Fréttablaðið - 04.09.2006, Blaðsíða 75
MÁNUDAGUR 4. september 2006 35
Á laugardagsmorgun voru Norður-
Írar á leiðinni á EM 2008. „Við
erum með frábært lið núna,“ sagði
leigubílstjórinn sem skutlaði mér
á völlinn. Ég hitti reyndar ekki á
sama bílstjórann á leiðinni frá
vellinum en það var í eina skiptið í
allri ferðinni sem ég hitti á leigu-
bílstjóra sem sagði ekki eitt stak-
asta orð alla bílferðina.
Norður-Írar féllu í gryfju sem
við Íslendingar þekkjum svo vel,
sér í lagi handboltaunnendur. Nokk-
ur góð úrslit í vináttuleikjum og
svo kemur skellurinn gegn nánast
óþekktu liði og það á heimavelli. Ég
vona að Íslendingar ofmetnist ekki
eftir þennan frábæra sigur, það er
langur vegur frá liði Norður-Íra til
landsliðs Dana þó svo að Íslending-
ar verði nú á heimavelli. Við höfum
aldrei unnið Dani á knattspyrnu-
vellinum og það er sannarlega tíma-
bært að komast yfir þann múr. En
íslenska liðið verður að vera raun-
sætt og markmið þess eiga að snú-
ast meira og minna um það að fá
sex stig gegn „lakari“ liðum í riðlin-
um og reyna að verjast eins vel og
kostur er gegn stærri liðunum, sér
í lagi á heimavelli. Útkoman er ef
til vill ekki skemmtileg fyrir augað
en það hefur margsannað sig að
þetta er eini raunhæfi kosturinn í
stöðunni.
Eftir skelfilega byrjun gegn
Trínidad og Tóbagó í London í
febrúar hefur Eyjólfur Sverrisson
nú sýnt og sannað hvers hann er
megnugur. Hann og aðstoðarmenn
hans unnu heimavinnu sína vel
fyrir leikinn og þorðu að taka
ákvarðanir sem einhverjir hefðu
leyft sér að efast um. Það þarf
kjark til að taka framherja úr liði í
ensku úrvalsdeildinni og setja
hann á bekkinn fyrir yngri og
reynsluminni mann sem hefur
varla fengið tækifæri í botnliði
þýsku úrvalsdeildarinnar.
Það sem ég hreifst mest af á
Windsor Park er að íslenska liðið
er loksins komið með góðan grunn.
Frábæra miðverði sem kalla ekki
allt ömmu sína og þá var ég sér-
staklega ánægður með þá Jóhann-
es Karl og Brynjar Björn sem léku
á miðjunni og tengdu saman vörn
og sókn. Þar tókst þeim afar vel
upp. Þetta eru þeir tveir sem hafa
verið hvað duglegastir að safna
spjöldunum í gegnum tíðina en nú
sýndu þeir á sér þá hlið sem er
öllu betri. Þeir sýndu agaðan og
yfirvegaðan leik án þess þó að
gefa tommu eftir. Þegar þessi
grunnur er orðinn jafn góður og
hann var um helgina er auðvelt
fyrir mann eins og Eið Smára Guð-
johnsen að leika lausum hala. Og
hann gerir alla betri í kringum sig
- flóknara er það ekki.
Það tekur tíma að byggja upp
gott landslið. Sérstaklega þegar
margir mánuðir geta liðið á milli
þess sem liðið hittist. En góðir
hlutir gerast hægt og við verðum
að halda áfram á þeirri braut sem
liðið er komið á - þrátt fyrir að við
töpum jafnvel fyrir Dönum enn og
aftur.
Góðir hlutir gerast hægt
Það er eðlilegt að vera í skýjunum eftir 3-0 sigur á Norður-Írum á útivelli. Þar með er þó ekki sagt að Ís-
lendingar séu á leiðinni til Austurríkis og Sviss, þar sem lokakeppni EM fer fram eftir tæp tvö ár.
GÓÐ LIÐSHEILD Byrjunarliðið náði einstaklega vel saman í leiknum gegn Norður-
Írlandi í fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍÞRÓTTALJÓS
EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON
skrifar frá Belfast.
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
FÓTBOLTI Í gær mættust Brasilía
og Argentína í vináttuleik í
knattspyrnu á Emirates Stadium,
heimavelli Arsenal. Brasilíumenn
unnu leikinn 3-0. Nokkur kunnug-
leg nöfn voru í báðum liðum en
hvorug þjóðin var með sitt
sterkasta lið.
Miðjumaðurinn Blumer Elano
skoraði tvö mörk fyrir Brasilíu en
þessi 25 ára gamli leikmaður
spilar með Shakhtar Donetsk í
Úkraínu. Það var svo Kaka,
leikmaður AC Milan, sem skoraði
síðasta mark leiksins eftir
frábæran sprett sem hófst á
vallarhelmingi Brasilíu. - dsd
Vináttuleikur í knattspyrnu:
Brasilía sigraði
Argentínu
BLUMER ELANO Leikmaður Shakhtar
Donetsk fagnar hér öðru marki sínu í
leiknum í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
RALL Frakkinn Sebastien Loeb
setti nýtt met í gær þegar hann
vann sigur í Japansrallinu. Þetta
var 27. sigur hans í ralli en gamla
metið átti Carlos Sainz. Þetta var
sjöundi sigur Loeb á árinu í ellefu
keppnum, sem er einnig met.
Næstur á eftir Loeb í gær var
Marcus Grönholm, aðeins 5,6
sekúndum á eftir Loeb. Þetta var
í fyrsta sinn sem Loeb sigrar í
Japansrallinu á ferlinum.
Sebastien Loeb er langefstur í
stigakeppni ökumanna með 102
stig en Marcus Grönholm með 69
stig í 2. sæti. Fimm mót eru eftir.
- dsd
HM í rallakstri:
Loeb vann og
setti tvö met
SEBASTIEN LOEB Fagnar hér sigri með
aðstoðarökumanni sínum.
FÓTBOLTI Ragnhildur Sigurðardótt-
ir og Ólafur Már Sigurðsson urðu
í gær stigameistarar GSÍ þegar
þau báru sigurorð á síðasta
stigamótinu sem fram fór á
Hvaleyri. Ragnhildur og Ólafur
Már eru bæði í GR.
Ólafur Már var efstur fyrir
mótið í gær en Ragnhildur komst
upp fyrir Tinnu Jóhannsdóttur, úr
GK, með sigrinum í gær. Tinna
gat ekki tekið þátt á mótinu vegna
náms í Bandaríkjunum. Annar í
stigakeppni karla var Sigurpáll
Geir Sveinsson úr GKJ. - dsd
KB-mótaröðin í golfi:
Ragnhildur og
Ólafur unnu
RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR Er
stigameistari kvenna í golfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR