Fréttablaðið - 05.09.2006, Qupperneq 48
36 5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
> HK kærði aftur
Kæru HK vegna félagaskipta markvarðarins Egidijusar Pet-
keviciusar úr Fram í HK var vísað frá í gær vegna formgalla
en HK-menn stóðu ekki nógu vel að kærunni. Þeir létu það
ekki stöðva sig heldur lögðu inn nýja
kæru vegna málsins í gær. Forsaga
málsins er sú að Petkevicius
taldi sig lausan allra mála hjá
Fram, þar sem félagið var búið að
kveðja hann og þakka honum fyrir
samstarfið. Hann samdi því við HK
en þegar til kastanna kom neitaði Fram
að sleppa markverðinum nema gegn
greiðslu sem á að vera hálf milljón
króna að því er Petkevicius heldur fram.
Niðurstaða ætti að fást í næstu viku.
Daninn Peter Gravesen, leikmaður Fylkis,
verður að sjálfsögðu á Laugardalsvellinum
á morgun þegar landar hans sækja
Ísland heim í undankeppni EM.
Leikurinn er einnig sérstakur fyrir
þær sakir að bróðir Peters verður
í eldlínunni með Dönum en eldri
bróðir Peters er stórstjarnan Thomas
Gravesen, leikmaður Real Madrid.
„Ég held að þetta verði erfiður
leikur fyrir Danmörk enda
er Ísland með sterkara lið
en margan grunar og
það væri heimskulegt
af Dönum að van-
meta íslenska liðið,“
sagði Peter sem sá
landsleik Íslands og
Norður-Írlands en
vissi lítið um íslenska liðið fyrir leikinn. Hann
segir úrslit þess leiks sýna að Danir verði að
hafa verulega fyrir hlutunum ef þeir ætla
sér sigur á Laugardalsvellinum.
Peter ætlar að reyna að hitta bróður
sinn á meðan hann verður á landinu
en það verða engin matarboð enda fá
leikmenn liðsins ekki að hreyfa sig mikið
út af hótelinu.
„Reglurnar eru mjög strangar og
hann fær ekki einu sinni að sjá
hvar ég bý. Liðið þarf alltaf að
vera saman en ég vissi af
þessu og verð að taka
því. Ég mun fara
niður á hótel og
hitta hann í
staðinn. Ég
er búinn að
ræða við hann um leikinn en gat ekki gefið
honum nein hernaðarleyndarmál,“
sagði Peter og hló dátt en hann er
nokkuð sigurviss.
„Ég held að leikurinn fari 2-0 fyrir
Danmörk. Ég mun styðja Danmörk
á vellinum en ég ber samt til-
finningar til íslenska liðsins
og ég mun hafa samúð
með þeim er þeir tapa,“
sagði Peter og hló enn
hærra en áður.
„Mér þykir mjög
vænt um Ísland enda
líður mér mjög vel
hér. Íslenska liðið gæti
komið á óvart og ég
vona að þeir spili vel en
ekki of vel.“
PETER GRAVESEN, LEIKMAÐUR FYLKIS: STYÐUR DANI EN BER TILFINNINGAR TIL ÍSLANDS
Mun hafa samúð með Íslendingum er þeir tapa
FÓTBOLTI Íslenska knattspyrnu-
landsliðið fékk flugstart í undan-
keppni EM þegar það lagði Norð-
ur-Íra ytra, 0-3, á laugardag. Liðið
kom heim á sunnudagskvöld og
æfði síðan á ÍR-vellinum í gær-
morgun. Eftir það var gefið frí.
„Það er mjög gott ástand á
hópnum og allir tóku þátt á æfing-
unni á ÍR-vellinum. Við gáfum
mönnum síðan frí út daginn enda
er liðið búið að vera mikið saman
og menn höfðu gott af því að fá
aðeins frí hver frá öðrum,“ sagði
Bjarni Jóhannsson, aðstoðarþjálf-
ari landsliðsins, en nokkrar
áhyggjur voru af Kára Árnasyni
en hann æfði í gær og ætti að
verða klár í slaginn á morgun.
„Við munum taka eina æfingu
seinni partinn á þriðjudag og það
verður lokaæfingin fyrir leikinn.
Við munum nýta þessa æfingu í að
fínpússa ákveðna hluti og við
eigum eftir að fara vel yfir leik
þeirra,“ sagði Bjarni en hann segir
ljóst að nokkrar áherslubreyting-
ar verði á leik liðsins frá leiknum
á laugardag.
„Við munum mæta eina best
spilandi liðinu í Evrópu í dag og
þeir sparka boltanum ekki fram
völlinn eins og Írarnir heldur spila
þeir upp völlinn. Þeir eru mjög
liprir og sérstaklega hættulegir
fram á við. Við verðum að gæta
þess að þeir komist ekki upp
vængina því þeir eiga sterka
skallamenn og það þarf að passa
að þeir fái sem minnsta þjónustu.
Við munum reyna að ná boltanum
af þeim hvar sem er á vellinum.
Hugarfarið þarf líka að vera eins
og gegn Írum og Spánverjum.
Númer eitt er að forðast að fá á sig
mark,“ sagði Bjarni en hann er
geysilega ánægður með andann og
stemninguna í hópnum.
„Stemningin er alveg frábær
og vikan í Belfast heppnaðist mjög
vel. Við verðum að byggja ofan á
það og vonandi að menn átti sig á
því að við verðum ekki heims-
meistarar þó við sigrum Norður-
Írland,“ sagði Bjarni Jóhannsson.
henry@frettabladid.is
Allir komu heilir heim frá Belfast
Íslenska landsliðið í knattspyrnu sneri heim frá Belfast á sunnudagskvöld og er enginn leikmanna liðsins
tæpur fyrir Danaleikinn á morgun. Aðstoðarþjálfarinn segir frábæra stemningu í hópnum.
FLOTTUR Eiður Smári tók sig vel út með
eyrnalokkinn á æfingunni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÍF OG FJÖR Það er einstaklega góð stemning í íslenska landsliðshópnum þessa dagana og bæði leikmenn og þjálfarar skemmtu
sér vel á æfingu á ÍR-vellinum í gær. Hér hlæja Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari dátt að ein-
hverju skemmtilegu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Daninn Peter Gravesen
meiddist illa í leik gegn FH í upp-
hafi ágústmánaðar en hann skadd-
aði liðband og liðþófa. Ekki var
búist við því að Gravesen myndi
leika meir með Fylki í sumar en
hann hefur verið á góðum bata-
vegi.
„Sár mín eru venjulega fljót að
gróa og það er engin undantekning
á því núna. Ég ætla að láta reyna á
hnéð í fyrsta skipti í dag [í gær.
innsk. blm.] og vonandi gengur
það vel. Mér liður orðið mjög vel í
hnénu og vonandi get ég leikið
hálfleik gegn Keflavík um næstu
helgi og síðan báða hina leikina.
Það er takmarkið en maður veit
samt aldrei almennilega með
hnémeiðsli fyrr en maður lætur
reyna á þau,“ sagði Gravesen
brattur í gær en hann var algjör
lykilmaður hjá Fylki í sumar og
hafa Árbæingar saknað hans sárt
síðustu vikur.
„Ef það gengur ekki þá mæti ég
bara enn sterkari til leiks næsta
sumar en ég er með samning við
Fylki og ætla mér að virða hann.
Þetta lið á mikið inni og vonandi
verðum við í toppbaráttu næsta
sumar,“ sagði Gravesen sem er
ánægður með lífið og tilveruna á
Íslandi.
- hbg
Bati Peters Gravesen, leikmanns Fylkis, er mun betri en í fyrstu var talið:
Stefnir á að spila síðustu tvo
leikina í deildinni með Fylki
ÁNÆGÐUR Í ÁRBÆNUM Peter Gravesen kann vel við sig hjá Fylki og ætlar að leika
áfram með liðinu næsta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Enski landsliðsframherj-
inn Michael Owen er floginn vest-
ur um haf, nánar tiltekið til Color-
ado í Bandaríkjunum, þar sem
hann mun leggjast undir hnífinn
hjá hinum eina sanna Richard
Steadman sem sker upp alla bestu
íþróttamenn heims.
„Ég fer í aðgerðina á næstu
tveim dögum. Það er nauðsynlegt
að fara í þessa aðgerð og ég get í
raun ekki beðið eftir henni því það
verður léttir að vera búinn með
hana og geta síðan horft fram á
veginn,“ sagði Owen í gær en hann
sleit nánast allt sem hægt var að
slíta í hnénu á sér á HM í sumar.
Hann mun væntanlega ekkert
spila með Newcastle á þessu tíma-
bili.
- hbg
Michael Owen:
Á leið í aðgerð í
Colorado
MICHAEL OWEN Sést hér á leið upp í
flugvél sem flutti hann frá Þýskalandi til
Englands í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Spænski landsliðsfram-
herjinn Fernando Torres hefur
bundið enda á vangaveltur um
framtíð sína í bili með því að fram-
lengja samning sinn við Atletico
Madrid til ársins 2009. Fjölmörg
félög báru víurnar í þennan 22 ára
gamla strák í sumar en hann hefur
ákveðið að halda tryggð við Atlet-
ico.
„Ég átti tvö ár eftir af samningi
mínum og þrátt fyrir öll lætin í
sumar þá er ég hér enn. Ég er
mjög sáttur við að vera hér áfram
því fólk metur mig að verðleikum
hér hjá félaginu,“ sagði Torres.
- hbg
Fernando Torres:
Framlengir við
Atletico
FERNANDO TORRES Spilar áfram á
Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
BOX Fyrrverandi heimsmeistarinn
Prins Naseem Hamed er laus úr
fangelsi en hann hefur dúsað þar
síðustu sextán vikur en hann var
alls dæmdur í fimmtán mánaða
fangelsi fyrir glæfraakstur.
Hamed hefur hegðað sér vel innan
veggja fangelsisins og fær því að
sleppa snemma.
Hamed tók fram úr bíl en valdi
ekki besta staðinn því hann keyrði
beint framan á bíl sem kom úr
gagnstæðri átt. Ökumaður hins
bílsins braut aðalbein í öllum hlut-
um líkamans og eiginkona öku-
mannsins slasaðist einnig nokkuð
illa. Ökumaðurinn segist vera
hneykslaður á því að Hamed sé
sleppt svo snemma úr steininum.
- hbg
Prins Naseem Hamed:
Laus úr fangelsi
LAUS ÚR FANGELSI Prins Naseem
Hamed var sleppt snemma úr steinin-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES