Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.10.2006, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 10.10.2006, Qupperneq 2
2 10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR ���������������������������������������������������������������������� ������������ ������������� ������������ ��������������������� ������������������������������������������������������������������ ���� ����� ����� �� DANMÖRK Tveir félagar í ungliða- hreyfingu Danska þjóðarflokksins hafa farið í felur vegna birtingar á myndböndum þar sem þeir sjást taka þátt í gerð niðrandi skop- mynda af Múhameð spámanni. Óttast þeir hörð viðbrögð öfga- sinnaðra múslima samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla í gær. Ritstjóri Nyhedsavisen hefur fjar- lægt myndböndin af heimasíðu blaðsins en segir það ekki gert vegna utanaðkomandi þrýstings. En frétt blaðsins um skopmynda- samkeppni ungliðahreyfingarinn- ar hefur vakið mikil viðbrögð í Danmörku og Mið-Austurlöndum. Því hefur utanríkisráðuneyti landsins hvatt Dani til að halda sig frá því svæði næstu misseri. Þó er ekki talin hætta á að mótmælaald- an sem braust út í kjölfar Múhameðsteikninganna fyrr á árinu endurtaki sig. Pia Kjærsgaard, formaður Danska þjóðarflokksins, telur það hafa verið mistök að birta mynd- böndin enda hafi samkoma unglið- anna verið lokuð og ekki hafi verið ætlunin að gera myndirnar opin- berar. Talsmenn jafnaðarmanna og íhaldsmanna segja hins vegar fréttaflutninginn hafa átt rétt á sér. Forsætisráðherra landsins hefur lýst því yfir að hann harmi gerð myndanna. - ks SPURNING DAGSINS DÓMSMÁL Mál ákæruvaldsins gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs Group, Jóni Gerald Sullenberger og Tryggva Jónssyni verður tekið til efnis- meðferðar í Héraðsdómi Reykja- víkur í dag. Átján ákæruliðir standa eftir af málinu en fyrsta ákæruliðnum, sem sneri að kaupum Baugs á Vöruveltunni sem átti og rak 10- 11 verslanirnar og Jón Ásgeir var einn ákærður vegna, hefur verið vísað frá dómi. Fyrsti ákærulið- urinn var umfangsmesti ákæru- liðurinn en í honum var Jón Ásgeir sagður hafa beitt stjórn Baugs blekkingum í auðgunar- skyni. Liðirnir átján tengjast flestir meintum bókhaldsbrotum og ólöglegum lánveitingum. Ekki liggur ennþá fyrir hvenær málið verður tekið til aðalmeðferðar. - mh Baugsmál tekið fyrir í dómi: Átján ákærulið- ir teknir fyrir VARNARMÁL Valgerður Sverris- dóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra héldu í gær til Washington, þar sem þau munu undirrita sam- komulag við Bandaríkin um varnarmál á fundi með Condol- eezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þá munu Valgerður og Geir eiga fund með Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra og Nicholas Burns aðstoðarutanríkisráðherra. Valgerður mun einnig heimsækja Alþjóðabankann og eiga fund um þróunarmál með Paul Wolfowitz, forseta bankans. - hs Ráðherrar í Washington: Samningur undirritaður LÖGGÆSLA Bílvelta varð í Vatns- skarði um helgina er ökumaður gerðist svo djarfur að keyra með lausan kött í aftursætinu. Manninn svengdi við aksturinn og reif því upp harðfiskpoka. Sem hann gæddi sér á fisknum gerðist kisi órólegur og kastaði sér að lokum í fang eiganda síns til að krefjast síns skerfs. Við þetta missti maðurinn stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hann fór út af veginum og valt. Bifreiðin er mikið skemmd en bílstjóri og köttur komust lífs af og lítt skrámaðir. Kötturinn stakk skömmustufullur af slysstað og hefur ekki komið í leitirnar enn. Lögreglan á Blönduósi segir atvikið þarfa áminningu til ökumanna að geyma dýr í búrum meðan á akstri stendur. - kóþ Bílvelta í Vatnsskarði: Kötturinn krafðist bita HEILBRIGÐISMÁL Í hverjum mánuði svipta þrír til fjórir einstaklingar sig lífi að meðaltali. Yfirskrift Alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins, sem haldinn er í ellefta skipti í dag, er „Vaxandi vitund – aukin von: Saman eflum við geðheilsu og drögum úr sjálfsvígum“. Í ljósi þessa hvetur Geðhjálp fólk til að sýna samstöðu og ganga gegn sjálfsvígum á táknrænan hátt í kvöld. Gangan hefst í Hallgríms- kirkju klukkan átta en þaðan verður gengið niður að Tjörninni og kertum fleytt til minningar um þá sem látist hafa vegna sjálfs- víga. Félagsmálaráðuneytið kynnti í gær framkvæmdaáætlun vegna átaks í þjónustu við geðfatlað fólk. - kdk / sjá síðu 8 Geðheilbrigðisdagurinn: Gengið gegn sjálfsvígum Guðlaugur, er friður um þessa súlu innan Orkuveitunnar? „Borgarstjórn samþykkti þetta á síðasta kjörtímabili og að sjálfsögðu gerum við það sem eigendurnir segja okkur að gera.“ Orkuveitan í Reykjavík kemur til með að greiða um fimmtán milljónir í kostnað vegna friðarsúlu Yoko Ono í Viðey. Guð- laugur Þór Þórðarson er stjórnarformaður Orkuveitunnar. LÖGREGLUMÁL Lögreglumaður sprautaði ertandi efni úr úðabrúsa yfir menn sem voru að slást á gangstéttinni fyrir utan veitinga- stað í Bankastræti 7a um klukkan þrjú aðfaranótt sunnudags. Úðinn dreifðist í vindinum og yfir fólk sem beið inngöngu á skemmti- staðinn. Tvær stúlkur, þær Sara Brynj- ólfsdóttir og Íris Óskarsdóttir, fengu efnið í augun og blinduðust. Þær segja árásina hafa verið fyrir- varalitla. Lögreglumaður hafi komið hlaupandi með úðabrúsa á lofti og mun hafa úðað á mennina, án nokkurrar viðvörunar. Ertandi efnið í brúsanum fór í föt fólks í biðröðinni og í augu stúlknanna. Sara, 19 ára, segist hafa gengið grátandi og blinduð að lögreglu- manninnum sem sprautaði efninu til að spyrja hann hverju sætti að sprautað hefði verið á sig. Hann hafi þá vísað henni í burtu og neit- að að tala við hana. Íris vinkona hennar segir að starfsfólkið á Sólon hafi hins vegar hjálpað þeim að hreinsa efnið úr augunum þangað til faðir annarrar stúlkunnar hafi sótt þær. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar slógust fjórir til sex menn fyrir utan veitingastaðinn. Tveir lögreglumenn komu að og töldu sig ekki ráða við ástandið. Þeir beittu því kylfum og úða- brúsa. Karl Steinar Valsson hjá lögreglunni í Reykjavík segir lög- reglumennina ekki hafa talið að utanaðkomandi hafi fengið efnið í sig og að það sé skýr skylda lög- reglumanna að veita aðhlynningu í slíkum tilfellum. - kóþ Lögreglan í Reykjavík þurfti að beita hörku til að stöðva slagsmál um helgina: Urðu fyrir táragasárás í Bankastræti ÍRIS OG SARA Stúlkurnar segja farir sínar ekki sléttar af samskiptum sína við lögregl- una í Reykjavík. BANKASTRÆTI Lögreglan segist hafa beitt úða þar sem þeir sem hún hafi ekki ráðið almennilega við ástandið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Fíkniefnadeild lög- reglunnar í Reykjavík gerði upp- tæka hlaðna sex skota skamm- byssu við eftirlit síðastliðið föstudagskvöld, er starfsmenn deildarinnar höfðu afskipti af tveimur mönnum sem grunur lék á að hefðu fíkniefni í fórum sínum. Reyndust mennirnir vera sam- tals með tæp 300 grömm af hassi og amfetamíni en lögreglan hand- tók manninn sem bar skotvopnið á sér síðastliðið föstudagskvöld. Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík, segir lögregluyfirvöld líta málið alvarlegum augum. „Við höfum áður rekist á vopn þegar við gerum húsleitir, leitum á mönnum og í bifreiðum þeirra, en þetta mál skilur sig frá flestum þeirra mála sem upp hafa komið, þar sem maðurinn reyndist vera með hlaðna sex skota skamm- byssu á sér. Þetta veldur okkur auðvitað áhyggjum þó að engin hætta hafi verið á ferðum þar sem búið var að handjárna manninn þegar byssan fannst á honum.“ Mennirnir tveir voru saman á ferð þegar lögreglan greip til aðgerða gegn þeim. Málið er enn til rannsóknar hjá lögreglu en telst að fullu upplýst. Björn Ingi Hrafnsson, for- maður borgarráðs og íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborg- ar, telur engan vafa leika á því að harka í glæpastarfsemi hér á landi sé að aukast nokkuð. „Þessi ítrek- uðu dæmi um vopnaburð, sem við höfum verið að sjá að undanförnu, varpi ljósi á það að meiri harka virðist sífellt vera að færast undir- heimana í Reykjavík. Það er óhugnanlegt að vita til þess að fíkniefnasalar séu farnir að ganga um með hlaðnar skammbyssur. Þetta er þróun sem þarf að bregð- ast við,“ segir Björn Ingi og bend- ir á mikilvægi þess að lögregla og sveitarfélög vinni saman. „Við viljum ekki að lögreglan þurfi að vígbúast eins og víðast hvar í heiminum, því þá erum við fyrst farin að finna fyrir því að glæpa- mennirnir hafi betur. Til þess að sporna við þessari þróun verða lögregluyfirvöld og sveitarfélög að taka höndum saman, líkt og borgaryfirvöld og lögreglan í Reykjavík hafa gert að undan- förnu. Aðeins þannig er að hægt að ná viðunandi árangri í barátt- unni við þann vágest sem heimur fíkniefna og glæpa er í nútíma- samfélögum.“ magnush@frettabladid.is Tekinn með hlaðna skammbyssu og dóp Karlmaður var tekinn með hlaðna sex skota skammbyssu á föstudagskvöld. Lít- um þetta mál alvarlegum augum, segir Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Bregðast þarf við þessari þróun, segir Björn Ingi Hrafnsson. VOPN SEM HAFA VERIÐ GERÐ UPPTÆK Lögreglan hefur gert töluvert mikið af vopnum upptæk á undanförnum árum. Á þessu ári hafa komið upp nokkur tilvik þar sem hættulegum vopnum hefur beitt í slagsmálum eða í ránum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BJÖRN INGI HRAFNS- SON Hefur áhyggjur af aukinni hörku í fíkniefnaheiminum. HÖRÐUR JÓHANNES- SON Segir lögreglu- yfirvöld líta málið alvarlegum augum. Frétt Nyhedsavisen um skopmyndasamkeppni vekur hörð viðbrögð: Farnir í felur vegna myndbands FYRSTA FORSÍÐAN Ritstjóri blaðsins hefur fjarlægt myndböndin af heima- síðu blaðsins. STJÓRNMÁL Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, sækist eftir 1. sæti á fram- boðslista Sjálfstæðis- flokksins í Norðaustur- kjördæmi fyrir komandi alþingis- kosningar. Kristján Þór tilkynnti um ákvörðun sína á aðalfundi fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna á Akureyri í gærkvöld. Kristján Þór var bæjarstjóri á Dalvík árin 1986 til 1994 og á Ísafirði frá 1994 til 1997. Hann hefur stjórnað fjölda opinberra stofnana, samtaka og fyrirtækja, meðal annars í sjávarútvegi. Hann hefur verið bæjarstjóri á Akureyri frá því árið 1998. - mh Kristján Þór Júlíusson: Ætlar sér að leiða listann KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.