Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 37
][
Veiðisumarið
með Stefáni Jóni Hafstein
Fleiri veiðifréttir og heilræði við veiðar á www.flugur.is.
Þar sem veiðivertíð er formlega
lokið fyrir utan nokkar undan-
þegukindur í sjóbirtingi þykir
rétt að hætta pistlum sem bera
heitið „Veiðisumarið með...“
Samt er það ekki svo að maður
hætti að veiða á veturna. Þá
veiðir maður aftur fiskana frá
liðnu sumri, í huganum, og
dreymir fiska næsta sumars.
Nóg er af efni í frekari áætlanir
um veiðar á flugur.is, ef menn
vilja bæta hernaðaráætlunum í
draumasafnið sitt!
Hvaða fiskur ber af öðrum?
Tækifærið er því nú að fjalla um
göfgi fiskanna. Laxinn er rétt-
nefndur „konungur Atlantshafs-
ins“, og er um leið ofmetnasti
sportfiskur á Íslandi. Það er hann
ef verð veiðileyfa er skoðað, því
það er fjarstæðukennt hve miklu
munar á laxveiði og silungsleyfi
sé ánægjukvarðinn hafður til
hliðsjónar. Laxinn er ekki betri
matfiskur en flestir silungar,
hann er alls ekki fjörugri á færi
en silungar af sömu stærð: Fjög-
urra punda lax er ekki nærri jafn
skemmtilegur á færi og jafn stór
sjóbleikja eða urriði í straum-
vatni. Spennan við laxveiðar er
einkum sú að laxinn verður
almennt stærstur þeirra fiska
sem við veiðum á stöng. Það er
frábært að setja í stóran lax, en
sjaldgæf skemmtun fyrir flesta.
Svo ef spurt er um stærð, þá er
laxinn göfugastur, en hann er
bara ekki nærri alltaf stærstur!
Vatnafiskur
Margir halda vatnafiskinn síst-
an. Vötnin eru þéttsetin bleikju
og urriða sem eru þegar best
lætur óborganlegir sportfiskar.
Stórir vatnafiskar hafa svo mikið
rými til að þjóta um að veiðimað-
ur getur lent í verulegum vanda.
10 punda urriði í Veiðivötnum
fer hæglega út með alla línu og
undirlínu; Þingvallavatnsbleikja
í meðalstærð er ótrúlega sterk.
Og svo hefur vatnafiskurinn
annað: Maður getur veitt ótrú-
lega mikið af honum við réttar
aðstæður. Stóri „hittingurinn“ er
oft í stöðuvötnum. Tugir fiska á
klukkutíma! Eða, risafiskar sem
fara langt í 20 pund! Og silungur
úr jafn ólíkum vötnum og Veiði-
vötnum og Elliðavatni er hnoss-
gæti sem tekur fram flestum
laxi.
Sjógengnir silungar
Oft finnst manni að sjógengnir
silungar séu spretthörðustu fisk-
arnir. Þeir koma í árnar útbólgn-
ir af æti, marfló og síli, og lætin
maður þegar þeir taka! Þessir
fiskar eru miklu fjörugri, pund
fyrir pund, heldur en laxinn. Þeir
taka meiri spretti, en laxinn
vinnur þá á úthaldinu. Það er svo
smekksatriði hvort maður vill
snarpan slag eða langan. Og um
þessa fiska gildir að þeir geta
verið ótrúlega krefjandi í veiði,
en líka gefið mikinn fjölda fiska
þegar hann loksins tekur!
Hvað er best í munni?
Af þessum fiskum er laxinn lík-
lega leiðigjarnasta bráðin á
borði. En sá sem ekki hefur
bragðað eyruggafitu á nýrunn-
um sjóbirtingi veit ekki hvað
orðið „gourmet“ þýðir. Eða hráa
pundsbleikju úr sjó. Silungar eru
hins vegar eins og góð vín frá
ólíkum héruðum bestu vín-
bænda: bragðið fer eftir aðstæð-
um hverju sinni, því er hægt að
halda „silungasmökkunarpróf“
fyrir matgæðinga og þeir skynja
muninn á bragðinu eftir því
hvaðan fiskurinn kemur. Og hver
er þá niðurstaðan um göfgi fisk-
anna? Engin, sem betur fer, því á
meðan höfum við nóg að hugsa
hver fyrir sig og hlakka til vors-
ins.
Hittumst á flugur.is, með þökk
fyrir veiðisumarið, Stefán Jón.
Göfgi fiskanna
Flogið á leik
Breiðabliks
EINSTAKT TÆKIFÆRI GEFST TIL AÐ
SJÁ BREIÐABLIKSSTÚLKUR MÆTA
STÓRLIÐI ARSENAL Í LONDON.
Express ferðir
hafa ákveðið að
bjóða upp á ferð
á leik Arsenal
og Breiðabliks í
London sem fram
fer 19. október.
Þetta verður
seinni leikur
liðanna í átta liða
úrslitum í Evrópu-
keppni félagsliða
kvenna. Sá fyrri
fer fram á Kópa-
vogsvelli hinn 12.
október. Express
ferðir telja nauð-
synlegt að styðja
Blikastelpurnar í
baráttu sinni við
ensku meistarana í liði Arsen-
al sem fór taplaust í gegnum
síðasta tímabil bæði í deild og
bikar. Verðið á þessari ferð er
49.900 krónur á mann miðað við
tvo saman í herbergi. Innifalið er
flug, gisting á The Strand í tvær
nætur og miði á leikinn sem
háður verður á Borehamwood-
leikvellinum í London, heimavelli
Arsenal-stúlknanna.
Allar nánari upplýsingar um ferð-
ina fást á vefsíðu Express ferða,
www.expressferdir.is
Breiðabliks-
stúlkur eiga
stuðning vísan
hjá þeim sem
fljúga til Lond-
on á leik þeirra
og Arsenals.
Lax sem Móðir Jörð hefur alið sjálf er miklu hæfari til að bjarga sér í hörðum
heimi en seiði sem mennirnir sleppa í árnar til að hækka verð á veiðileyfum.
Borgarleikhúsið og Express
ferðir efna til leikhúsferðar til
London 20.-23. október.
Tvær góðar leiksýningar eru í
boði fyrir þá sem vilja bregða sér
til London með Express ferðum.
Þær eru Hamskiptin eftir Kafka í
leikstjórn Gísla Arnar Garðars-
sonar með Ingvar Sigurðsson og
Nínu Dögg Filippusardóttur í aðal-
hlutverkum. Einnig söngleikurinn
We Will Rock You með öllum vin-
sælustu Queen lögunum. Ef far-
þegar óska verður farin skoðunar-
ferð um borgina með Ingibjörgu
Þórðardóttur, fréttamanni hjá
BBC.
Sérstakur fararstjóri verður
Guðjón Petersen leikhússtjóri.
Gist verður á Grafton-hótelinu í
hjarta borgarinnar.
Verð fyrir kortagesti Borgar-
leikhussins er 45.900 á mann í tví-
býli. Innifalið er flug með sköttu-
m, gisting á 4* hóteli með
morgunverði og akstur til og frá
flugvelli. Allar upplýsingar veitir
Lilja Hilmarsdóttir hjá Express
ferðum sími 5900100
www.expressferdir.is
Leikhús í London
Ingvar E. fer með annað aðalhlutverkið í Hamskiptum eftir Kafka sem boðið er
upp á í London. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ferðabækur eru bráðsniðugt hjálpartæki fyrir ferðamenn og geta slíkar
bækur bæði sparað tíma og veitt mikla innsýn inn í ókunnuga áfangastaði.
Nálgast má ferðabækur í bókabúðum og á netinu.
Vínarborg
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
30. nóvember - 3. desember
Vínarborg er mikil tónlistarborg og skartar sínu fegursta á
aðventunni, enda eru jólamarkaðir á mörgum stöðum í borginni sem
er nokkuð óvenjulegt. Í þessari ferð ætlum við að fara í skoðunarferð
um borgina, þar sem sagan og tónlistin eru í fyrirrúmi. Skoðum
Stefánsdómkirkjuna og förum í hina stórkostlegu höll Schönbrunn
þar sem m.a. keisaraynjan Sisi bjó á sínum tíma. Hægt er að komast
á Vínartónleika þar sem tónlist eftir Mozart og Strauss er spiluð.
Gist á hinu glæsilega Radisson SAS Palais Hótel. Lúxusferð til
fallegrar borgar sem hefur upp á margt að bjóða!
Fararstjóri: Hin eina sanna Diddú
Verð: 98.860 kr. á mann í tvíbýli.
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Sp
ör
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
In
gu
nn
Á
gú
st
sd
ót
tir
Lúxus - Jólaferð
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
�������������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������
�
�
�
�
�
�
��
��
��
��
��
�
��
��
�
���� ����������
Kúba �������
����������
�����������
�����������
�����������
����
�������������������������
�������������������������
����������������
������������������������
���������������
��������������������������������
����������������������������
�������������
�����������
�������������������������������
������������������������������������
������������������������������
���������
�����������
���������������������
�����������������
�
���������������
����
�
����������������