Fréttablaðið - 10.10.2006, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 10. október 2006 13
STJÓRNMÁL Guðrún Bjarnadóttir
sálfræðingur býður sig fram í 5.-
6. sæti á framboðslista Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
Guðrún hefur setið í ýmsum
ráðum og
nefndum hjá
Hafnarfjarðar-
bæ og tekið
virkan þátt í
starfi Samfylk-
ingarinnar frá
upphafi. Hún
leggur áherslu
á þörf alls fólks
fyrir lífsskil-
yrði sem gefa
tækifæri.
Guðrún lauk doktorsprófi frá
ríkisháskólanum í Pennsylvaníu
og er starfandi sálfræðingur á
Miðstöð heilsuverndar barna.
Áður kenndi Guðrún sálfræði og
upppeldisfræði við Menntaskól-
ann í Hamrahlíð. - hs
Prófkjör Samfylkingarinnar:
Gefur kost á sér
í 5.-6. sæti
GUÐRÚN
BJARNADÓTTIR
HEILBRIGÐISMÁL Frumtök, samtök
framleiðenda frumlyfja, og
Læknafélag Íslands undirrituðu
fyrir helgi samkomulag um að
sameiginleg yfirlýsing Evrópska
læknafélagsins og Samtaka
lyfjaiðnaðarins í Evrópu um
samstarf læknastéttarinnar og
lyfjaiðnaðarins skyldi virt í
samskiptum félagsmanna.
Meðal þess sem fram kemur í
samkomulaginu er að lyfjafyrir-
tækjum er ekki heimilt að bjóða
óréttlætanlega risnu og skulu
gjafir vera ódýrar og tengjast
læknisstörfum. - ss
Frumtök og Læknafélagið:
Samkomulag
um samstarf
SAMKOMULAG UNDIRRITAÐ Sigurbjörn
Sveinsson, formaður Læknafélags
Íslands og Hjörleifur Þórarinsson, for-
maður Frumtaka.
ORKUMÁL Vinstri græn lögðu fram
fyrirspurn í borgarráði á miðviku-
dag, þar sem farið er fram á að
upplýst verði á hvaða forsendum
Orkuveita Reykjavíkur hóf
raforkuframleiðslu í Hellisheiðar-
virkjun hinn 1. október, þegar
umsagnarfrestur um starfsleyfi
fyrir virkjunina rennur út 16.
október.
Guðmundur Þóroddsson,
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
segir virkjunina einungis í
tilraunaskyni, verið sé að prófa
vélar og það sé í lagi þó starfsleyfi
sé ekki komið. Um mánuður sé í að
virkjunin verði komin í rekstur og
þá verði starfsleyfi komið. - ss
Vinstri græn í borgarráði:
Virkjun hafin
án starfsleyfis
FÉLAGSGJÖLD Ríflega annar hver
einstaklingur á vinnumarkaði í
dag hefur einhvern tíma á
starfsferli sínum greitt félags-
gjald til VR. Þetta jafngildir því
að 97.166 einstaklingar á aldrin-
um 16-66 ára hafi einhvern tíma á
ævinni greitt félagsgjöld til VR,
en það eru um 57 prósent fólks á
vinnumarkaði.
Það sem af er þessu ári hafa að
meðaltali 25.200 manns greitt
félagsgjald mánaðarlega en það
eru um 15 prósent af starfandi
fólki á vinnumarkaði og 23
prósent af starfandi fólki á
höfuðborgarsvæðinu. - hs
Félagsgjöld VR:
Meirihluti hef-
ur greitt til VR
EVRÓPUSAMBANDIÐ Hvorki bresk né spænsk
stjórnvöld myndu nokkurn tímann sam-
þykkja inngöngu Íslendinga í Evrópusam-
bandið ef farið yrði fram á undanþágu
Íslendinga frá sameiginlegri fiskveiðistefnu
Evrópusambandsins.
Þetta kom fram í máli Christopher
Heaton-Harris, þingmanns breska Íhalds-
flokksins á þingi Evrópusambandsins, í
fyrirlestri sem hann hélt á vegum Heims-
sýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópu-
málum. Hann sagði að ef Íslendingar myndu
ganga í Evrópusambandið myndi fiskveiði-
lögsaga Íslendinga fyllast af spænskum og
breskum togurum, þar sem þorskstofninn
hefur hrunið innan sameiginlegrar lögsögu
sambandsins. Einnig kom fram í máli
Christophers að breskir íhaldsmenn hefðu
hótað því að ganga úr sameiginlegu fisk-
veiðistefnunni, en fengið þau skilaboð frá
Evrópusambandinu að með því myndu
Bretar segja sig úr sambandinu.
Hann sagði það ekki stefnu núverandi
leiðtoga breska Íhaldsflokksins að Bretland
gengi úr Evrópusambandinu, heldur hefði
skuggaráðherra utanríkismála sagt á
landsfundi Íhaldsflokksins að gefa ætti
Evrópusambandinu eitt tækifæri enn til að
endurbæta sambandið, en ekki yrði fallist á
frekari samruna án þjóðaratkvæðagreiðslu.
- ss
CHRISTOPHER HEATON-HARRIS Þingmaðurinn segir
það ekki vera stefnu breska Íhaldsflokksins að Bretland
gangi úr Evrópusambandinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Christopher Heaton-Harris, þingmaður breska Íhaldsflokksins, um hugsanlega inngöngu Íslands í ESB:
Bretar myndu ekki veita undanþágu
Útibú Landsbankans í Smáralind fagnar fimm ára afmæli þriðjudaginn
10. október kl. 10:10. Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð þennan dag
árið 2001. Við viljum bjóða viðskiptavinum og gestum og gangandi í þriggja
daga afmælisveislu.
Við erum fimm ára!
Þér er boðið í afmælið
Þriðjudagur 10. október
• Afmæliskaka frá Hafliða Ragnarssyni
konfektmeistara og sérlagað afmæliskaffi
í boði allan daginn
• 16:00-18:00 Afmælisveisla fyrir börnin
• Andlitsmálun
• Sproti kemur í heimsókn
• Gjafavara fyrir börnin
Fimmtudagur 12. október
• Kaffi og afmæliskaka
• 15:30 - Brot úr sögu banka - sögutengd
leiksýning í tali og tónum í tilefni af 120 ára
afmæli Landsbankans. Sproti mætir á staðinn.
• 17:30 - Skagfirska söngsveitin stígur á stokk
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
43
99
10
/2
00
6
Miðvikudagur 11. október
• Kaffi og afmæliskaka
• 16:00 - Leikmenn meistaraflokks kvenna
í Breiðablik gefa eiginhandaráritanir í tilefni
af Evrópuleik liðsins gegn Englandsmeisturum
Arsenal. Boltar gefnir meðan birgðir endast.
• 16:30 - Englandsmeistarar Arsenal koma í heimsókn.
Miðar á Evrópuleik Breiðabliks og Arsenal verða
gefnir meðan birgðir endast.