Fréttablaðið - 04.09.2006, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 04.09.2006, Blaðsíða 62
 4. september 2006 MÁNUDAGUR22 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. MERKISATBURÐIR 476 Vestur-rómverska keisara- veldið líður undir lok þegar Germanir ráðast inn í Róm. 1596 Ógnarstór flóðbylgja skellur á ströndum Japan. 1845 Jón Sigurðsson, síðar nefndur forseti, gengur í það heilaga með Ingibjörgu Einarsdóttur. 1957 Þjóðarvarðliðið er kallað út í Arkansas til að tryggja að þeldökkum nemendum verði hleypt inn í skóla sem áður var aðeins leyfður hvítum. 1972 Sundkappinn Mark Spitz vinnur sín 7. gullverðlaun á Ólympíuleikunum í München. 1973 Bókstafurinn z er felldur úr opinberu máli á Íslandi. 1997 Kofi Annan kemur í þriggja daga heimsókn til Íslands. VILBORG DAVÍÐSDÓTTIR RITHÖFUNDUR ER 41 ÁRS Í DAG „Áður fyrr fannst mér allir kjánar sem voru undir þrítugu en kannski færi ég þau landamæri upp um áratug.“ Vilborg var tilnefnd til Íslensku bókmennta- verðlaunanna í ár fyrir bók sína Hrafninn. Þremur dögum eftir að flak farþegaskipsins Titanic fannst á hafsbotni birtust fyrstu myndirnar af því, þennan dag fyrir 21 ári. Franskir og bandarískir leið- angursmenn fundu flakið en leiðangursstjóri var könnuður að nafni Robert Ballard. Titanic, skipið sem ekki átti að geta sokkið, fórst í jómfrúarferð sinni árið 1912 eftir árekstur við ísjaka með þeim afleiðingun að 1.500 manns týndu lífi. Skipið lagði úr höfn frá Southamp- ton á Englandi fjórum dögum áður, en ferðinni var heitið til New York í Bandaríkjunum. Ballard og menn hans fundu flak Titanic á botni Atlantshafsins á rösklega fjögurra kílómetra dýpi. Ómannaður kafbátur var sendur niður að flakinu og með honum voru fyrstu myndirnar af flakinu tekn- ar. Ekki var þó reynt að bjarga flakinu eða hróflað við innviðum þess. Ballard sneri aftur að slysstaðnum einu ári síðar á bandarísku herskipi og kafaði þá sjálfur niður að flakinu ellefu sinnum í litlum kafbát. Síðan þá hafa ótal leiðangrar verið farnir niður að skipinu og fór kanadíski leikstjórinn James Cameron til dæmis niður að því þegar hann vann að kvikmynd sinni um slysið. Margir eftirlifandi ættingjar þeirra sem fórust hinn 13. apríl 1912 settu sig á móti því að kafað væri niður að flakinu þar sem það væri hinsti hvílustaður margra. ÞETTA GERÐIST: Fyrstu myndirnar af flaki Titanic berast Tónskáldið Hafliði Hallgrímsson opnar myndlistarsýningu í Hall- grímskirkju um helgina, en Listvina- félag Hallgrímskirkju bauð honum að sýna í kirkjunni í tilefni af 65 ára afmæli hans á árinu. Hafliði segir nokkuð langan aðdraganda hafa verið að sýningunni. „Ég hef haft nokkrar sýningar á Íslandi, til dæmis í Nor- ræna húsinu. Og svo var ég með sýn- ingu hér fyrir mörgum árum,“ segir hann. „Ég hef hins vegar verið svolít- ið tengdur Hallgrímskirkju. Mótettu- kórinn pantaði hjá mér tónverkið Passíuna sem var flutt tvisvar í sam- bandi við þúsund ára afmæli kristni á Íslandi. Hugmyndin að þessari sýn- ingu kom svolítið í framhaldi af því.“ Sýningin samanstendur af tólf málverkum sem Hafliði vann í vetur. Hann segir sýninguna vera tilraun til að mála myndir sem passa inn í kirkj- una og andrúmsloft hennar. „Það er ekki mikið um átök í þessum mynd- um,“ segir Hafliði, „það væru þá frekast innri átök.“ Altarið kemur við sögu í málverkum Hafliða, sem og draumur Jakobs um Jakobsstigann. „Þar eru jafnvel minningar frá minni eigin fermingu,“ segir Hafliði. „Þetta er tilraun til að koma til móts við kirkjuna í staðinn fyrir að þvinga ein- hverju upp á hana sem ekki passar inn.“ Enn er ekki útséð um hvort sýn- ingin standi yfir í tvo eða þrjá mán- uði, en Hafliði snýr aftur til heimilis síns í Edinborg á þriðjudag. „Þá fer ég beint í að semja nýtt tónverk og salta málverkin,“ segir Hafliði. Undanfarin 23 ár hefur Hafliði starfað sem tónskáld. Í vetur stund- aði hann þó myndlistarnám í Edin- burgh College of Art, sem hann segist hafa gert til að skerpa sjónina. „Ég hef alltaf haft gaman af að teikna og mála og stefni á að gera meira af því eftir því sem aldurinn færist yfir. Ég var með mjög góðan kennara sem hefur tuktað mig miskunnarlaust til í vetur. Það er alltaf gott að fá heiðar- lega gagnrýni frá manni sem maður treystir,“ segir Hafliði, en hann vill alls ekki kalla sig myndlistarmann. „Ég er tónskáld sem málar aðeins líka. Það er gott að hvíla hugann frá tónlistinni með því að mála – nú, eða spila golf,“ bætir hann við. sunna@frettabladid.is TÓNSKÁLDIÐ HAFLIÐI HALLGRÍMSSON: VERÐUR 65 ÁRA Á ÁRINU Heldur myndlistarsýn- ingu í Hallgrímskirkju HAFLIÐI HALLGRÍMSSON TÓNSKÁLD Vill ekki kalla sig myndlistarmann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AFMÆLI Helga Þ. Stephensen, leikkona, er 62 ára. Hörður Torfason, tónlistarmaður, er 61 árs. Pétur Már Ólafs- son, bókaútgef- andi, er 41 árs. Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður, er 37 ára. „Það var í bakaríinu í Austurverinu hjá pabba mínum og afa,“ segir Marsibil Jóna Sæmundardóttir, vara- borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, innt eftir fyrsta starfi sínu. „Mig minnir að þetta hafi verið sumarið þegar ég var þrettán ára. Ég fékk að vera í afgreiðslunni og fannst ég orðin svo fullorðin.“ Þar sem bakaríið var í eigu fjöl- skyldunnar segir Marsibil að það hafi legið beinast við að hún stigi sín fyrstu skref á vinnumarkaði þar. „Ég þóttist alltaf vera að hjálpa eitthvað til þarna og var búin að tuða lengi um að fá alvöru vinnu í bakarínu og var því yfir mig glöð þegar það loksins gerðist.“ Hún man ekki eftir hver launin voru eða í hvað þau fóru, enda skipti það litlu samanborið við það að vera farin að vinna og þar með komin langleiðina í tölu fullorðinna. „Ég þurfti að vakna snemma á morgnana og taka strætó upp á Grensás og gekk þaðan í Austurver. Mér fannst það mikill metnaður í mér,“ segir hún og hlær. Marsibil segir að fyrsta starfið hafi fyrst og fremst kennt sér æðru- leysi. „Það komu margir fastakúnnar, sumir erfiðari en aðrir, og ég lærði fljótt að það var mikilvægt að geta sett sig í spor annars fólks þegar maður er í þjónustustörfum. Æðru- leysi er líka ágætt veganesti í pólitík- inni, þar sem maður er í miklu sam- bandi við fólk, og bara lífið í heild.“ MARSIBIL JÓNA Fannst hún vera komin langleiðina í tölu fullorð- inna þegar hún steig sín fyrstu skref á vinnumarkaði. FYRSTA STARFIÐ: MARSIBIL JÓNA SÆMUNDARDÓTTIR VARABORGARFULLTRÚI Í bakaríinu hjá pabba „Þetta er orðinn ansi vænn hópur sem ég hef kennt á gítar,“ segir Ólafur Gaukur en í dag hefst innritun nema í Gítarskóla Ólafs Gauks sem hann hefur rekið í 31 ár. „Þetta hefur alltaf geng- ið mjög vel og aðsóknin á námskeiðin er jöfn og sveifl- ast lítið milli ára enda er skólinn vel þekktur,“ segir Óli, sem telur gítaráhuga fólks óháðan tískusveiflum. Óli kennir fólki á öllum aldri á gítar og skiptir nem- endum í nokkra aldurshópa og segist hafa náð góðum árangri með byrjendur. „Reynslan hefur kennt mér að það er heppilegast að hafa átta byrjendur saman í salnum. Þá er hver með sinn gítar og heyrnartól og heyrir ekki í neinum nema sjálfum sér og kennaran- um. Þessi námskeið skila fólki alltaf meiru en það bjóst við í upphafi enda legg ég á það áherslu að nemendurnir fái sem mest út úr þessu. Það verður samt auðvitað að byrja á byrjuninni og það verður ekki hlaupið yfir neitt í tón- listinni frekar en öðrum listgreinum.“ Óli er aðalkennari skól- ans en fleiri koma að kennsl- unni. „Það gæti aldrei geng- ið að hafa mig einan í þessu,“ segir Óli, sem hefur haft aðsetur í sérinnréttuðu húsnæði að Síðumúla 11 síð- ustu 11 ár. Vinsældir gítarsins óháðar tískusveiflum JARÐARFARIR 13.00 Lárus Johnsen, Stigahlíð 36, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. 13.00 Jens Willy Ísleifsson, Frosta- fold 22, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju. 14.30 Jón Þorleifsson, frá Breið- holti, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu. ÓLAFUR GAUKUR TÓNLISTARMAÐUR ����������������������������������������������������������������� ����� �������� ������ ������ ������������������������� �������������������������������������������������������� ����������������������������������������� ������������������������������������� ��������������� ���������������������� ��������� ������������������������������������������������� ���������������������������� �������������������� ������������������ �������������������� ����������� ������������� ������������������ �����������������������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.