt og það gekk svo vel að
við héldum sýningunum áfram. Við
fengum líka góða dóma frá
krítíkerum sem og fagfólki og fólki
með geðsjúkdóma,“ segir Hallur
og heldur áfram. „Það eru líka
fleiri dyr að opnast, til dæmis með
Nýsköpunarsjóði og Hinu húsinu.
Hitt húsið hjálpaði mér að stofna
fyrsta áhugaleikhópinn minn. Slík
starfsemi hjálpar alltaf til og það
mætti kannski leggja meiri rækt
við grasrótina. Mér sýnist þetta
líka að vera að byrja fyrr, því nú
eru krakkar ekki nema rétt
nýskriðnir út úr framhaldsskóla
þegar þau byrja með leikhópa. Þá
eru líka komnar nýjar brautir, eins
og Fræði og framkvæmd í Lista-
háskólanum, sem ýtir undir það að
fólk fari á aðrar brautir en þær
„hefðbundnu“.“
Á svipuðum stað eftir fimm ár
Hallur segist ekki vera það reyndur
í íslensku leikhúslífi að hann geti
lagt mat á það hvað betur megi
fara þar. „Eins og gamall kennari
sagði við mig. „Maður verður ekki
leikari fyrr en eftir fimm ár á stóru
sviði.“ Það er kannski eitthvað til í
þessu því þar fær maður vinnuna
beint í æð. Fólk er í vernduðu
umhverfi í skólanum en sjálfstæðu
sýningarnar koma manni kannski
betur í samband við það sem maður
vill vera. En ef ég á að svara spurn-
ingunni kýs ég að gera það eftir
fimm ár.“
En hvar verður Hallur þá eftir
fimm ár? „Vonandi verð ég að
vinna við það sem mér finnst
skemmtilegast, sem er að vinna
með góðu fólki, í krefjandi verk-
efnum og að því sem ég hef gaman
af. Ég vona því að ég verði á svip-
uðum stað eftir fimm ár og ég er
nú, hvort sem það verður í atvinnu-
leikhúsinu eða á öðrum vettvangi.“
Afgangar
Að minnsta kosti tvær sýningar
eru eftir af Penetreitor, tvo næstu
sunnudaga, en í gær frumsýndi
Hallur verkið Afganga, eftir Agnar
Jón Egilsson sem jafnframt leik-
stýrir verkinu. Í verkinu leikur
Hallur á móti Elmu Lísu Gunnars-
dóttur. „Það er búið að búa til svart-
an leikhúskassa á efri hæðinni í
Austurbæ fyrir þetta verk. Ég og
Elma Lísa höfum áður unnið saman
í verkinu Ritskoðarinn eftir Anthony
Nilson, þann sama og skrifaði Pen-
etreitor. Í þessu verki förum við í
gegnum sambandsferli tveggja
einstaklinga sem hófu ástarsam-
band á röngum forsendum. Áhorf-
endur fylgjast síðan með því hvert
það leiðir,“ segir Hallur. „Það
fjallar um mannlegar tilfinningar
og samskipti kynjanna. Þetta er
tveggja manna mjög intensíft
leikarastykki.“
Hallur og Björn
Leikararnir Stefán Hallur Stefáns-
son og Björn Thors eru miklir
mátar. Þeir kynntust í leikfélagi
Menntaskólans við Hamrahlíð, þar
sem þeir sátu báðir í stjórn og tóku
þátt í að setja upp nokkrar sýningar.
Saman unnu þeir söngvakeppni
framhaldsskólanna þegar þeir
sungu lag með hljómsveitinni Bee-
Gees, berir að ofan og klæddir
slönguskinnsbuxum.
„Þar bundumst við eilífðar vináttu-
böndum,“ segir Hallur. „Við höfum
verið að bardúsa eitt og annað og
erum að leggja drög að nánara
samstarfi. Björn hefur bara verið
svo upptekinn undanfarið og ég
hef verið í skólanum en nú ætlum
við að rotta okkur saman og fara að
gera eitthvað skemmtilegt.“
Leikur undir hjá verstu
söngkonu í heimi
Stefán Hallur Stefánsson er nýútskrifaður leikari sem þegar hefur fengið
fastráðningu við Þjóðleikhúsið. Hallur, eins og hann er gjarnan nefndur,
vakti mikla athygli fyrir verkið Penetreitor, sem leikhópurinn hans Vér
morðingjar setti upp. Kristján Hjálmarsson ræddi við Hall um leikhúslífið,
fyrstu hlutverkin í Þjóðleikhúsinu, ástarsamband á röngum forsendum og
framtíðina.
www.rafkaup.is // Opið lau.: 11:00 - 16:00
LEIKARINN Fyrsta hlut-
verkið í Þjóðleikhúsinu
verður að leika undir hjá
verstu söngkonu í heimi.