Fréttablaðið - 10.10.2006, Qupperneq 38
■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■10
Reynsluakstur Ford Transit-
sendibíls.
Það má segja að hlutverk sendibíls
sé tvíþætt. Annars vegar er hann
vinnustaður bílstjórans, og þarf að
vera þægilegur sem slíkur, og hins
vegar þarf hann að geta, jú − mikið
rétt − flutt hluti.
Ford Transit-sendibílar hafa
löngum verið vinsælir og nú nýlega
kynnti Brimborg splunkunýja
útgáfu sem þar á bæ er sögð enn
betri en þær fyrri. Í reynsluakstrin-
um var prófuð millilöng útgáfa af
milliþekju bíl, en alls standa þrjár
lengdir til boða og tvær til þrjár
hæðir á húsi af hverri lengd.
Ef við lítum fyrst á seinna hlut-
verkið, að flytja hluti, er hleðslu-
rýmið 2.709 mm langt og 1.740 mm
hátt. Hann tekur því 9,07 rúmmetra
en hleðsluþyngd millilanga bílsins
er á bilinu 1.040 kg til 1.200 kg.
Á bílnum eru stórar rennihurðir
á hliðunum sem læsast í haki þegar
þær eru fullopnar. Gólfið er lágt og
flatt og aðgengi því þægilegt. Að
aftan eru tvær vængjahurðir sem
hægt er að læsa bæði í 90 gráðum
og eins hafa galopnar. Hleðslurým-
ið er klætt upp á miðjar hliðar með
plötum til að verja yfirbygginguna.
Sem vinnustaður er bíllinn vel
búinn. Hvert sem litið er má finna
hólf og geymslu. Til dæmis eru
tvö lokuð hólf ofan á mælaborð-
inu, annað þeirra með 12V inn-
stungu. Tilvalið fyrir skrifblokkir,
síma, penna og hvað annað smá-
legt sem maður þarf á að halda í
amstri dagsins. Allir Transit-bílar
eru búnir olíumiðstöð með tímaliða
þannig að jafnvel um miðjan vetur
er hægt að halda bílnum hlýjum og
notalegum þó hann þurfi að standa
heilu og hálfu dagana. Litlar ristar í
skilrúminu sjá svo til þess að brot af
varmanum fer í hleðslurýmið.
Bílstjórasæti er stillanlegt á
margan hátt og útsýni úr bílnum
gott, nema hvað vinstra megin er
klippt fullsnemma á útsýni þegar
horft er aftur með bílnum. Speglar
eru stórir og góðir, með litlum kúpt-
um speglum fyrir neðan, en glugg-
inn á farþegahurðinni mætti samt
ná lengra aftur.
Vélin í Transit er ný 2,2 lítra
dísilvél sem vinnur ágætlega og
togar vel. Bíllinn var prófaður bæði
tómur og með 800 kg hlassi og ekki
var um merkjanlegan mun að ræða
á aksturseiginleikum eða afli, helst
að hann lægi ögn betur á vegi með
hlassinu. Gírstöngin er komin í
mælaborðið og er létt og ratviss svo
bíllinn er mjög þokkalegur í akstri.
Í öryggisdeildinni er Tranist vel
græjaður. Fyrir utan ABS-hemla
með EBD-hemlajöfnun er hann
búinn spólvörn og loftpúða fyrir
ökumann. Til viðbótar er hægt að
fá í hann ESP-stöðugleikakerfi með
hjálparhemlun, loftpúða fyrir far-
þega og hliðarloftpúða, sem eru
reyndar staðalbúnaður í Transit
með leðursætum.
Eftir reynsluakstur er ljóst að
Ford Transit uppfyllir öll þau skil-
yrði sem gerð eru til sendibíla, og
það vel, hvort sem á að nota hann
til að flytja varning eða sem venju-
legan vinnubíl frá degi til dags.
einareli@frettabladid.is
Uppfyllir öll skilyrði
Útlit bílsins er alveg nýtt og það sama má segja um vélina sem kom skemmtilega á óvart, ekki síst með 800 kílóa hlass. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Vinnuumhverfi ökumanns er mjög vistlegt
og þægilegt, með mörgum hólfum og
hirslum.
Vængjahurðirnar að aftan má opna til hálfs
eða fulls, eftir því hvort þarf.
Sitt sýnist hverjum um nýjan framenda
Transit sem virðist hannaður í kringum
framljósin. Þau eru hins vegar afbragðsgóð.
Farmrýmið er klætt upp í miðjar hliðar og
er þægilegt í umgengni.
REYNSLUAKSTUR
FORD TRANSIT 300M
2,2 lítra dísilvél.
130 hö / 310 Nm.
Burðargeta: 1.040-1.200 kg.
Farmrými: 9,07 rúmmetrar.
PLÚS:
Vélin öflugri en stærðin gefur til
kynna.
Gott vinnuumhverfi og aðgengi.
MÍNUS:
Gluggar á framhurðum mættu ná
aðeins lengra aftur.
Vélaburstar
og vír
allar stærðir
Vesturhrauni 3
Garðabæ
Sími 480 0000
� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � �
�������������
��������������� �����������
�������������������������
�����������������
���������������������������
Snjótennur
allar stærðir
Vesturhrauni 3
Garðabæ
Sími 480 0000