Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 2
2 30. september 2006 LAUGARDAGUR SPURNING DAGSINS Árni, ertu hræddur við Árna? Maður á alltaf að bera virðingu fyrir keppinautum sínum, en umfram allt að bera virðingu fyrir kjósendum sínum. Árni Johnsen tilkynnti á fimmtudag að hann hygðist sækjast eftir forystusæti hjá Sjálfstæðisflokknum á Suðurlandi. Árni Mathiesen fjármálaráðherra sækist eftir því að leiða listann í sama kjördæmi. STJÓRNMÁL Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, sigraði í kosningu um embætti formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær. Hann hlaut 68 atkvæði gegn 64 atkvæðum Smára Geirssonar, forseta bæjarstjórnar Fjarða- byggðar. Halldór er í Sjálfstæðis- flokknum en Smári í Samfylking- unni. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinn- ar, fullyrðir að vinstri grænir hafi greitt Halldóri atkvæði sín og þannig leitt Sjálfstæðisflokkinn til valda í sambandinu. „Mér finnst þeir [vinstri grænir] hafa klúðrað tækifæri félagshyggju- fólks og jafnaðarmanna til að eignast formann í Sambandi sveit- arfélaga,“ segir Steinunn og bætir við að í umræðum um samstarf núverandi stjórnarandstöðu- flokka eftir næstu kosningar sé framganga sem þessi ekki trú- verðug. Kosningin var leynileg en eftir því sem Fréttablaðið kemst næst voru meginlínur þannig að fulltrú- ar Framsóknarflokksins og Sam- fylkingarinnar studdu Smára en sjálfstæðismenn og vinstri grænir kusu Halldór. Árni Þór Sigurðsson, borgar- fulltrúi VG, segist ekki hafa trú á að flokkslínur hafi verið hreinar og klárar. Hann segir þó fulltrúa VG hafa metið hvað væri skyn- samlegast fyrir sambandið og hvaða skilaboð það sendi út. „Það þarf ekki að koma á óvart að í okkar huga skipta umhverfismál- in miklu máli. Ég held því að marg- ir hafi átt erfitt með að kjósa Smára, burtséð frá óumdeildri reynslu og þekkingu hans á sveit- arstjórnarmálum.“ Árni segir að þótt Halldór sé í Sjálfstæðis- flokknum sem stendur að gerð Kárahnjúkavirkjunar hafi hann nálgast stóriðjumál með allt öðrum hætti en Smári sem verið hefur einn af helstu talsmönnum fyrir stóriðjuframkvæmdunum eystra. Halldór hafi meðal annars beitt sér fyrir stefnumörkun um stóriðjulausa Vestfirði. Árni Þór var meðal þeirra sem nefndir voru líklegir kandidatar í formannsembættið. Steinunn Val- dís segir hann hafa falast eftir stuðningi Samfylkingarinnar. „Okkur þótti óeðlilegt að flokkur með ekki fleiri sveitarstjórnar- menn færi með embættið og það lá fyrir að Smári hafði meiri stuðn- ing.“ Sjálfur segir Árni að innan úr kjörnefnd hafi verið nefnt við sig hvort nefna mætti nafn hans. „Ég sagði já en að því gefnu að um það næðist samstaða.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og fráfarandi for- maður Sambandsins var formaður kjörnefndar sem ætlað var að gera tillögu að nýrri stjórn. Heimildir Fréttablaðsins herma að Vilhjálm- ur hefði vel getað fellt sig við Smára sem formann. bjorn@frettabladid.is Vinstri grænir höfn- uðu Smára Geirssyni Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði er nýr formaður Sambands íslenskra sveit- arfélaga. Steinunn Valdís Óskarsdóttir er gáttuð á framgöngu vinstri grænna í for- mannskjörinu en þeir gátu ekki fellt sig við Smára Geirsson. Árni Þór Sigurðsson segir marga hafa átt erfitt með að kjósa Smára vegna framgöngu hans í stóriðjumálum. MÁLIN RÆDD Kosið var á milli Smára Geirssonar og Halldórs Halldórssonar í emb- ætti formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga á landsþingi þess á Akureyri í gær. Halldór hafði betur. LÖGREGLUMÁL Gæsluvarðhald tveggja Litháa, sem reyndu að smygla rúmlega sjö kílóum af amfetamíni í tveimur bílum með Norrænu, var í gær framlengt um hálfan mánuð. Mennirnir komu til landsins með bílana 31. ágúst. Við leit í þeim fundust 26 pakkningar sem höfðu að geyma amfetamínið. Efnin höfðu verið falin á ýmsum stöðum í bílunum. Annar mannanna er búsettur hér og bíllinn sem hann flutti með Norrænu var á íslenskum skráningarnúmerum. Hinn maðurinn er búsettur erlendis.- jss Amfetamínsmyglarar: Áfram í gæslu SUÐUR-KÓREA, AP Utanríkisráð- herra Suður-Kóreu, Ban Ki-moon, þykir líklegasti maðurinn til að ná kjöri sem næsti framkvæmda- stjóri Samein- uðu þjóðanna, þegar Kofi Annan lætur af störfum í lok þessa árs. Óformleg atkvæða- greiðsla í öryggisráði SÞ á fimmtudag staðfesti þennan orðróm, en þá hlaut Ban Ki-moon 13 atkvæði af 15 mögulegum. Af þeim sjö manns sem í framboði eru, hlaut Indverjinn Shashi Tharoor, sem nú starfar sem aðstoðarfram- kvæmdastjóri SÞ, átta atkvæði. Kosið verður um framkvæmda- stjórann á allsherjarþingi SÞ síðar í haust. - smk Næsti framkvæmdastjóri SÞ: Ban Ki-moon líklegastur BAN KI-MOON HLERANIR Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri, hefur lagt fram stjórnsýslukæru til mennta- málaráðherra, vegna þeirrar ákvörðunar Ólafs Ásgeirssonar þjóðskjalavarðar að synja honum um aðgang að gögnum um símahleranir á árunum 1949-1968. Hann krefst þess að ákvörðunin verði felld úr gildi. Kjartan bendir á að Guðni Th. Jóhannes- son, sagnfræðingur, hafi fengið aðgang að umræddum gögnum og krefst Kjartan þess að fá sama aðgang. Hann bendir enn fremur á að allir skuli jafnir fyrir lögum, samkvæmt ákvæðum stjórnar- skrárinnar. - jss Kjartan Ólafsson: Hefur lagt fram stjórnsýslukæru Mannskæður fellibylur Minnst 48 Filippseyingar hafa farist í fellibylnum Xangsane sem nú gengur yfir Asíu og tuga manna er saknað þar í landi. Fellibylnum fylgir gríðarlegt regn, sem hefur valdið aurskriðum og flóðum víðsvegar um eyjarnar. FILIPPSEYJAR FÉLAGSMÁL Breiðholtsdagurinn er haldinn hátíðlegur í dag en dagurinn er hluti verkefnis til að efla samfé- lagið í Breiðholti. Barnaþing var haldið á fimmtudaginn þar sem tólf ára börn kynntu hugmyndir sínar um betra Breiðholt og um kvöldið voru Íbúasamtök Breiðholts stofn- uð. Einnig var bæklingi um félags- auð dreift í öll hús í Breiðholti. „Öll þessi verkefni ganga út á það að fá Breiðholtsbúa til að vinna saman, skemmta sér, skiptast á skoðunum og finna út hvernig þeir geta bætt sitt samfélag,“ segir Þrá- inn Hafsteinsson, frístundaráðgjafi hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts. Breiðholtsdagurinn, sem er í Mjóddinni dag, er hugsaður sem skemmtun og tækifæri fyrir Breið- holtsbúa til að koma fram og sýna gróskuna í hverfinu að sögn Þráins. Þar munu svo fulltrúar úr öllum grunnskólunum afhenda borgar- stjóra niðurstöður barnaþingsins. Af þeim hugmyndum sem börnin komu með var umgengni þeim efst í huga að sögn Oddnýjar Oddsdóttur, kennara í Breiðholtsskóla, en einnig komu margar ábendingar um sam- kennd og hjálpsemi. Kristjana, Hrefna og Andri, nemendur í Breið- holtsskóla, töldu mikilvægt að fólk myndi hætta að henda rusli á götur og að málað yrði yfir veggjakrot. Þeim fannst helst erfitt að velja á milli allra hugmyndanna en fyrsta skrefið væri að láta fjölskyldurnar sínar taka til hendinni. - sdg Breiðholtsdagurinn er í dag og verður margt til skemmtunar: Gróskan í hverfinu í öndvegi SAMHUGUR Í BREIÐHOLTSBÖRNUM Um 250 sjöttu bekkingar komu saman á barna- þinginu til að ræða hvernig þeir gætu bætt hverfið sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA SLYS Ellefu ára nemandi við Lindaskóla var fluttur á sjúkra- hús eftir að jafnaldri hans rak hníf í höfuð hans. Pilturinn slasaðist ekki alvarlega en sauma þurfti nokkur spor. Gunnsteinn Sigurðsson skólastjóri segir atvikið, sem átti sér stað í matsal skólans á mánudag, hafa verið óviljaverk. Hann segir drenginn sem beitt hafi hnífnum hafa setið og matast þegar sá sem slasaðist kom og ýtti aftan á hann. Hinn hafi þá ósjálfrátt barið frá sér án þess að átta sig á því að hann hafði hníf í hendinni. „Það hefur verið farið eftir öllum leiðum sem eiga við þegar svona mál koma upp og rætt ítarlega við börn í skólanum og foreldra þeirra,“ segir Gunnsteinn. - kdk Óviljaverk í Lindaskóla: Ellefu ára fékk hníf í höfuðið GEORGÍA, SLÓVENÍA, AP Georgískir dómstólar dæmdu í gær tvo af fimm rússneskum hermönnum, sem hand- teknir voru í vikunni, í tveggja mán- aða gæsluvarðhald, en fjórir mann- anna eru grunaðir um njósnir. Ákvörðunin varð síður en svo til þess að draga úr síharðnandi deil- um landanna. Leiðtogar Atlantshafsbandalags- ins funduðu um málið í Slóveníu í gær, þar sem rússneskir erindrekar stigu fram og sökuðu aðildarþjóðir NATO frá Austur-Evrópu um að hafa ólöglega séð Georgíumönnum fyrir vopnum. „Hér er um sjóræningastarfsemi að ræða,“ sagði rússneski varnar- málaráðherrann Sergei Ivanov. Hann neitaði að nefna ákveðnar þjóðir, en sagði þó að um nýrri aðild- arlönd NATO væri að ræða. Hann lét einnig hörð orð falla um handtöku rússnesku hermann- anna og sagði hana vera til þess ætlaða að neyða rússneska herinn burt úr Georgíu svo georgísk yfir- völd gætu fundið „hernaðarlega lausn“ á deilum um tvö aðskilnað- arhéruð sem notið hafa verndar Rússa. Framkvæmdastjóri NATO, Jaap de Hoop Scheffer, hvatti talsmenn beggja landa til að sýna stillingu og að leyfa ekki deilunni að fara úr böndunum. - smk Deilur Rússa og Georgíumanna harðna: Meintir njósnarar áfram í haldi RÚSSAR Í GEORGÍU Rússneskir hermenn á vakt við höfuðstöðvar rússneska hers- ins í georgísku höfuðborginni Tíflis. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DANMÖRK Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn hafa ákveðið að taka frá veggpláss í borginni undir veggjakrot. Þetta kom fram á fréttavef Politiken í gær. Vonast er til að lausnin dragi úr veggjakroti innan borgarmark- anna, en þó telja sumir að áhrifin verði þveröfug – að krotarar sjái þetta sem óbeint leyfi til að krota meira. „Það verður að vera pláss undir veggjakrot í stórborg sem Kaupmannahöfn,“ sagði Klaus Bondam, yfirmaður umhverfis- sviðs Kaupmannahafnar á borgarráðsfundi á fimmtudags- kvöld. Hreinsun á veggjakroti kostar borgaryfirvöld um 12 milljónir íslenskra króna á ári. - smk Kaupmannahöfn: Sérstakir veggir undir krot ÍSLENSKT VEGGJAKROT Kaupmannahafn- arborg ætlar að útnefna ákveðna veggi undir veggjakrot. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VARNARMÁL Thomas F. Hall, aðstoðarvarnamálaráðherra Bandaríkjanna sem var formaður samninganefndar Bandaríkja- manna í varnarviðræð- unum við Íslendinga, segir að með nýja samkomu- laginu um varnarsamstarf landanna verði aðgerðir beggja landa gegn ógnum nútím- ans, hryðjuverkum, alþjóðlegri glæpastarfsemi og fíkniefna- smygli, samhæfðar með skipu- lögðum hætti. Hægt verði að senda með hraði hingað herlið ef hefðbundnar hernaðarógnir skyldu aftur skjóta upp kollinum. Í veffréttum bandaríska heraflans, Blackanthem Military News, er haft eftir Hall að heræfingar yrðu haldnar á Íslandi að minnsta kosti einu sinni á ári og bandarísk herskip muni sækja landið heim með reglubundnu millibili. - aa Formaður samninganefndar: Leggur áherslu á samhæfingu THOMAS F. HALL Dagvistarrýmum fjölgað Heilbrigðisráðuneytið hefur heimilað að dagvistarrýmum fyrir aldraða verði fjölgað úr fimm í níu á Seltjarnarnesi. Dagvist fyrir aldraða á Seltjarnarnesi tók fyrst til starfa í byrjun árs 2005 og fólst í henni mikil þjónustuaukning fyrir eldri borgara á Seltjarnarnesi. ALDRAÐIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.