Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 85
LAUGARDAGUR 30. september 2006 49
Ljósmyndarinn Chris Niedenthal
hefur getið sér gott orð sem víða
um heim og í dag verður opnuð sýn-
ing á verkum hans í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur. Niedenthal hefur
unnið sem fréttaljósmyndari fyrir
Newsweek, TIME og Der Spiegel og
var meðal annars svæðisljósmynd-
ari fyrir alla Austur-Evrópu og
Sovétríkin þegar hann vann fyrir
tímaritið TIME.
Chris Niedenthal er af pólsku
foreldri, með þýskt eftirnafn en
hann ólst upp í London. Hann hreifst
strax af Póllandi og hóf á unglings-
árum að taka myndir af því sem
fyrir augu bar þegar hann ferðaðist
þangað með foreldrum sínum. Hann
hóf nám í London College of Print-
ing og lauk þaðan prófi árið 1972.
Árið eftir hélt hann til Póllands til
stuttrar dvalar - og er þar enn.
Honum fannst þetta vera sinn stað-
ur þrátt fyrir harðræðið sem hið
kommúníska stjórnkerfi bauð þegn-
um sínum.
Í ljósmyndum Chris Niedenthals
er hægt að rekja sögu Póllands allt
frá því hann kom þangað fyrst upp
úr 1960 og fram að þeirri byltingu
sem kom með verkalýðssamtökun-
um Samstöðu og öllum þeim þjóð-
félagsbreytingum sem fylgdu í kjöl-
farið, allt fram á daginn í dag í
gjörbreyttu þjóðfélagi. Myndir
hans frá árunum 1969 – 1989 sem nú
eru til sýnis í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur eru sterkur vitnis-
burður um hvíldarlausa baráttu
stoltrar þjóðar, sem lét hvorki her-
vald né hugmyndafræði kúga sig.
Sem fréttaljósmyndari tók Chris
Niedenthal myndir af því sem gerði
Pólland svo ólíkt vestrænum
nágrannalöndum sínum og sýna
myndir hans á áhrifamikinn og oft
kíminn hátt augnablik úr lífi fólks-
ins í landinu, sýna tíma umbreyt-
inga, sýna samfélag sem með bar-
áttu fólksins losnar undan
stjórnarháttum kommúnismans. Í
ljósmyndum Chris Niedenthals er
hægt að rekja sögu Póllands allt frá
því hann kom þangað fyrst upp úr
1960 og fram að þeirri byltingu sem
kom með verkalýðssamtökunum
Samstöðu og öllum þeim þjóðfélags-
breytingum sem fylgdu í kjölfarið,
allt fram á daginn í dag í gjör-
breyttu þjóðfélagi.
Sýningin er opin 12-19 virka
daga og 13-17 um helgar en hún
stendur til 19. nóvember. Sýningin
er hluti af dagskrá pólskrar menn-
ingarhátíðar sem stendur yfir í
Reykjavík og á Ísafirði dagana 28.
september - 1. október að frum-
kvæði Vináttufélags Íslendinga og
Pólverja.
Á morgun kl. 15 mun Niedenthal
halda fyrirlestur um verk sín í sýn-
ingarsal Ljósmyndasafns Reykja-
víkur í Grófarhúsi við Tryggva-
götu.
Pólland fortíðarinnar
VERKAMENN Í LENÍN-SKIPASMÍÐASTÖÐINNI Í GDANSK 1988 Verkfall þeirra leiddi að
lokum til frjálsra kosninga í Póllandi árið 1989. MYND/CHRIS NIEDENTHAL
Myndlistarsýning Guðmundar
Karls Ásbjörnssonar í sýningarsal
Orkuveitunnar, Gallerí 100°, við
Bæjarháls í Reykjavík verður
framvegis einnig opin á laugar-
dögum vegna mikillar eftirspurn-
ar.
Landslagsmálverk Guðmund-
ar Karls sýna íslenskt en á köflum
draumkennt landslag þar sem lit-
róf náttúrunnar nýtur sín fagur-
lega. Guðmundur Karl er búsett-
ur í Þýskalandi en kveðst oft hugsa
heim enda sé íslensk náttúra
honum stöðugur innblástur.
Sýningin var opnuð 4. septemb-
er síðastliðinn og er opin milli
8.30-16 virka daga og frá 13-17 um
helgar.
Íslenskur landslagsinnblástur
GUÐMUNDUR KARL ÁSBJÖRNSSON MYNDLISTARMAÐUR Sýnir landslagsmyndir
innblásnar af íslenskri náttúru. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HAUSTBÓKAMARKAÐUR
SKJALDBORGAR
MÖRKINNI 1
Barnabækur, fræðslubækur fyrir
börn og unglinga, unglingabækur,
skáldsögur, handbækur, dulræn
efni, ævisögur, krossgátublöð
og margt fleira.
Allir sem versla fá gjafabók
Haustbókamarkaður Skjaldborgar er
upplagður grundvöllur fyrir jólagjafakaup
eða einfaldlega gott tækifæri til að
komast í paradís bókaormsins.
Opið virka daga 9-17, nema fimmtudag 9-20,
laugardaga 10-17 og sunnudaga 12-16.