Fréttablaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 44
5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR32
Ástralska sjónvarpsstjarn-
an Steve Irwin, eða „Krókó-
dílaveiðimaðurinn“, lést
eftir að stingskata stakk
hann í brjóstið í köfunar-
ferð í gær.
Irwin, sem var 44 ára gamall, var
við vinnu á nýrri heimildarmynd
um kóralrif undan ströndum Norð-
austur-Queenslands, þegar atvikið
átti sér stað. Irwin hafði helgað líf
sitt gerð sjónvarpsefnis um krók-
ódíla og önnur óargadýr og þótti
mörgum hann vera einum of fífl-
djarfur í nágrenni villidýranna.
Varð það honum að bana í gær
þegar hann synti of nálægt einni
skötunni. Hafa þær eitraðan gadd á
halanum sem þær beita ósjálfrátt
ef þær verða hræddar. Aðeins er þó
vitað til þess að einn maður hafi lát-
ist af völdum skötunnar í Ástralíu,
það var fyrir 61 ári. Irwin lést nær
samstundis. Hann lætur eftir sig
eiginkonu og tvö börn.
Til merkis um fífldirsku Irwins
þá vakti hann hörð viðbrögð víða
um heim þegar hann hélt á eins
mánaðar gömlum syni sínum aðeins
einum metra frá krókódíl fyrir
nokkrum árum. Töldu margir að
hann hefði farið algjörlega yfir
strikið með athæfinu.
Irwin var þekktur fyrir sjón-
varpsþátt sinn The Crocodile Hunt-
er sem hefur verið sýndur á sjón-
varpsstöðinni Animal Planet. Hann
var einnig tíður gestur í kvöldþætti
Jay Leno og átti þar auðvelt með að
vekja athygli fólks á hinum ýmsu
dýrum, enda afar hress náungi að
eðlisfari. ■
Krókódíla-Steve látinn
HJÓN Steve, sem var 44 ára þegar hann lést, heldur utan um krókódíl. Með honum
er eiginkonan Terri. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
IRWINS MINNST Aðdáendur Steves Irwin leggja blóm til minningar um hann fyrir
utan dýragarð í Beerwah, heimabæ Irwins. Hans verður sárt saknað, sér í lagi í
heimalandi hans Ástralíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STINGSKATA Stingskata varð Steve Irwin
að bana í köfunarferð í gær.
Jóhannes Jónsson, kaupmaður
kenndur við Bónus, hyggst koma að
gerð kvikmyndar um Baugsmálið.
„Ég sé fyrir mér leikna heimildar-
mynd um málið. Þetta er skólabók-
ardæmi um hvernig embættis-
mannakerfið getur misstigið sig og
hvernig stjórnvöld geta leikið með
þegna sína ef ekki er rétt að stað-
ið.“
Að sögn Jóhannesar fjármagnar
Baugur gerð myndarinnar að hluta
til en hann vill ekki gefa upp hver
skrifar handrit og leikstýrir. „Ég vil
ekki greina frá því að svo stöddu,
fyrir utan að við erum í sambandi
við áhugasama menn, sem eru engir
aukvisar í kvikmyndabransanum.
Þeir eru vel upplýstir um gang
málsins og umfang þess í heild.“
Myndin er enn á frumstigi en
Jóhannes hefur gantast með að Örn
Árnason væri kjörinn í hlutverk
Davíðs Oddssonar. „Það má heldur
ekki gleyma Magnúsi Ólafssyni,
hann hefur leikið Davíð áður og
gert það vel. Ég mun líklega leika
sjálfan mig, það er að segja ef ég
verð ekki orðinn fjörgamall þegar
þessu máli verður loksins lokið,“
segir Jóhannes en áréttar að honum
sé full alvara með myndin verði
gerð. „Ég gæti trúað að myndin
verði tilbúin ári eftir að Baugsmál-
inu lýkur, hvenær sem það verður.“
- bs
Jóhannes vill Baugsmálið í bíó
JÓHANNES JÓNSSON Vill ekki gefa upp
hver skrifar handrit og leikstýrir mynd-
inni um Baugsmálið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hljómsveitirnar Bloodhound
Gang, Dr. Mister & Mr. Handsome,
XXX Rottweiler og Touch halda
tónleika í Laugardalshöll í kvöld.
Hin bandaríska Bloodhound
Gang, sem hefur haldið tvenna
tónleika hér á landi, hefur átt mörg
vinsæl lög í gegnum tíðina. Á
meðal þeirra er The Bad Touch
sem kom út árið 1999 á plötunni
Hooray for Boobies. Textar sveit-
arinnar hafa jafnan þótt umdeildir,
rétt eins og textar bæði XXX Rott-
weiler og Dr. Mister & Mr. Hand-
some.
Dr. Mister & Mr. Handsome
hafa vakið mikla athygli undanfar-
ið og er búist við þeim sjóðheitum
á tónleikunum. . XXX Rottweiler
koma sterkir inn eftir að hafa horf-
ið hver í sína áttina til að safna
kröftum. Koma þeir væntanlega
tvíefldir til baka.
Miðasala á tónleikana fer fram
í skor.is í Kringlunni og Smáralind
og á midi.is. ■
Sjóðheitir tónleikar
BLOODHOUND GANG Bandaríska hljómsveitin heldur sína þriðju tónleika hér á landi
í kvöld.
4.500 gestir hafa sótt alþjóðlegu
kvikmyndahátíðina IIFF sem hófst
fyrir helgi og eru aðstandendur
hátíðarinnar afar ánægðir með
mætinguna.
Tíu mynda passar hafa jafnframt
selst vel og eru þeir nú uppseldir.
Hugsanlega verða þó fleiri settir í
sölu bráðlega.
Tvær íslenskar myndir verða
frumsýndir á hátíðinni í þessari viku.
Á morgun verður sýnd í Háskólabíói
kung-fu myndin Öskrandi api, ballett
í leynum og á fimmtudag verður
sýnd í Smárabíói heimildarmyndin
Þetta er ekkert mál, sem er um ævi
Jóns Páls Sigmarssonar. ■
IIFF-hátíðin fer vel af stað
EKKERT MÁL Heimildarmyndin Þetta er ekkert mál verður frumsýnd á fimmtudag.
Frétta- og samfélagsrýnisvefur-
inn baggalutur.is sneri aftur eftir
sumarfrí síðastliðinn fimmtudag.
Vefurinn hefur tekið nokkrum
breytingum í tilefni af fimm ára
afmæli Baggalúts en fyrsta frétt-
in birtist á vefnum í september
árið 2001. Voru fréttirnar í gær
orðnar 3.530 talsins.
„Þetta er orðið uppfærslu-
vænna. Þetta verður einfaldara
og einfaldara með hverju árinu,“
segir Bragi Baggalútur. „Þarna
eru inni liðir sem hafa vakið
lukku. Við erum byrjaðir aftur
með þrífarana. Það var mikið
kvartað þegar þeir hurfu á braut,“
segir Bragi. „Kannski dettur
síðan inn eitt og eitt kvæði.“
Að sögn Braga byrjuðu þeir
félagar að dunda sér við síðuna
fyrir fimm árum til að æfa sig í
vefsíðugerð. „Við vorum að senda
þetta á milli okkar og svo komst
fólk í þetta,“ segir hann.
Bragi býst ekki við neinni
flugeldasýningu í tilefni afmæl-
isins. „Það er spurning með 200
metra köku, eða kannski fimm
metra,“ segir hann og hlær. „Ef
menntamálaráðuneytið sér
ástæðu til að heiðra okkur þá
mætum við kannski á svæðið og
líka ef forsetinn býður okkur í
kaffi.“
Næst á dagskrá hjá Baggalúti
er að fara á tónlistarhátíð þann
21. þessa mánaðar í Berlín. „Fyrir
algjöra tilviljun ákváðu einhverj-
ir Þjóðverjar að velja Baggalút
sem fulltrúa Íslands á þessa
hátíð. Það er næst á dagskrá en
við eigum í mestu vandræðum
með að fara þarna út. Við mætum
samt með hattana og góða skapið
meðferðis,“ segir Bragi. ■
Baggalútur 5 ára
BAGGALÚTUR Frétta- og samfélagsrýnivefurinn baggalutur.is er orðinn fimm ára gamall.