Fréttablaðið - 04.09.2006, Page 70
Fergie, söngkona The Black Eyed
Peas, gefur út sína fyrstu sóló-
plötu 18. september næstkomandi.
Platan heitir The Duchess og upp-
tökum stjórnaði Will.I.Am for-
spakki The Black Eyed Peas.
The Black Eyed Peas hafa á
undanförnum árum sankað að sér
verðlaunum og hafa m.a. annars
unnið til tvennra Grammy-verð-
launa. Samanlagt hefur sveitin
selt yfir 17 milljónir eintaka af
plötum sínum.
Fergie, sem heitir réttu nafni
Stacy Ferguson, gekk til liðs við
The Black Eyed Peas árið 2002,
rétt fyrir útgáfu plötunnar
Elephunk sem sló eftirminnilega í
gegn. Fyrir þann tíma hafði hún
getið sér frægðar sem meðlimur
unglingasveitarinnar Wild Orchid
ásamt því að koma fram í hinum
vinsæla krakkaþætti Kids Incorp-
orated.
Fyrsta smáskífa nýju plötunn-
ar, London Bridge, er að gera góða
hluti og hefur m.a. verið í efsta
sæti Billboard-smáskífulistans í
fjórar vikur samfleytt.
Fyrsta sólóplatan
FERGIE Söngkonan The Black Eyed Peas
gefur út sína fyrstu sólóplötu hinn 18.
september.
Leikkonan Jennifer Aniston er að
skipuleggja alþjóðlega auglýs-
ingaherferð með íþróttavörufram-
leiðandanum Nike. Samningurinn
er upp á margar milljónir dollara
og hyggst leikkonan gefa stóran
hluta launa sinna til góðgerðar-
samtaka fyrir krabbameinssjúk-
linga. Jennifer hefur prýtt síður
margra slúðurblaða þar sem hún
er að hlaupa í grennd við heimili
sitt í Malibu í Kaliforníu og ætti
því að vera góður fulltrúi fyrir
Nike á alþjóðamarkaði.
Aniston með milljóna
samning við Nike
FLOTTUR FULLTRÚI Jennifer er stór-
glæsileg og á eftir að sóma sér vel sem
fulltrúi Nike í auglýsingum.
Heildarlausn fyrir
snyrtinguna
Lotus Professional
Rekstrarvörur Sími 520 6666
sala@rv.is www.rv.is
5.4
23
kr.
R
V
6
2
1
5
D
Marathon Miðaþurrkuskápur
úr ryðfríu stáli
Flestir muna eflaust hvar
þeir voru staddir um hádeg-
isbilið þriðjudaginn 11.sept-
ember árið 2001 þegar
tveimur farþegaflugvélum
var flogið á Tvíburaturn-
anna í New York. Skömmu
síðar var þeirri þriðju flog-
ið á Pentagon.
Fjórða flugvélin, United 93, er
umfjöllunarefni samnefndrar kvik-
myndar eftir enska leikstjórann
Paul Greengrass en talið hefur
verið að United 93 hafi verið stefnt
að Hvíta húsinu eða þinghúsinu í
Washington. Kvikmynd Green-
grass gerist á rauntíma því einung-
is liðu níutíu mínútur frá því að
vélin fór í loftið frá New Jersey þar
til henni var brotlent með þeim
afleiðingum að 44 farþegar og flug-
áhöfnin auk hryðjuverkamannanna
fórust.
Greengrass lagðist í mikla undir-
búningsvinnu fyrir myndina og
hafði samband við aðstandendur
fórnarlamba flugvélarinnar og beið
eftir grænu ljósi frá þeim.„Þegar
fjölskyldan hefur sagt já er rétti
tíminn runnin upp,“ segir Green-
grass. Hann fékk einn af framleið-
endum 60 Minutes II, Michael
Brenner, til að vinna úr öllum þeim
gögnum sem til voru um flugvélina
og farþeganna. Að mati Greengrass
voru það farþegar United 93 sem
upplifðu fyrstir þær breytingar
sem áttu sér stað í heiminum þenn-
an örlagaríka dag. Þeir fylgdust
með úr fjarska en voru samt sem
áður virkir þátttakendur í atburða-
rásinni. „Hinir fjörutíu og fjórir
farþegar voru þeir sem áttuðu sig
fyrst á því hvað þyrfti til að takast
á við þann heim sem við hin sjáum
í dag,“ segir Greengrass. „Á meðan
almenningur sat skelfingu lostinn
og skildi ekki hvað fór fram sátu
farþegar United 93 frammi fyrir
spurningunni: Gerum við ekki neitt
og vonum það besta eða látum við
til skarar skríða, hvað sem það
kostar?“ bætir leikstjórinn við.
„Farþegarnir í fjórðu flugvélinni
voru meðal þeirra fyrstu sem vissu
við hvaða öfl var að etja.“
Greengrass vakti mikla athygli
fyrir kvikmyndina Bloody Sunday
þar sem sjónum var beint að því
hvað gerðist í Londonderry á
Norður-Írlandi árið 1972 þegar
breskir hermenn skutu á mann-
fjölda sem hafði safnast saman til
að mótmæla veru þeirra í landinu.
Myndin þótti ótrúlega sterk og
Greengrass fékk mikið lof fyrir
nálgun sína. „Það eru gerðar alls
kyns kvikmyndir; þær sem skipa
okkur í fylkingar, skemmta okkur
og fá okkur til að hlæja. Sumar fá
okkur til að ferðast um mikinn
ævintýraheim og láta okkur jafn-
vel skilja ástina en það er líka
pláss fyrir kvikmyndir sem sýna
okkur heiminn eins og hann er,“
segir Greengrass. - fgg
Saga fjórðu flugvélarinnar
PAUL GREENGRASS Vakti mikla athygli
fyrir kvikmyndina Bloody Sunday.
HINAR SÖNNU HETJUR? Farþegarnir sem voru um borð í flugi United 93 stóðu
frammi fyrir mjög siðferðislegri spurningu, áttu þeir að vona það besta eða láta til
sín taka?
[KVIKMYNDIR]
UMFJÖLLUN
Ljóðskáldið, rithöfundurinn og fylli-
byttan Charles Bukowski gerði rót-
lausu lífi örlagadrykkjumanns stór-
skemmtilega skil í skáldsögum
sínum Post Office, Factotum og
Women og byggði þær vitaskuld á
eigin reynslu.
Aðalsögupersónan og hliðarsjálf
höfundarins, Henry Chinaski,
þvældist í bókunum draugfullur á
milli skítadjobba, subbulegra leigu-
íbúða og lauslátra kvenna á milli
þess sem hann myndast við að
skrifa ljóð og smásögur í von um að
ná eyrum útgefenda.
Leikstjórinn Bent Hamer byggir
Factotum á samnefndri skáldsögu
Bukowskis en sækir einnig í önnur
verk höfundarins og tekst vel að
fanga subbulega og vínlegna stemn-
ingu bóka Bukowskis.
Myndin er hæg, tilbreytingarlít-
il og stefnulaus, rétt eins og rónalíf-
ið sem hún lýsir. Stefnuleysi og
hægagangur eru sjaldnast eftisókn-
arverðir þættir í kvikmyndum en
hér á þetta allt saman vel við og
myndin verður hvorki langdregin
né leiðinleg þar sem svart skopskyn
og kröftugur sögumannstextinn
sem Matt Dillon flytur með kæru-
leysistón drykkjusjúklingsins bind-
ur þetta allt saman í sterka heild.
Dillon fer vel með hlutverk
Chinaskis en einhvern veginn er
aðeins of mikil reisn yfir honum til
þess að honum takist að gera per-
sónuna jafn subbulega og skemmti-
lega og Mickey Rourke gerði í Bar-
fly árið 1987. Húmorinn í túlkun
Dillons er hins vegar lúmskari og
látlausari þannig að Chinaski verð-
ur mjög sannfærandi í höndum
hans. Chinaski er ekkert sérstak-
lega geðsleg persóna og Dillon tekst
vel að túlka skítalabbann sem hann
er en öðlast um leið samúð áhorf-
enda enda er alltaf einhver vonar-
neisti sem heldur honum á floti í
sollinum. Hann er andhetja sem
maður getur ekki stillt sig um að
standa með þrátt fyrir allt.
Factotum ætti því að falla í
kramið hjá aðdáendum Bukowskis.
Hún er gerð af virðingu við róna-
bækurnar og stendur nær texta höf-
undarins en Barfly. Galsinn í Barfly
gerði hana óneitanlega áhorfenda-
vænni á meðan þunglyndistóninn í
Factotum er svo drungalegur að
hann nálgast sænskan sósíalreal-
isma í áherslunni á niðurlægingu og
aumingjaskap. En svona á þetta að
vera og Factotum ætti að vekja
áhuga fólks á verkum höfundarins.
Ég get í það minnsta ekki stillt mig
um að grafa bækurnar upp og lesa
þær aftur. Þórarinn Þórarinsson
Rótlaus en heillandi róni
FACTOTUM
SÝND Á ICELAND FILM FESTIVAL
LEIKSTJÓRI: BENT HAMER
AÐALHLUTVERK: MATT DILLON,LILI
TAYLOR, MARISA TOMEI
Niðurstaða: Factotum er hæg, stefnulaus og
subbuleg rétt eins og textinn sem hún byggir
á þannig að það er ekki hægt að segja annað
en hér sé fín aðlögun á ferðinni. Myndin mun
gleðja aðdáendur Bukowskis og líklega afla
honum nýrra lesenda í leiðinni.
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
LITTLE MAN kl. 4, 6, 8 og 10
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 4 og 6
GRETTIR 2 ENSKT TAL kl. 4, 6, og 8
TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5.50, 8 og 10.10
MIAMI VICE kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
THE SENTINEL kl. 10.20 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4
TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
THREE BURIALS OF
MELQUIADES ESTRADA kl. 5.50
DAVE CHAPELLE´S BLOCK PARTY kl. 6
ENRON: THE SMARTEST
GUY IN THE WORLD kl. 6
VOLVER kl. 10
PARIS JE T´AIME kl. 8
FACTOTUM kl. 8
THE WIND THAT SHAKES THE BARLEY kl. 8
ANGEL A kl. 10.10
KITCHEN STORIES kl. 10.15
LITTLE MAN kl. 8 og 10
YOU, ME & DUPREE kl. 8 og 10.10
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 6
GRETTIR 2 ENSKT TAL kl. 6
TAKK FYRIR AÐ REYKJA
THANK YOU FOR SMOKING