Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 35
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { vinnuvélar } ■■■■ 7
Fyrirtækið Vélfang selur vélar fyrir
landbúnað, vélaverktaka og golfvelli
svo fátt eitt sé nefnt. Skarphéðinn
Erlingsson, sölu- og markaðsmála-
maður hjá fyrirtækinu, segir Terex-
vinnuvélarnar sem fyrirtækið selur
hafa reynst einkar vel.
Vélfang ehf. er umboðsaðili fyrir
mörg vörumerki á sviði landbúnað-
ar- og iðnaðarvéla. Helstu framleið-
endur sem Vélfang ehf. hefur umboð
fyrir eru CLAAS, Fendt, Kuhn,
Kverneland, Accord, Taarup, Fiona,
Redrock, Tahler, Shibaura, Globram
og Terex-Benford, svo dæmi séu
tekin. Skarphéðinn Erlingsson segir
mikinn vöxt hafa einkennt fyrir-
tækið alveg frá stofnun þess í fyrir
tæpum þremur árum.
„Terex-vörumerkið er orðið þriðji
stærsti framleiðandinn á iðnaðar-
vélum og mini-gröfum í heiminum.
Við höfum staðið í uppbyggingu
vörumerkisins hér á landi undan-
farin ár og stefnan er sett á að halda
því áfram. Terex-merkið er í sívax-
andi sókn“ segir Skarphéðinn.
„Við erum erum jafnframt farin
að selja Terex Benford sem eru
sjálfkeyrandi hjólbörur og hafa sótt
mikið í sig veðrið síðustu miss-
eri. Þar að auki erum við nú farin
að selja „trailera“ sem dregnir eru
áfram af traktorum.“
Annar búnaður sem Vélfang ehf.
selur eru meðal annars alhliða kerr-
ur sem henta til vöruflutninga jafnt
sem vélaflutninga.
Mikill vöxtur
Fyrirtækið Vélfang ehf. sérhæfir sig í sölu og þjónustu á
nýjum jafnt sem notuðum vinnuvélum.
Skarphéðinn Erlingssson hjá Vélfangi ehf. segir mikinn vöxt hafa einkennt fyrirtækið.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Terex-traktorsgröfurnar frá Vélfangi ehf. hafa reynst vel hér á landi. Terex-fyrirtækið er þriðji
stærsti framleiðandi heims á þessu sviði.
Partner K750 / Þyngd 9,7 kg / Skurðdýpt 12,5 cm
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI