Fréttablaðið - 05.09.2006, Síða 24
[ ]
Kajakmaðurinn Mummi segir
jaðaríþróttir snúast um út-
reiknaða áhættu og að hræðsla
hefti fólk í öllu sem það gerir.
Guðmundur Vigfússon er mjög
duglegur að hreyfa sig og rækta
líkamann. Líkurnar á því að þú
hittir hann á líkamsræktarstöð
eru samt engar, enda stundar hann
allar sínar íþróttir utandyra.
„Ég stunda straumkajakinn
mest og er líka mikið á wakebo-
ard. Það eru bretti sem maður er
dreginn á yfir öldur, til dæmis í
kjölfari báta. Ég er með 4 metra
háan ísklifurvegg í garðinum hjá
mér á veturna en get stundað
venjulegt klifur í honum á sumrin.
Svo er ég á snjóbretti og kytebo-
ard eða flugdrekabretti. Þá er
maður á vatni eða sjó og lætur
flugdreka draga sig,“ segir Guð-
mundur, eða Mummi eins og hann
er oftast kallaður.
„Ég er svona ofur-fíkill. Það
eru nokkur prósent okkar sem
þurfa svolítið meira og þetta snýst
um að vera með lausn fyrir hvern
dag fyrir sig. Ef ég kem seint heim
úr vinnu og orðið of dimmt til að
fara á kajak, þá get ég farið út í
garð að klifra.
Þegar ég var krakki var ég eins
og flestir að leita að einhverri
íþrótt sem ætti við mig. Ég prófaði
boltaíþróttir, frjálsar, karate og
meira að segja fimleika og fékk
bara aldrei neitt út úr því. Svo
fyrir fimmtán árum rakst ég á
snjóbretti í verslun sem ég fór í og
keypti það. Það var svona byrjun-
in á jaðarsportinu fyrir mér, fyrir
utan að ég er alinn upp við það í
Eyjum að príla í fjöllum og
spranga,“ segir Mummi um þessa
óhefðbundnu nálgun sína á íþrótt-
ir og hreyfingu. Hann segist mest
stunda straumkajakinn í dag og
þegar blaðið fór í prentun var
hann hæstur í Íslandsmeistara-
keppni í þeirri íþrótt en síðasta
mótið fer einmitt fram í dag.
Mummi segist ekki vera
spennufíkill og að jaðaríþróttir
þurfi ekki að vera hættulegar. „Ég
vil meina að þetta sé útreiknuð
áhætta. Áhættan sem þú tekur er
bara það sem þú treystir þér til að
gera og einblínir á að gera. Þannig
kemstu í gegnum það. Maður verð-
ur að gleyma því að eitthvað geti
farið úrskeðis og einbeita sér að
réttu leiðinni. Ef maður er að fara
á straumkajak niður stóra á sem
væri alveg hægt að deyja í má
maður ekki hugsa um þá stað-
reynd. Ef maður fer að horfa eftir
því hvar hættulegu staðirnir eru
aukast líkurnar á að maður lendi á
þeim. Maður má ekki hugsa um
það.“
Mummi segir að hræðslan leiki
fólk líka oft grátt. „Þar sem hug-
urinn fer, þar fer líkaminn. Ef það
er hræðslugen í þér verður það að
víkja, annars mun það hefta þig í
öllu sem þú gerir. Fólk á snjóbretti
stendur stundum ekki í lappirnar
bara af því að það er hrætt við að
detta.
Fimm ára dóttir mín stóð upp-
rétt alla brekkuna í fyrsta sinn
sem hún fór á bretti, bara af því að
hún var ekki hrædd. Svo er auðvit-
að til fólk eins og ég, sem vill
ganga aðeins lengra, prófa eitt-
hvað tvísýnt.“
Mummi hefur mikið starfað
með unglingum í gegnum árin og
oftar en ekki tekur hann unglinga
úr Hveragerði, þar sem hann býr,
með sér og leyfir þeim að prófa.
„Ég á mikið af búnaði og vill endi-
lega gefa þeim tækifæri til að vera
unglingar og nota orkuna í sport,
kenna þeim að njóta íþróttanna.
Ég vil hvetja þau til að gera
eitthvað annað en spila tölvuleiki
og leiðbeini þeim af stað. Ég hef
get þetta síðan ég var í skátastarfi
og maður fær eitthvað út úr því að
gefa af sér.“ Mumma er stundum
líkt við Íþróttaálfinn sem líka
kennir börnum og unglingum að
njóta íþrótta. „Ég mundi segja að
ég væri jaðarútgáfan af honum,“
segir hann hlæjandi að lokum.
einareli@frettabladid.is
Mummi sýnir listir sínar á flugdrekabretti.
Stöngin sem hann heldur á eru stjórntækin
fyrir flugdrekann.
Ísklifur í blautum fossi er ekki fyrir inni-
skræfur. Mummi í Hengladalsá.
Wakeboard mætti þýða sem öldubretti. Íþróttin gengur út á að stökkva á öldum og fram-
kvæma brögð í loftinu.
Mummi að sigla straumkajak afturábak niður fossinn Faxa, fyrst óvart og svo viljandi strax
á eftir.
Mummi er forfallinn jaðaríþróttamaður sem hefur verið að kenna unglingum að stunda
jaðaríþróttir og einnig hefur hann starfað með þeim í skátahreyfingunni. Á heimasíðunni
www.activeiceland.com má fá upplýsingar um ýmsar íþróttagreinar. LJÓSMYNDIR ÚR EINKASAFNI
Jaðarútgáfa Íþróttaálfsins
D-vítamín Framleiðsla líkamans fer minnkandi þegar daginn
fer að stytta og minna um sólarljós. Því er mikilvægt að muna eftir
lýsinu sem færir líkamanum góðan skammt af D-vítamíni.
Húð, hár og heilsuvörur
Förðunar lína
Kíktu á www.volare.is
Verðum í Egilshöll 7-11 sept.
09. sept. kl. 11:00 - 13:30 Hvað er
lifandi fæði? - Guðmundur Ragnar
Guðmundsson
12. sept. kl. 17:30 - 19:00
Helgi Valdimarsson
“Þarmafl óran og heilbrigði”
13. sept. kl. 18:00 - 21:00
Heilsukostur - Matreiðslunámskeið
19. sept. kl. 17:30 - 19:00
Sigurlín Guðjónsdóttir “Ayurveda”
Laugavegi 2 - 101 Reykjavík - Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is
������������ ������������������������������
�����������������������������������
�����������������������
�������������������
������������������� ����
Ljósheimaskólinn
Vegur til andlegs þroska og þekkingar
Skólinn er fyrir alla þá sem vilja kynnast fleiru en hinu efnislega og
öðlast víðari sýn á heiminn. Námið er byggt upp á fyrirlestrum,
fræðslu, hugleiðslu og öðrum æfingum. Það spannar 3 ár, alls 30
vikur árlega frá september til maí.
Námið hefst í annari viku september.
Nánari kynning á á www.ljosheimar.is
eða í síma 862-4545