Fréttablaðið - 05.09.2006, Page 54
5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR42
HRÓSIÐ FÆR …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Krossköngulær
2 1. júní 2007
3 Frá Afríku
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT
2 líkamshluti 6 hljóm 8 hryggur 9 sníkjudýr
11 dreifa 12 æxlunarfæri blóms 14 stó 16
rás 17 skýra frá 18 fát 20 til 21 auma.
LÓÐRÉTT
1 hirsla 3 í röð 4 ítalskur ofnréttur 5 skjön
7 ríkur 10 haf 13 greind 15 komst 16 þjálfa
19 tveir eins.
LAUSN
„Hærri laun? Þú verður bara að
giska á það sjálfur. Ég ætla ekki að
tjá mig um mín prívatmál. En ég
held að allir viti að Ríkissjónvarp-
ið er nú ekki það fyrirtæki sem
borgar best launin. En það er
margt annað sem skiptir máli,“
segir Kristján Kristjánsson
sjónvarpsmaður.
Kristján er nú að söðla um.
Hann er að hætta á Kastljósi
Ríkissjónvarpsins og tekur
við starfi hjá FL Group. Á
laugardag greindi Fréttablað-
ið frá því að að Helgi Selj-
an væri að hefja störf í
Kastljósi en frá því var
gengið á fimmtudaginn
að Kristján væri að
hætta í þættinum. Því
má ljóst vera að þeir Páll Magnús-
son sjónvarpsstjóri og Þórhallur
Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss,
hafa ekki haft neinar vöflur á og
verið fljótir að festa öngla sína í
Helga sem arftaka Kristjáns.
„Já, þeir voru snöggir að því
þegar ákvörðun mín lá fyrir.
Enda vanir menn,“ segir
Kristján.
Nákvæm starfslýsing
Kristjáns hjá FL Group ligg-
ur ekki fyrir. Kristján segir
það allt koma betur í ljós
þegar hann hefur störf hjá fyrir-
tækinu.
„Ljóst er að ég er ekki talsmað-
ur eða upplýsingafulltrúi í þeim
skilningi enda FL Group ekki á
neytendamarkaði. En starf mitt
lýtur meðal annars að upplýsing-
um, ímynd, markaðsmálum og
samskiptum við Kauphöll.“
Kristán er síður en svo græn-
jaxl í málefnum er snúa að við-
skiptalífinu því hann starfaði í
mörg ár á Viðskiptablaðinu. Og nú
kveður hann Kastljósið eftir sex
ár. Með söknuði og tár á hvarmi.
„Það segir sig sjálft. Frá-
bær hópur og afspyrnugott fólk á
öllum póstum. Bæði þeir sem
vinna baksviðs og þeir sem á
skjánum eru. Reyndar
má segja svo um allt
mitt samstarfsfólk á
Ríkissjónvarpinu og
undanskil ég þar
engan.“- jbg
Kristján kveður Kastljós og heilsar Kauphöll
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
Kveður samstarfsfólk sitt með tár
á hvarmi.
PÁLL MAGNÚSSON Var
fljótur að næla önglum
sínum í Helga þegar
ákvörðun Kristjáns lá
fyrir.
LÁRÉTT: 2 háls, 6 óm, 8 bak, 9 lús, 11 sá,
12 fræva, 14 arinn, 16 æð, 17 tjá, 18 fum,
20 að, 21 arma.
LÓÐRÉTT: 1 hólf, 3 áb, 4 lasanja, 5 ská, 7
múraður, 10 sær, 13 vit, 15 náði, 16 æfa, 19
mm.
Norsk-íslenska myndin The Both-
ersome Man hefur heldur betur
slegið í gegn en hún var að mestu
leyti tekin upp hér á Íslandi. Þeir
Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp
hjá Kisi ehf. eru meðframleiðend-
ur myndarinnar en hún segir frá
fertugum Norðmanni sem kemur
til undarlegrar borgar og upp-
götvar að hann er staddur í
lífinu eftir dauðann.
Myndin hefur þegar
unnið til nokkurra verð-
launa, þar á meðal gagn-
rýnendaverðlaunin ACID
í Cannes og leikstjóraverð-
launin á Karlov Vary-hátíð-
inni í Tékklandi. Þá mun The Both-
ersome Man einnig vera
þátttakandi á hinni virtu Toronto-
kvikmyndahátíð þar sem hún verð-
ur sýnd í World Cinema og Discov-
ery-flokknum.
Ingvar Þórðarson var að vonum
mjög ánægður með þær viðtökur
sem myndin hefur fengið en
reiknað er með að hún
verði frumsýnd hér á
landi í kringum jólin.
„Hún er að rúlla þessu
upp,“ sagði Ingvar.
„Hún styrkir okkur
mjög mikið erlendis og
hefur opnað nokkrar
dyr að frekari verkefn-
um í útlöndum,“ bætti
Ingvar við en vildi
ekki gefa upp hvað
væri í sjónmáli,
það myndi skýrist
á allra næstu dögum. Kisi fram-
leiðir einnig Astrópíu sem Gunnar
Björn Guðmundsson leikstýrir en
tökum á henni er nýlega lokið.
Unnið er að því að klippa myndina
og er Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son á fullu við að semja tónlist við
hana en hann fær rjómann úr
íslensku tónlistarlífi til að flytja
lög eftir sig í myndinni. „Hún lítur
mjög vel út og er algjörlega ein-
stök á íslenskan mælikvarða.“ - fgg
Norskt-íslenskt samstarf gefur sig vel
INGVAR ÞÓRÐARSON
Myndin hefur opnað þó nokkrar
dyr fyrir kvikmyndafélagið
Kisa á erlendri grundu.
THE BOTHERSOME MAN Fjallar
um fertugan mann sem kemur til
undarlegrar borgar og uppgötvar
að hann er staddur í lífinu eftir
dauðann.
Heimir Sverrisson og Daníel sonur
hans dvöldust í Kína í tvo mánuði í
sumar. Þeir tóku ævintýri sín upp
og verða þættir um ferð þeirra
sýndir á Skjá einum í haust.
Heimir segir ferðina hafa komið
til af því að hann vildi gera eitt-
hvað óvenjulegt með Daníel í
sumar. „Þetta kom svona í staðinn
fyrir að sópa göturnar með ungl-
ingavinnunni. Mig langaði að víkka
sjóndeildarhringinn aðeins hjá
stráknum, gera hann að manni,“
segir Heimir og hlær. „Aðalástæð-
an var að ég vildi eiga þennan tíma
með honum í allt annarri menn-
ingu þar sem við þyrftum að takast
svolítið á við hlutina sjálfir,“
útskýrir hann.
Heimir segir sig alltaf hafa
langað til að fara til Kína. „Ég hef
alltaf haft áhuga á kínverskri
menningu, landi og náttúru og vildi
sjá þetta með eigin augum,“ segir
Heimir. Hann segir allt hafa stað-
ist væntingar, en margt hafa komið
sér á óvart. „Það er erfitt að lýsa
því hvað kom mest á óvart. Menn-
ingin er mjög skrítin og umferðar-
menningin alveg út í hött. Svo er
matarmenningin náttúrulega mjög
sérstök og skemmtileg,“ segir
Heimir.
Heimir segir tvo staði á ferða-
lagi þeirra standa upp úr í minn-
ingunni. „Við fórum kannski ekki á
hefðbundnustu staðina,“ útskýrir
hann. „Við fórum til dæmis í Shaol-
in klaustur þar sem Kung fu var
fundið upp fyrir 1.500 árum. Daní-
el var að læra Kung fu með munk-
unum frá fimm á morgnana og
fram á kvöld í tvær vikur,“ segir
Heimir. „Við fengum nú nokkur
sjokk þar líka, því munkarnir berja
nemendur sína sundur og saman ef
þeir hlýða ekki. Við urðum vitni að
því að þeir börðu litla stráka með
spjótum,“ heldur Heimir áfram.
„Hinn staðurinn var svo SOS barna-
þorp þar sem við dvöldumst í viku
og kynntumst alveg frábæru
fólki.“
Daníel segir sveitina standa upp
úr fyrir sitt leyti. „Það var svo fal-
legt í Yangzhou-sveitinni. Áður en
við fórum þangað vorum við bara í
stórborgum. Sveitin er önnur hlið á
landinu og aðeins meira eins og ég
hafði ímyndað mér Kína.“ Hann
segist samt hafa orðið fyrir dálitlu
áfalli þegar út úr borginni var
haldið. „Ég sá fullt af heimilislausu
fólki og rónum sem sátu allsberir
úti á götu og borðuðu úr ruslinu.
Þeir áttu ekki neitt,“ segir Daníel.
Hann segist þó endilega vilja snúa
aftur til Kína. „Þetta er örugglega
besta sumar sem ég hef upplifað
hingað til,“ segir Daníel.
FEÐGARNIR HEIMIR SVERRISSON OG DANÍEL: HÉLDU TIL KÍNA Í ÆVINTÝRAFERÐ
Vildi gera strákinn að manni
Í SHAOLIN KLAUSTRI Daníel dvaldist í klaustri og lærði Kung fu af munkum í tvær vikur, en í þessu klaustri leit Kung fu íþróttin
dagsins ljós.
KÍNVERSK STÓRBORG Heimir segist hafa
viljað víkka sjóndeildarhringinn hjá syni
sínum með ferðinni.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
6
5
7
„VIÐ VILJUM HVORKI
HUNDA NÉ GYÐINGA
HINGAÐ.“
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhusid.is
MEIN KAMPF
EFTIR GEORGE TABORI
...Styr Júlíusson fyrir að láta
tungumálakunnáttu ekki hamla
sér og skara fram úr í leiklistar-
skóla í New York.
Illugi Jökulsson vinnur nú að
ævisögu stórleikarans skýrmælta
Gunnars Eyjólfssonar. Stefna
þeir hjá JPV forlaginu ótrauðir á að
koma bókinni út fyrir næstu jól og
hafa með það fyrir augum komið
Illuga fyrir í sérstökum
vinnubúðum sem stað-
settar eru neðanjarðar
við Bræðraborgarstíg í
Vesturbænum þar
sem útgáfan er til
húsa.
Viðtal Evu Maríu Jónsdóttur við
seðlabankastjórann Davíð Odds-
son hefur vakið mikla athylgi enda
lýsti fyrrum forsætisráðherrann þar
yfir að stjórnmálamenn þyrftu að
halda smá fjarlægð við kjósendur.
Það er því greinilegt að Davíð er
hættur í pólitík því hann prýðir
forsíðu nýjasta tölublaðs Veggfóð-
urs sem Marta María Jónasdóttir
ritstýrir en þar hleypir hann blaðinu
inn á skrifstofuna sína í Seðlabank-
anum og lætur þess getið að hann
sé ekki mikill tölvukarl heldur notist
frekar við símann. „Kjarval sagði
að síminn ætti að vera
þannig að það væri
bara hægt að hringja
úr honum,” er meðal
þess sem Davíð segir í
viðtalinu en blað-
ið kemur út á
miðvikudag.
Addi Fannar í Skítamóral og
fitnessdrottningin Yesmin Olsson
eignuðust dóttur sl. laugardags-
morgun. Sú stutta hefur eitthvað
verið að flýta sér í heiminn því
hún fæddist þremur vikum fyrir
áætlaðan tíma. Addi Fannar mætti
því nýbakaður faðir á Ljósanætur-
hátíðina í Keflavík þar sem hann
steig á stokk með Skítamór-
al um miðjan daginn og
aftur um kvöldið á
skemmtistaðnum
Trix. Í millitíðinni
brunaði hann
í bæinn til að
heilsa upp á
mæðgurnar.
jbg / fgg / sh
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6
1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6