Fréttablaðið - 05.09.2006, Side 36
5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Eiður Smári Guðjohnsen,
leikmaður Barcelona og
fyrirliði íslenska landsliðs-
ins í fótbolta, jafnaði
markamet goðsagnarinnar
Ríkharðs Jónssonar þegar
hann skoraði sautjánda
mark sitt fyrir landsliðið í
fræknum útisigri á Norður-
Írlandi um síðustu helgi.
Ríkharður, sem gerði
garðinn frægan með Skaga-
mönnum, setti metið árið
1951 og hélt síðan áfram að
bæta það næstu árin. Lagði
hann síðan skóna á hilluna
margfrægu árið 1965 eftir
afar farsælan feril.
Hann segir að það hafi
verið löngu kominn tími á
að metið yrði jafnað. „Þetta
er ekkert sem hryggir mig
þó að ég sé jafnaður eftir öll
þessi ár. Ég er ekki að gera
lítið úr einum eða neinum
þó ég segi að það hefði átt
að vera búið að þessu fyrir
löngu,“ segir Ríkharður.
„Ég er samt mjög ánægður
með það að fá að vera jafn-
fætis Eiði Smára fram að
Danaleiknum. Það er ekki
oft sem maður getur jafnað
sig við svona toppmenn,“
segir hann.
Ríkharður spilaði 33
landsleiki á um tuttugu ára
tímabili og telst því árang-
ur hans enn merkilegri ef
miðað er við það. Meðal
annars átti hann stórleik
gegn Svíum á Melavellinum
árið 1951 þegar hann skor-
aði öll mörk Íslands í 4-3
sigri.
Ríkharður sá landsleik-
inn gegn Norður-Írum og
heillaðist af spilamennsku
okkar manna. „Þetta er með
því albesta sem ég hef séð
til landsliðsins. Mér fannst
leikurinn alveg frábær og
frammistaðan yfirhöfuð
stórkostleg. Ég reiknaði
samt ekki með þessu því
jafntefli hefðu verið mjög
góð úrslit,“ segir hann og
vonast til að Eyjólfur
Sverrisson landsliðsþjálf-
ari nái að fylgja árangrin-
um eftir. „Það er ekkert
sem ætti að koma í veg fyrir
að Eyjólfur geti þetta. Það
var reyndar heldur ekkert
sem átti á koma í veg fyrir
að Ásgeir [Sigurvinsson,
fyrrverandi landsliðsþjálf-
ari] gæti þetta. Ég held bara
að fjöldinn átti sig ekki á
því hvað þetta er mikið
stemningsmál.“
Ríkharður segir að Eiður
Smári sé toppspilari. „Þó
mér finnist hann góður þá
hef ég alltaf á tilfinning-
unni að hann geti mikið
meira en hann hefur sýnt.
Það kom fram í þessum leik
og hann var virkilega að
njóta sín. Það fer ekki á
milli mála að hann er topp-
spilari enda væri hann ekki
þarna sem hann er. Hann er
einn af okkar bestu mönn-
um og verður það áfram og
vonandi helst þetta áfram
hjá honum.“
Íslendingar taka á móti
Dönum á morgun. Ríkharð-
ur segir það vont fyrir
íslenska liðið að mæta því
danska eftir leikinn gegn
Norður-Írum. „Ég hefði vilj-
að að þetta væri lið sem
hefði spilaði álíka fótbolta
og við, eins og Finnar, Svíar,
Englendingar eða Norð-
menn. En Danirnir spila allt
annan fótbolta með stuttu
spili,“ segir Ríkharður, sem
vonast engu að síður eftir
góðum úrslitum. „Við höfum
aldrei unnið Dani þannig að
jafntefli væri mjög góður
árangur í framhaldi af þess-
um leik,“ segir hann og er
greinilega með báða fætur
á jörðinni.
freyr@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sóley Kristinsdóttir
Dalbraut 27,
sem andaðist mánudaginn 28. ágúst, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 7. septemb-
er kl.15.
María Anna Þorsteinsdóttir Rúnar E. Indriðason
Kristinn E. Pétursson Björk Þórarinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, dóttur og systur,
Ástu Unnar Jónsdóttur
Gullengi 39, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi og séra Anna Sigríður
Pálsdóttir.
Eyjólfur Guðsteinsson
Inga Birna Guðsteinsdóttir Róbert Már Ingvason
Inga Hilmarsdóttir Jón Ingvarsson
og bræður.
Elskaður eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, tengdasonur, bróðir og
mágur,
Árni Stefán Árnason
matreiðslumeistari, Þrastarási 12,
Hafnarfirði,
lést á Líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 30.
ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar-
kirkju fimmtudaginn 7. september klukkan 13.00.
Kristín Þóra Kristjánsdóttir
Arna Þórdís Árnadóttir Sigurþór Hjalti Gústafsson
Svava Dagný Árnadóttir
Óðinn Birgir Árnason
Svava Sverrisdóttir Árni Stefánsson
Þórdís A. Sigurjónsdóttir Kristján B. Einarsson
Hjördís Árnadóttir
Sigurbjörg Árnadóttir
Gísli Sverrir Árnason Guðrún Baldursdóttir
Guðlaug Árnadóttir Hólmgrímur Elís Bragason
Gauti Árnason Ragnheiður Rafnsdóttir
Hrefna Kristjánsdóttir Magnús Hafsteinsson
Einar B. Kristjánsson Árný Eiríksdóttir
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður, stjúpföð-
ur, tengdaföður, afa og langafa,
Bjarka Magnússonar
læknis, Laugarnesvegi 87, Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Birna Friðgeirsdóttir
Magnús K. Bjarkason Guðlaug Pálmadóttir
Hólmfríður Bjarkadóttir Páll E. Ólason
Anna Elín Bjarkadóttir
Nanna Snorradóttir Herleifur Halldórsson
Rósbjörg Jónsdóttir
Valgerður G. Bjarkadóttir Orri Jóhannsson
afabörn og langafabarn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þórdís Gísladóttir
Klapparstíg 5, Akureyri,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 30. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju miðvikudaginn
6. september kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
að láta kvenfélagið Baldursbrá eða F.S.A. njóta þess.
Andrés Bergsson
Arnar Andrésson Hrefna Kristín Hannesdóttir
Gísli Andrésson Ingibjörg Jónsdóttir
Jón Andrésson Margrét Pálsdóttir
Guðrún Andrésdóttir Jakob Tryggvason
ömmu- og langömmubörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Hjördísar Jónsdóttur
Einilundi 10e, Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Halldór Kristjánsson
Kristján Halldórsson Olga Guðnadóttir
Sólveig Halldórsdóttir Garðar Jóhannsson
Harpa Halldórsdóttir Kristján Guðnason
Halla Bergþóra Halldórsdóttir Brynjar Bragason
Hjördís Halldórsdóttir Magnús Rúnar Magnússon
Sólveig Hjaltadóttir
ömmu- og langömmubörn.
SKAGAMAÐURINN RÍKHARÐUR JÓNSSON: FAGNAR METJÖFNUN EIÐS SMÁRA GUÐJOHNSEN
Skoraði 17 mörk í 33 leikjum
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Árni Kristinn Hansson
áður Digranesvegi 62, Kópavogi,
sem lést 24. ágúst, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
Kefas, Fagraþingi 2A,Vatnsenda, Kópavogi
miðvikudaginn 6. september kl 15.00. Þeim sem vildu
minnast hans er bent á minningarsjóð sem hefur verið
stofnaður og ber hans nafn. Sjóðnum er ætlað að vera
til styrktar þeim sem minna mega sín í þjóðfélagi
okkar. Upplýsingar í síma 862 8180.
Björg R. Árnadóttir Ármann J. Lárusson
Ingibjörg Árnadóttir
Ragnheiður D. Árnadóttir Bragi Sigurjónsson
afabörn og fjölskyldur.
RÍKHARÐUR JÓNSSON Ríkharður var mikill markaskorari á árum áður og skoraði meðal annars fjögur mörk
gegn Svíum á Melavellinum.
Nóbelsverðlaunahafinn Móðir
Teresa dó á þessum degi, 87
ára gömul. Fékk hún
hjartaáfall á aðalskrif-
stofum trúboðsstöðvar-
innar Charity í Kalkútta
á Indlandi.
Þessi heimsfræga
nunna hafði barist við
erfið veikindi í þó nokk-
ur ár áður en hún féll
frá. Þegar fréttir bárust
af andláti hennar sagði
páfinn að þarna færi
kona sem hefði sett mark sitt á
sögu aldarinnar.
Móðir Teresa var skírð Agnes
Bojaxhiu þegar hún fæddist í litlu
þorpi rétt fyrir utan Skopje í Make-
dóníu. Hún tók nafnið Systir Teresa
í klaustri á Írlandi en var þjálfuð af
Loreto-systrunum þar
ytra. 1948 setti hún svo
á stofn sína eigin reglu
og hóf hjálparstörf í
fátækrahverfum Kalk-
úttaborgar á Indlandi.
Hindúar gagnrýndu
hana á stundum, töldu
hana reyna um of að
kristna hina fátæku.
Frjálslynt fólk á Indlandi
gagnrýndi hana líka en
þá fyrir íhaldssöm viðhorf hennar
hvað varðaði fóstureyðingar og
getnaðarvarnir. Restin af heimin-
um lítur á nafn hennar sem tákn
fyrir góðmennsku og samhug.
ÞETTA GERÐIST: 5. SEPTEMBER 1997
Móðir Teresa fellur fráFREDDIE MERCURY HEFÐI ORÐIÐ
SEXTUGUR Í DAG
„Ég vissi alltaf að ég væri
stjarna og núna virðist öll
heimsbyggðin vera orðin
sammála mér.“
Freddie Mercury, fyrrum söngvari
Queen, hefði orðið sextugur í dag. Hann
lést úr alnæmi árið 1991, aðeins 45 ára.