Fréttablaðið - 04.09.2006, Side 21

Fréttablaðið - 04.09.2006, Side 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNASÖLUR 101 Reykjavík 15 Árborgir 25 Ás 6-9 Búmenn 24 Búseti 18 Byggð 24 Draumahús 20-22 Eignamiðlun Suðurnesja 17 Eignamiðlunin 25 Eignastýring 26 Eignaumboðið 30 Fasteignamarkaðurinn 24 Fyrirtækjasala Íslands 27 Hof 28 Hraunhamar 32-33 Húseign 19 ÍAV 10-11 Lundur 12-13 Lyngvík 23 Neteign 14 Remax Búi 17 Fasteignasalan Saga fasteignir hefur til sölu eitt glæsilegasta einbýlishús í Seljahverfi. Húsið er gríðarstórt, alls 365 fermetrar, og er sérstaklega vandað til alls. Húsið, sem er í Vogaseli 7, er mjög vel stað- sett í gróðursælu og fallegu hverfi. Garður er einnig gróðursæll og skjólgóður og hiti er í stétt að húsinu. Við enda lóðarinnar er sam- eiginlegt leiksvæði fyrir börn, þá er einnig stutt í skóla og öll þjónusta í göngufæri. Húsið er á þremur hæðum; kjallari, hæð og ris. Kjallarinn er steinsteyptur og efri hæðirnar byggðar úr timbri. Á efstu hæð hússins eru tvö rúmgóð herbergi, hol og snyrting. Á annari hæðinni eru tvö her- bergi, snyrting, stór stofa með arni, fallegt eldhús, borðstofa og rúmgóð 45 fermetra vinnustofa. Úr stofunni er gengið út á yfir- byggðan sólpall með heitum potti. Jarðvegur er að einni hlið kjallarans sem skiptist í stórt bjart 25-30 fermetra her- bergi, snyrtingu, fjölskyldurými og geymslu. Að auki eru þvottahús og eldhús í kjallara. Marmari er á gólfum, í eldhúsi og þvottahúsi. Hægt er að breyta kjallaranum í tvær íbúðir með sérinngangi. Húsið var byggt árið 1981 og er í mjög góðu ástandi. Söluverð eignarinnar er 83 milljónir króna. Glæsilegt og íburðarmikið hús Vogasel 7 er glæsilegt einbýlishús. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Glæsilegur körfuboltavöllur GLÆSILEGUR KÖRFUBOLTAVÖLLUR ER NÚ Í BYGGINGU Í REYKJANESBÆ. Völlurinn er sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi með gólfefni sem samþykkt er af alþjóða körfuknattleiks- sambandinu en yfir malbikað undirlag eru lagðar sérstakar flísar frá fyrirtækinu Sport Court í Bandaríkjunum. Flísarnar eru mýkri en malbikaðir vellir og fara því betur með hné og bak leikmanna, auk þess eru þær sérstaklega hannaðar til þess að hleypa vatni í gegnum sig og því er hægt að spila körfubolta á vellinum í öllum veðrum. Eins og sjá má er þjóðerniskenndin í fyrirrúmi því völlurinn er hannaður í íslensku fánalitunum. Von er til þess að fleiri slíkir vellir muni líta dagsins ljós á næstu misserum. Nánar á www.vikurfrettir.is Körfuboltavöllurinn við Holtaskóla í Reykjanesbæ verður mikil bylting fyrir þetta mikla körfuboltabæjarfélag MYND/VÍKURFRÉTTIR GÓÐAN DAG! Í dag er mánudagurinn 4. september, 247. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 6.18 13.27 20.34 Akureyri 5.58 13.11 20.23 Heimild: Almanak Háskólans HAUSTVERKIN Í GARÐINUM Það þarf líka að hreinsa arfa á haustin. HÚS 2 H úsgagna Lagersala Krókhálsi 10simi: 557-951030 ágú-09 sep09-18 virka daga10-16 laugardag Eldhúsinnréttingar NuddstólarSpeglarRúm og margt margt fleira...Sófasett Allt að 90% afsláttur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.