Fréttablaðið - 04.09.2006, Blaðsíða 71

Fréttablaðið - 04.09.2006, Blaðsíða 71
Gleðitríóið Breiðbandið frá Kefla- vík hefur sent frá sér sína aðra plötu, sem nefnist Breiðbandið - Léttir á sér. Á meðal laga á plötunni eru Konurnar heim, Þingmaður fólks- ins, Í guðanna bænum og Elsku Helga Möller. Einnig er á plötunni grín og glens á milli laga eins og Breiðbandinu einu er lagið. Fyrsta plata Breiðbandsins, Breiðbandið - Af fullum þunga, kom út fyrir tveimur árum og þótti hress og skemmtileg. Er hún nú með öllu ófáanleg. Það er Geims- teinn sem gefur plötuna út. Upp- tökustjóri var Guðmundur Krist- inn Jónsson, fyrrum liðsmaður Hjálma, sem hefur m.a. tekið upp plötur með KK og Agli Ólafssyni með góðum árangri. Þess má geta að Breiðbandið verður í Íslandi í bítið á mánudagsmorgun þar sem nýja platan verður kynnt. Önnur plata Breið- bandsins komin út BREIÐBANDIÐ Gleðitríóið Breiðbandið hefur sent frá sér sína aðra plötu. [UMFJÖLLUN] TÓNLIST Ég verð að viðurkenna að ég var mátulega bjartsýnn með þessa nýju OutKast plötu. Þetta er kvik- myndaplata og þær eru oft hálf- gerð hliðarverkefni og svo voru síðustu þrjár OutKast plötur frá- bærar og einhvern veginn er maður vanur því að partíið klárist og botninn detti úr snilldinni á endanum. En það gerist ekki á Idlewild. Platan, sem að hluta til hefur að geyma tónlist úr væntan- legri kvikmynd þeirra OutKast- manna, er sneisafull af flottum popplögum og hún kraumar af sköpunargleði og skemmtilegum skringilegheitum. Idlewild er sjötta plata Out- Kast. Þeir Andre 3000 og Big Boi hafa frá upphafi farið með hip- hoppið á nýjar slóðir, en plöturnar þeirra hafa samt orðið sífellt skrítnari. Hér eru þeir að leika sér með hip-hop, r&b, popp, p-fönk, soul og rokk eins og á síðustu plöt- um, en blanda líka inn í þetta djasssveiflu (kvikmyndin Idlewild gerist á fjórða áratug síðustu aldar), lúðrasveitartónlist, rag- time, blús, gospel og trommu- slætti úr Karíbahafstónlist svo eitthvað sé nefnt. Það er auðvitað mjög áhættusamt að blanda saman svo miklu af ólíkri tónlist og eflaust auðvelt að klúðra því. En þeir Dre og Big Boi kunna þetta. Það er sama hvað þeir fá geggjað- ar hugmyndir. Alltaf tekst þeim að koma flottum melódíum að líka. Það eru mörg frábær lög á Idlewild. Of mörg til að telja þau öll upp, en ég nefni samt Mighty „O“, smáskífulagið Morris Brown, Call the Law, Idlewild Blue og lokalagið A Bad Note sem er eigin- lega 8 mínútna langt gítarsóló í anda P-fönk gítarhetjunnar Eddie Hazel. Idlewild festir OutKast í sessi sem eina af fremstu hljómsveitum heims. Platan er tæpar 80 mínútur að lengd og þó að öll lögin séu kannski ekki jafn góð er heildar- myndin mjög sterk og ég hefði alls ekki viljað hafa hana styttri. Ein af plötum ársins. Trausti Júlíusson Partíið heldur áfram OUTKAST IDLEWILD Niðurstaða: Þeir OutKast félagar Andre 3000 og Big Boi klikka ekki á Idlewild. Platan kraumar af sköpunargleði og er sneisafull af flottum popplögum. Ein af plötum ársins. Hljómsveitin Pan leggur í víking til Grænlands hinn 6. september þar sem hún spilar á tvennum tónleik- um. Annars vegar spilar sveitin á Inuit Culture Festival og hins vegar á Nipiaa Rock Festival. Sú síðar- nefnda er stærsta tónleikahátíð Grænlands þar sem bönd af mörg- um þjóðernum, þar á meðal frá Ítalíu og Noregi, koma fram í bland við grænlensku heimaböndin. Var Pan boðið að koma þar fram eftir að tónleikahaldarar heyrðu plötu þeirra, Virgins, sem kom út í fyrra- vor. Þetta verður í fyrsta sinn sem Panverjar spila fyrir utan lands- steinana. „Þetta er mjög spennandi. Maður veit ótrúlega lítið um landið miðað við hvað það er nálægt manni,“ segir Björgvin, gítarleik- ari Pan, um Grænlandsförina. Þeir sem vilja nánari upplýsing- ar um Pan er bent á heimasíðuna myspace.com/panband. Pan til Grænlands PAN Hljómsveitin Pan er á leiðinni til Grænlands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Joseph Stefano, sem skrifaði hand- ritið að kvikmyndinni Psycho, er látinn. Stefano, sem var 84 ára, skrifaði handritið upp úr sam- nefndri skáldsögu Roberts Bloch eftir að leikstjórinn Alfred Hitchcock hafði óskað eftir því. Stefano átti stóran þátt í að sturtuatriðið fræga varð eins hryllilegt og raun ber vitni. „Skáld- saga Bloch hófst á því að Marion Crane kemur á hótelið og er drep- in undir eins. Þar sem ég vissi ekk- ert um þessa stúlku var mér alveg sama um hana þegar hún var drep- in. Þess vegna breyttum við aðeins sögunni til að kynnast henni betur þannig að þegar hún yrði drepin hefði það meiri áhrif,“ sagði Stefano eitt sinn. Stefano samdi handrit að fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta. Meðal annars skrifaði hann hand- ritið að fimmtu Psycho-myndinni. Handritshöfundur Psycho látinn Í STURTUNNI Janet Leigh fór með hlutverk Marion Crane í kvikmyndinni sígildu Psycho. Hér sést hún í sturtuatriðinu fræga. Harry Morton, kærasti Lindsay Lohan, er á biðilsbuxunum ef marka má fréttir slúðurblaðanna í Ameríku en til hans sást þar sem hann var að kaupa trúlofunarhring í Cartier-versluninni í Beverly Hills. Talsmaður Mortons hefur staðfest þær sögusagnir að hann hafi verið að kaupa eitthvað sér- stakt í Cartier en hefur ekki gefið upp hvort hann hafi fjárfest í trú- lofunarhring. Lohan og Morton hafa verið óaðskiljanleg í allt sumar en þau hafa verið saman í fjóra mánuði. Hringur á fingur? BRÚÐKAUP Í VÆNDUM? Kærasti Lohan er sagður hafa keypt trúlofunarhring í Cartier. Skólinn verður settur 6. sept kl. 19 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.