Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 5

Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 5
HUGSUN Hugsa fyrst, framkvæma svo. Uppbygging vörumerkja og markvisst markaðsstarf útheimtir vandaða ráðgjöf, hvort sem um ræðir öflun og greiningu upplýsinga, markmiðasetningu, áætlanagerð, vörumerkjastjórnun eða hámarksnýtingu �ármuna. HUGMYND Slæm hugmynd skilar alltaf slæmri auglýsingu. Góð hugmynd getur hins vegar lifað af slæma útfærslu. Opið flæði hugmynda og uppbyggileg samskipti eru grundvallaratriði í starfi okkar. HAMINGJA Allir eiga að skunda glaðir til vinnu á morgnana. Ánægja í starfi endurspeglast í gæðum verka okkar. Til að geta unnið skapandi vinnu af fítonskrafti þarf vinnuumhverfið að vera skemmtilegt og hvetjandi. Samstarf við viðskiptavini á að grundvallast af trausti og trúnaði. HÖNNUN Vönduð hönnun þrífst best í andrúmi framsækni og dirfsku. Þetta snýst um ferðalagið, ekki áfangastaðinn. Við höfum náð langt en viljum enn lengra. Hefur þú áhuga á hönnun, hugmyndavinnu, uppbyggingu og stjórnun vörumerkja, merki og útliti íslenska hersins eða sýn myndskreyta á forsetahjónin? Fimmta Fítonblaðið kom út í gær. Þú getur nálgast frítt eintak hjá okkur. FÍTONBLAÐIÐ ER KOMIÐ ÚT. HAGNAÐUR Samstarf okkar og viðskiptavina okkar skal skila mælanlegum árangri fyrir báða aðila. Við erum ekki bara að tala um krónur og aura, því hagnaður liggur líka í auknu virði vörumerkja, skilvirkari miðlun upplýsinga og betri þjónustu. Fíton auglýsingastofa fagnar 10 ára afmæli sínu um þessar mundir. Í tilefni af því hefur Fíton fengið nýtt útlit, nýja ásýnd. Við erum samheldinn hópur ólíkra einstaklinga, sem leitar ávallt að bestu lausn �ölbreyttra verkefna. Allt sem við gerum liggur á mörkum kaos og kosmos, reglu og óreiðu, öryggis og áhættu. Hugsun, hugmynd, hönnun, hamingja og hagnaður eru grundvallaratriði í starfi Fítons. Við erum síleitandi og margbreytileg, bjóðum núinu birginn og erum óhrædd við að kanna nýjar slóðir. Við blásum í lúðra og hyggjumst sækja enn lengra, af fítonskrafti. Fíton auglýsingastofa, Garðastræti 37, 101 Reykjavík, s. 595 3600, fiton@fiton.is, www.fiton.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.