Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 66
30. september 2006 LAUGARDAGUR20
... að smjörlíki var fyrst flutt til Íslands
árið 1885 en fyrsta innlenda smjör-
líkisverksmiðjan tók til starfa 1919 og
þar var kona verkstjóri?
... að hver einasta opal-tafla var gerð
í höndunum í tuttugu ár, þar til vélar
leystu mannshöndina af hólmi?
... að verslunargluggar í Reykjavík
voru raflýstir í fyrsta skipti fyrir jólin
árið 1915?
... að innflutningstakmarkanir, höft
og skömmtun hömluðu þróun
iðnaðar á Íslandi á árunum 1930 til
1960?
... að dráttarbáturinn Magni sem var
tekinn í notkun árið 1955 var fyrsta
stálskipið sem smíðað var á Íslandi?
... að vélvæðing hófst á reykvískum
verkstæðum árið 1897 þegar járn-
smiðja og prentsmiðja fengu stein-
olíumótora til að knýja rennibekk og
prentvél?
... að meira en fimmta hvert starf í
iðnaði á Íslandi árið 1986 var skrif-
stofustarf?
... að „Vindlagjörðarfélag Reykjavík-
ur“ var stofnað árið 1900 en á þeim
tíma blómstruðu vindlagerðir í bæn-
um og nærri 100 manns unnu við
tóbaksiðnað?
... að með eigin framleiðslu annaði
Lífstykkjabúðin innlendri eftirspurn
eftir lífstykkjum, brjóstahöldum og
mjaðmabeltum árið 1932?
... að mesti vöxturinn í iðnaði á
Íslandi í síðari heimsstyrjöld var í
gosdrykkjagerð og sælgætisfram-
leiðslu?
... að fyrsta tölvan kom til Íslands
árið 1964, kostaði á við vænt einbýl-
ishús og þurfti heilan sal undir sig?
... að þegar borað var eftir vatni í
Vatnsmýrinni árið 1905 kom upp
eitthvað sem líktist gulli og „gullæði“
greip um sig í Reykjavík?
... að Vinnufatagerð Íslands og Sjó-
klæðagerð Íslands urðu fyrstar til að
fjöldaframleiða fatnað hérlendis og
þar var unnið í ákvæðisvinnu í fyrsta
sinn í verksmiðjurekstri á Íslandi?
... að aðeins 91 vél var í notkun í
iðnaði og þjónustu í Reykjavík árið
1922 og sameiginlegt afl þeirra var
334 hestöfl?
Fengið af idan.is
VISSIR ÞÚ ...
*Miðað við innflutning á sykri árið 2005 og áætlaða heildarsölu á harðfiski á Íslandi á ársgrundvelli.
Þá innbyrðir þú 136 grömm af sykri á dag, en aðeins 1 gramm af hollum
og góðum harðfiski eða bitafiski*
Engin
rotvarnarefni
Náttúrulegt Prótín
Omega 3 fitusýrur
Steinefni
Frostþurrkað
Kaloríusnautt
Gæðafiskur
Fæst í 10-11,
Hagkaup og
Skeljungsbúðunum
Gullfiskur
Fæst í Bónus
ES
SE
M
M
H
úsgagna
Lagersala Krókhálsi 10simi: 557-951030 ágú-09 sep09-18 virka daga10-16 laugardag
Eldhúsinnréttingar NuddstólarSpeglarRúm og margt margt fleira...Sófasett
Allt að 90%
afsláttur
29. sept - 6. okt.
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 3