Fréttablaðið - 02.09.2006, Side 91
LAUGARDAGUR 2. september 2006 55
FÓTBOLTI Rio Ferdinand, miðvörð-
ur Manchester United og enska
landsliðsins, mun missa af leik
Englendinga í dag gegn Andorra,
en leikurinn er fyrsti leikur lið-
anna í undankeppni Evrópumóts-
ins.
Ferdinand er meiddur á tá. Ótt-
ast var um tíma að táin væri brot-
in en svo er ekki. Ferdinand hefur
ekkert æft með enska liðinu í vik-
unni en Steve McClaren, þjálfari
enska liðsins, er bjartsýnn á að
Ferdinand geti verið með í leikn-
um gegn Makedóníu á miðviku-
daginn kemur.
„Nú er möguleiki fyrir Michael
Dawson og Wes Brown að koma
inn í liðið og ég ber fullt traust til
þeirra,“ sagði Steve McClaren.
- dsd
Enska landsliðið:
Ferdinand ekki
með í dag
RIO FERDINAND Verður ekki með
Englandi í dag en gæti náð leiknum á
miðvikudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Svo virðist sem mikið
ósætti sé á milli Jose Mourinho,
framkvæmdastjóra Chelsea, og
Peter Kenyon, varaformanni
félagsins.
Mourinho segist hafa náð sam-
komulagi við Kenyon um að láta
Gallas eingöngu spila með varalið-
inu á þessari leiktíð en Gallas var
látinn fara til Arsenal á fimmtu-
daginn. Það segir Mourinho að
hann hafi aldrei samþykkt og
sakar Kenyon um að hafa farið á
bak við sig í þeim efnum. Málið er
víst komið það langt að lögfræð-
ingar þeirra beggja eiga í viðræð-
um vegna hugsanlegrar málsókn-
ar Mourinhos á hendur Kenyon.
- dsd
Ósætti hjá Chelsea:
Mourinho og
Kenyon rifust
JOSE MOURINHO Var allt annað en sátt-
ur við söluna á Gallas til Arsenal.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
TENNIS Andre Agassi hefur látið
hafa það eftir sér að hann muni
hætta að spila tennis eftir þátt-
töku sína á Opna bandaríska meist-
aramótinu sem nú stendur yfir, en
þetta er í 21. skiptið í röð sem hann
keppir á þessu móti.
Agassi mætti í fyrradag Mar-
cos Baghdatis frá Kýpur, en hann
er í áttunda sæti á heimslistanum.
Leikurinn þótti einstaklega spenn-
andi og endaði með sigri Agassi í
fimm settum, 6-4 6-4 3-6 5-7 og 7-5,
sem þýðir að Agassi er ekki á því
að leggja spaðann á hillina alveg
strax. Agassi mætir Benjamin
Becker frá Þýskalandi í næstu
umferð. - dsd
US Open í tennis:
Agassi gefst
ekki upp
Það er hópur valinkunna tónlistarmanna og söngvara sem sér um
kennslu hjá Tónvinnsluskólanum. Hægt er að velja úr fjölbreyttum
söngnámskeiðum og námskeiðum í gítarleik, bæði fyrir byrjendur og
lengra komna.
Námskeiðið Söngur og framkoma er í höndum Selmu Björnsdóttur.
Þetta vinsæla námskeið sem nú er haldið í fjórða sinn, kemur inn á
söng, framkomu og söng í hljóðveri. Námskeiðið
hentar þeim vel sem hyggjast þreyta áheyrnarprufur
fyrir söngleiki og sjónvarpsþætti á borð við Rock
Star og Idol.
Barna- og unglinganámskeiðið verður á sínum stað
í Tónvinnsluskólanum en það hefur notið mikilla
vinsælda síðustu misseri. Gestakennarar á þessu
námskeiði verða söngorkubomban Jónsi úr Svörtum fötum og
söng/leikonan og dansarinn Halla Vilhjálmsdóttir. Um er að ræða
skemmtilegt námskeið fyrir yngri kynslóðina þar sem upprennandi
söngvarar fá leiðsögn frá Heiðu Ólafsdóttur.
Ein ástsælasta söngkona landsins,Andrea Gylfadóttir, verður í annað
sinn með námskeið í jazz og bluessöng. Þetta námskeið er fyrir lengra
komna, t.d. fyrir þá sem hafa klárað “söngur og framkoma” eða
samskonar námskeið, eða vilja gera alvöru úr söngkunnáttu sinni.
Gítarleikarar njóta leiðsagnar frá Vigni Snæ Vigfússyni (Írafár) og
Gunnari Þór Jónssyni (Sól Dögg) og fleirum. Byrjendur sem og lengra
komnir njóta góðs af reynslu þessara manna en farið er yfir helstu atriði
gítarleiks og nokkur þekktustu rokklög sögunnar tekin fyrir.
������ �� �������
Til að annast tónsmíðar, útsetningar, hljóðritun og eftirvinnu
þarf þekkingu, einbeitingu og útsjónarsemi. Á aðalnámsbraut
Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna er leitast við að gera nemendur
fullfæra um að semja eigið lag og koma því frá sér fullunnu.
Nemendur fá ítarlega leiðsögn á Pro Tools og Reason samhliða
lagasmíðum og er farið í kjölinn á því sem þarf að vera á hreinu
varðandi öll helstu tækniatriði hljóðversins. Að námsbrautinni
lokinni ætti hver og einn að þekkja upptökuferlið frá grunni.
Hljóðupptökuhluti námskeiðsins fer fram í einu glæsilegasta
hljóðveri landsins; Sýrlandi.
Samhliða greinargóðu hljóðupptökunámi eru lagasmíði og
upptökustjórn gerð rækileg skil. Nemendur fá nákvæmar
leiðbeiningar um helstu atriði þessa krefjandi sviðs frá nokkrum af
fremstu hljóðversmönnum landsins.
�������������
����������������������
������������������������
HALLA
��������������������������������������������������
Skráningarsími: 534 9090
FÓTBOLTI Það var svo sannarlega
ítalskur bragur á leik U-21 árs liða
Íslands og Ítalíu sem fram fór á
Laugardalsvelli í gærkvöld.
Leikurinn var ákaflega tilþrifalít-
ill og þeir fjölmörgu áhorfendur
sem lögðu leið sína í Dalinn hafa
eflaust óskað þess að hafa verið
heima hjá sér að gera eitthvað allt
annað.
Fyrri hálfeikurinn var einstak-
lega dapur en bæði lið sóttu hægt
og tóku nákvæmlega enga áhættu.
Fyrir vikið gerðist nákvæmlega
ekki neitt fyrir utan færi sem
Birkir Már Sævarsson fékk en
hann fór illa að ráði sínu.
Ítalir mættu mun grimmari til
síðari hálfleiks og þjörmuðu að
íslensku vörninni, sem var í mikl-
um vandræðum. Stíflan brast á 57.
mínútu er Ítalir skoruðu með góðu
langskoti.
Þeir héldu völdunum áfram en
án þess að skapa sér verulega
hættuleg færi. Bjarni Þór Viðars-
son fékk besta færi Íslands um
miðjan hálfleikinn en hann brenndi
af í dauðafæri.
Lítið gerðist það sem eftir lifði
leiks fyrir utan að Gunnar Þór
Gunnarsson fékk rautt skömmu
fyrir leikslok er hann sló til eins
Ítalans, sem fór sömu leið með sitt
annað gula spjald á bakinu, en
dómurinn var hárréttur. - hbg
U-21 árs lið Ítalíu vann sanngjarnan sigur, 0-1, á Íslandi í rjómablíðu á Laugardalsvelli:
Ítalskur sigur í leiðinlegum leik í Dalnum
ERFITT Rúrik Gíslason og félagar í íslenska U-21 árs landsliðinu komust lítt áfram
gegn Ítölum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON