Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.09.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 05.09.2006, Qupperneq 4
4 5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR GENGIÐ 4.9.2006 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 121,9623 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 68,79 69,11 131,05 131,69 88,44 88,94 11,853 11,923 10,878 10,942 9,483 9,539 0,5921 0,5955 102,42 103,04 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR JAPAN, AP Kiko prinsessa, tengdadóttir Akihitos Japans- keisara, mun eignast þriðja barn sitt með keisaraskurði á morgun, 6. september. Kyn barnsins hefur ekki verið gefið upp, en íhaldsmenn í Japan vona að það sé sveinbarn þar sem það myndi minnka til muna þrýstinginn á að breyta fornum reglum um erfðir krúnunnar. Ekkert sveinbarn hefur fæðst í keisarafjölskyldunni í 40 ár og því hefur það verið til umræðu að heimila að kona geti erft keisaratignina. Sé barnið drengur verður hann þriðji í ríkiserfðaröðinni á eftir Naru- hito krónprins og föður sínum, Akishino prins. - aa Japanska keisarafjölskyldan: Kiko prinsessa í keisaraskurð KIKO Prinsessan ásamt eiginmann- inum, Akishino prins. Síðasta mánuð meðgöngunnar hefur hún dvalið á sjúkrahúsi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÍKNIEFNI Alls hafa komið upp 37 fíkniefnamál hjá Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli það sem af er árinu. Alls hefur verið lagt hald á um tíu kíló af fíkniefnum, en það er sama magn og var gert upptækt allt árið í fyrra. Söluandvirði efn- isins er í kringum áttatíu milljónir króna. Þegar fjórðungur ársins er eftir hafa komið um fimm fíkniefnamál inn á borð tollgæslunnar í hverjum mánuði að jafnaði. Flest málin komu upp í febrúarmánuði síðast- liðnum eða sjö talsins. Í umrædd- um mánuði voru tveir Litháar stöðvaðir við komuna hingað til lands með töluvert magn af amfet- amínbasa, sem hefði að líkindum dugað til framleiðslu á um þrjátíu kílóum af amfetamíni. Þann 3. febrúar síðastliðinn var lagt hald á fjögur kíló af amfetam- íni, en það er nánast allt það amfet- amín sem Tollgæslan á Keflavík- urflugvelli hefur fundið í ár. Í því máli var um að ræða 26 ára íslensk- an karlmann sem var að koma frá París í Frakklandi með efnið falið undir fölskum botni í ferðatösku sinni. Magn amfetamínsins sem hald hefur verið lagt á í ár er nán- ast það sama og gert var upptækt allt árið í fyrra eða um fjögur kíló. Mun meira magn af amfetamíni hefur verið haldlagt hér á landi í ár en þessi tala gefur til kynna, nú síðast voru tveir Litháar gripnir af Tollgæslunni á Seyðisfirði með ell- efu kíló af amfetamíni falið í tveimur bifreiðum við komu sína hingað til lands með Norrænu. Það sem af er árinu hefur toll- gæslan lagt hald á tæp fimm kíló af kókaíni, en það er fimmfalt meira magn af kókaíni en gert var upptækt í fyrra. Þar munar mestu um mál síðan 9. ágúst síðastliðinn, þegar átján ára stúlka var stöðvuð í Leifsstöð með tvö kíló af kókaíni falin í farangri sínum. Hún var að koma frá London. Meðalaldur þeirra sem toll- gæslan hefur haft afskipti af vegna fíkniefnamála á árinu er um 25 ár. Átta þeirra voru undir tvítugu. Sá yngsti var sautján ára piltur sem tekinn var á dögunum með um hundrað grömm af kókaíni, sem hann hafði falið í endaþarmi. Hann var að koma frá Amsterdam í félagi við annan mann. Vegna ungs aldurs piltsins var barnaverndar- yfirvöldum gert viðvart. Af þessum 37 tilfellum voru Íslendingar viðriðnir rúmlega helming þeirra, tólf karlmenn og sjö konur. Í hinum átján málunum voru flestir útlendingarnir frá Danmörku eða í fjórum tilfellum. Ýmsar aðferðir við smygl hafa verið notaðar á árinu. Þá hafa flestir verið gripnir með fíkniefn- in á sér, ýmist í nærfötum, sokkum eða peningaveskjum. Tæplega fimmtugur íslenskur karlmaður reyndi að smygla um sjö hundruð grömmum af kókaíni inn til lands- ins í heimilistölvu og þá reyndi tæplega fertugur norskur karl- maður að smygla hassi inn til landsins í veiðarfæraboxi. Átta gerðu tilraun til að smygla efnum til landsins innvortis. Einn þeirra var 43 ára íslenskur karl- maður sem reyndi að smygla 25 grömmum af kókaíni og um sex grömmum af heróíni innvortis inn til landsins. Það er jafnframt eina tilfellið þar sem heróín hefur komið við sögu Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli á þessu ári. Nú síðast voru tveir arabar, búsett- ir hér á landi, gripnir með fíkni- efni innvortis við komuna til lands- ins. aegir@frettabladid.is Hafa náð tíu kílóum af fíkniefnum í ár Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur lagt hald á um tíu kíló af fíkniefnum það sem af er ári. Það er jafn mikið magn og allt árið í fyrra. Helmingur magns- ins er kókaín. Meðalaldur lögbrjótanna er tæplega 25 ár, sá yngsti var 17 ára. ALDURSSKIPTING SMYGLARA 9 17-20 ára18 20-30 ára 10 30-40 ára KÓLOMBÓ, AP Stjórnarher Srí Lanka hefur tilkynnt að Tamílatígrar hafi verið hraktir frá Sampúr-þorpi, sem liggur sunnan við Trincoma- lee í norðausturhluta landsins. Sampúr er á yfirráðasvæði Tamílatígra, samkvæmt vopnahléssamningnum frá 2002. Bein árás virðist því vera brot á samningnum, en stjórnarherinn heldur því fram að árásin hafi verið gerð í sjálfsvörn, þar sem Tígrarnir hafi haldið úti linnulausum árásum frá Sampúr. Tígrarnir hafa hins vegar biðlað til norrænu eftirlitssveitarinnar, SLMM, að staðfesta að um brot sé að ræða og hvort eiginlegt stríð hafi brotist út í landinu. Það verður í verkahring Lars Sölvbergs, nýjum verkefnisstjóra SLMM, að skera úr um þetta á næstu dögum, en talsmaður SLMM, Þorfinnur Ómarsson, sagði í viðtali við Fréttablaðið á dögunum að allar líkur væru á því að vopnahléssamningurinn hefði verið brotinn með sókninni. Upptök árásarinnar á Sampúr má rekja til bardagans um vatnsveituna í ágúst og er nú til skoðunar hjá SLMM að úrskurða um átökin sem hafa staðið síðan sem eina heild. Stjórnarherinn réðst þá á Tígrana af „mannúðarástæðum“, það er til að koma vatni til sinna skjólstæðinga. Ýmsir stjórnmálaskýrendur hallast nú að því að vatnsveitubardaginn hafi verið hentug afsökun til að framkvæma yfirstandandi stórsókn við Sampúr. - kóþ Stjórnarher Srí Lanka segist hafa náð Sampúr-þorpi af Tamílatígrum, sem hafi verið hraktir í burtu: Tamílatígrarnir segja eiginlegt stríð hafið HERMAÐUR STJÓRNARHERSINS KANNAR ÖKUTÆKI Vegatálmar eru við flestar alfaraleiðir á Srí Lanka og eru margir þjóðvegir með öllu lokaðir. Því er mikilvægt að stjórna höfninni við Trincomalee, því þaðan má flytja vistir um landið, til dæmis til Jaffna-skaga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP TEGUND EFNA OG MAGN Í GRÖMMUM 2006 2005 HASS 84 3, 9 56 41 ,9 AMFETAMÍN 40 00 ,7 39 40 ,1 KÓKAÍN 49 38 ,6 8 80 1, 6 AUSTURRÍKI, AP Natascha Kampusch, átján ára austurrísk stúlka sem fyrir skemmstu slapp úr klóm mannræningja, sem hafði haft hana í prísund sinni í átta ár, hefur ákveðið að koma fram í sjón- varpsviðtali. Það verður sýnt annað kvöld í austurríska ríkissjónvarp- inu. Mál hennar hefur vakið mikla athygli í Austurríki og víðar um heim, en til þessa hafa einungis birst myndir af henni sem teknar voru áður en henni var rænt fyrir átta árum, þegar hún var tíu ára. Andlit hennar verður þó hulið í sjónvarpsviðtalinu. Almenningur í Austurríki hefur beðið eftir því að hún tjái sig sjálf um árin, sem hún dvaldi í prísundinni. Fljótlega eftir að hún slapp út bað hún fjölmiðla að sýna sér biðlund, hún myndi tjá sig þegar hún teldi sig tilbúna til þess. - gb Natascha Kampusch: Kemur fram í sjónvarpsviðtali NATASCHA KAMPUSCH FINNLAND Yfir helmingur Finna myndi gefa vinnuveitanda sínum leyfi til að fylgjast með tölvu- póstsumferð sinni ef grunsemdir vakna um að leynilegar, vinnu- tengdar upplýsingar eru sendar út af vinnustaðnum. Vefútgáfa finnska dagblaðsins Helsingin Sanomat hefur látið gera könnun á þessu og segir að vinnuveitendur fengju að fylgjast með því við hvern launamaðurinn eigi tölvupóstssamskipti og hvenær. Vinnuveitandinn fengi hinsvegar ekki að lesa póstinn. - ghs Finnskur vinnumarkaður: Vinnuveitendur skoði tölvupóst Magni er orðið Á heimasíðunni leit.is er greint frá því í hverri viku hvaða orð á leitarvélinni eru mest notuð. Á 100 orða listanum er orðið „Magni“ í 3. sæti, í 19. sæti er „Rockstar supernova“ og í 29. sæti er „Supernova“. 762 fyrirspurnir voru lagðar fyrir leitarvélina með orðinu Magni síðustu sjö daga. DÆGRADVÖL

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.