Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 78
 30. september 2006 LAUGARDAGUR42 Önnur búðin var pínulítil til að byrja með en er nú orðin mjög stór því við erum búin að kaupa hús- næðin í kringum hana.“ Förðun er lífsstíll Í lok þessa árs verða Make Up Store verslanirnar orðnar hundrað talsins víða um heim. „Það eru verslanir í Singapore, Bangkok, Ástralíu, Bandaríkjunum, Gvate- mala, Mexíkó, Spáni, Norðurlönd- unum, Eystrasaltsríkjunum, Íslandi og síðan verða opnaðar 25 búðir í Rússlandi á næstunni,“ segir Mika og tekur það fram að ef aðrir snyrti- vöruframleiðendur hefðu lagt eins mikið í vörurnar sínar væri Make Up Store ekki til í dag. „Forgangs- atriði hjá mér er að bjóða upp á veruleg gæði í vörunum mínum og í öðru lagi að hafa verðlagninguna viðráðanlega. Ég legg líka mikið upp úr því að þjónustan sé góð og að fólk læri á réttan hátt að setja á sig farðann. Það gefur þér ekkert að vera með gæðavöru í höndunum en kunna ekki að nota hana. Þannig verður varan léleg.“ Sjálfur er Mika hættur að farða þar sem hann hefur ekki tíma fyrir það lengur. „Það er mjög gott að eiga það enn í bakhöndinni því þannig veit ég um hvað ég er að tala. Það sem ég geri aðallega í dag er að ákveða liti, tóna, áferð og útlit snyrtivaranna. Mitt aðalstarf í dag er að ferðast á milli landa til að opna nýjar verslanir, auk þess sem ég er alltaf að auka við úrval versl- ananna og endurskoða vörurnar sem við erum með fyrir. Ég reyni líka að heimsækja verslanirnar sjálfur eins mikið og ég get til að vita hvað viðskiptavinirnir vilja. Það eru ótrúlegustu hlutir sem þeir spyrja um, enda er þetta lífsstíll fyrir mörgum.“ Leyndarmál Make Up Store Eitt af leyndarmálum Make Up Store er að skipta við margar verk- smiðjur. „Mörg vörumerki fá aðeins einn aðila til að framleiða allar vörurnar fyrir sig en það hef ég aldrei gert. Ein verksmiðja er kannski góð í að framleiða nagla- lökk, önnur varaliti og enn önnur púður. Ég ákvað því að fá einungis bestu vöruna frá hverri verk- smiðju fyrir sig, þrátt fyrir að það sé dýrari leið til framleiðslu. Aftur á móti er það eitt af því sem fólki líkar hvað best við vörurnar frá okkur að það veit að við erum með mjög góðar vörur. Samt seljum við þær alls ekki svo dýru verði,“ segir Mika og bætir því við að mikið sé hlustað á þarfir og óskir viðskiptavinanna. „Við reynum að fara eftir þeirra þörfum eins mikið og við getum. Til dæmis kom einu sinni kona í búðina til okkar og var með augnblýant frá sjöunda ára- tugnum meðferðis. Blýanturinn var í mjög sérstökum lit og hana langaði í nýjan svoleiðis blýant. Við áttum hann ekki til en ákváð- um að framleiða augnblýanta í þessum sama lit og nú fær hún slíkan blýant á hverju ári og er hæstánægð. Reyndar hefur þessi tiltekni litur selst virkilega vel síðan. Við reynum að hafa sem fjölbreyttast úrval af litum svo við séum ekki að stýra viðskiptavin- um okkar inn á ákveðna liti þannig að allir séu eins. Við viljum gefa þeim færi á að velja sér það útlit sem þeim líkar.“ Hugsjónamaður Mika segir það ótrúlega tilfinn- ingu að sjá fyrirtækið sitt stækka svo ört á skömmum tíma en tíminn hafi liðið alveg ótrúlega hratt á þessum tíu árum. „Ég er ofboðs- lega þakklátur þeim sem hafa trúað á hugmyndirnar mínar í öll þessi ár og stutt mig. Án þeirra og fólksins sem starfar í verslunun- um hefði þetta aldrei gengið upp.“ Upphaflegt plan hjá Mika var að opna fleiri búðir en eina og hann segir að hann hefði verið hæst- ánægður með tvær. „Eftirspurnin varð síðan svo mikil að búðunum hefur fjölgað ört síðan. Þá er ég með langa lista af fólki sem vill opna verslanir úti um allan heim. Það er hins vegar meira en að segja það að fá leyfi til að opna verslun undir merkjum Make Up Store enda fá þeir eingöngu leyfi sem virkilega lifa fyrir snyrtivör- urnar. Sjálfur hef ég aldrei hugsað um Make Up Store sem gróðaleið heldur er það hugsjón hjá mér að framleiða vöruna og það er mér mjög mikilvægt.“ Mörg fyrirtæki hafa boðið í Make Up Store á undanförnum árum en Mika hefur neitað öllum tilboðum. „Ég held að ef ég myndi selja fyrirtækið yrði ég kannski voða kátur í tvær vikur en síðan bara lenda í vandræðum með hvað ég ætti að taka mér fyrir hendur næst.“ sigridurh@frettabladid.is Fyrst eftir að Mika lauk námi sem förðunarfræðingur ferðaðist hann um Svíþjóð til að sjá um tískusýningar og farða fyrirsæturnar. „Ég ákvað síðan fyrir sextán árum síðan að stofna förðunarskóla. Fljótlega lenti ég í vandræðum með að finna nægilega góðar vörur fyrir nem- endurna mína,“ segir Mika en hann fór þá að sérpanta snyrtivör- ur frá Bandaríkjunum. „Loks ákvað ég að framleiða mitt eigið merki fyrir nemendur mína og seldi vörurnar úr kjallaranum heima. Á skömmum tíma fjölgaði viðskiptavinunum svo hratt að ég ákvað að opna verslun í miðbæ Stokkhólms. Mér bauðst að leigja verslunarhúsnæði til þriggja mán- aða og þá var bara að hrökkva eða stökkva.“ Mika segir verslunina hafa farið hræðilega af stað og fyrstu vikuna var nánast engin sala. „Þá fór ég að velta því fyrir mér hvernig ég gæti aukið áhuga fólks á vörunni minni og rifjaði upp að nemendur mínir höfðu oft spurt um einkakennslu í förðun fyrir venjulegt fólk sem ekki ætl- aði sér í förðunarfræði. Ég ákvað því að prófa að bjóða upp á stutt námskeið og það gekk svo vel að fyrstu tvo mánuðina komu 500 manns á námskeiðin,“ segir Mika og hlær að minningunni. Aðeins sex mánuðum eftir að fyrsta verslunin var opnuð réðst Mika í að opna aðra í Stokkhólmi. „Ég vissi að ef ég ætlaði að koma vörunni almennilega á framfæri þyrfti ég að hafa fleiri en eina búð. Útrás úr kjallaranum ÓTRÚLEG VELGENGNI Mika Liias opnaði fyrstu Make Up Store verslunina í Stokkhólmi fyrir tíu árum síðan. Í lok þessa árs verða þær orðnar fleiri en hundrað. Svíinn Mika Liias fagnar um þessar mundir tíu ára afmæli snyrtivörulínu sinnar Make Up Store sem fæst nánast um allan heim í dag. Sigríður Hjálmarsdóttir ræddi við Mika þegar Make Up Store opnaði í Kringlunni nýverið og spurði hann um þessa hröðu þróun undanfarinna tíu ára. Á dögunum var opnuð Make Up Store verslun í Kringlunni og má þar finna ótrúlegustu snyrtivörur í öllum regnbogans litum. Hreinsar loftið í gegnum vatn og gefur frá sér raka. Margar teg. ilmefna. Einnig lyktareyðir sem fjarlægir t.d. tóbakslykt og matarlykt ������������������ �������������������� ������������������� NÝTTNÝT T enginn filter frí heimsending ����������������������� �����������
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.