Fréttablaðið - 10.10.2006, Side 46
■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■18
60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004
MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu.
HANN ER GRIMMUR!
MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER
- VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár
- Útvegum notaða skotbómulyftara
- Úrval notaðra lyftara á lager
Fjórhjóladrifinn
Fjórhjólastýrður
Lyftigeta: 3.400 KG
Lyftihæð: 6.050 MM
Gafflar: 1.200 MM
Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ
LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar
án aukins snúningshraða vélar.
SKOTBÓMULYFTARI
PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf.
Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður
Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is
Liebherr vinnuvélaframleiðandinn
setur í þessum mánuði á markað
nýja beltagröfu, Liebherr R 313
Litronic. Grafan er um 14 tonn
að þyngd og vélin er 102 hestöfl.
Þá verður hægt að kaupa nokkr-
ar breiddir af beltum, þar á meðal
gúmmíbelti undir gröfuna. Keyrslu-
drif vélarinnar er tveggja stiga með
miklum togkrafti sem gerir vélina
mjög öfluga í keyrslu. Hún kemst
því auðveldlega upp brekkur og er
hraðskreið í akstri á jafnsléttu. Þá
er stjórnhúsið rúmgott og þaðan er
gott útsýni.
Gott útsýni úr
stjórnhúsinu
Vinnuvélaframleiðandinn Liebherr setur í
þessum mánuði á markað nýja beltagröfu,
Liebherr R 313 Litronic.
Í Skógum undir Eyjafjöllum er
starfrækt Vegminjasafn Vegagerð-
arinnar. Upphaf safnsins má rekja
til ársins 1950 er starfsmenn Vega-
gerðarinnar hófu söfnun gamalla
muna er tengdust á einhvern hátt
starfsemi Vegagerðarinnar. Það var
ekki fyrr en árið 1989 að Vega-
gerðin tók við umsjón safnsins og
minjavörður var ráðinn til starfa.
Að sögn Jakobs Hálfdánarsonar,
núverandi minjavarðar, sem tók við
starfi árið 1997, er markmiðið með
Vegminjasafninu að standa vörð
um þær minjar sem tilheyra vega-
gerð fyrri tíma og varpað geta ljósi
á þátt þeirra í menningar og sam-
göngusögu þjóðarinnar.
Í fyrstu var safnið til húsa í höf-
uðstöðvum Vegagerðarinnar að
Borgartúni 7 í Reykjavík. Fljótlega
þótti þó ljóst að ekki væri pláss
fyrir starfsemina í höfuðborginni
og árið 1999 voru flestir gripa
safnsins fluttir í Hvolsvöll. Þar voru
þeir munir, sem voru uppgerðir og
sýningarhæfir, geymdir í aflögðu
áhaldahúsi þar sem almenningi
gafst kostur á að skoða þá.
Ljóst varð þó að þessi húsakost-
ur safnsins var ekki fullnægjandi
og því var ákveðið að flytja safnið
austur undir Eyjafjöll. Samdi Vega-
gerðin við Samgöngusafnið á Skóg-
um um varðveislu safngripa og
sýninga á minjum. Var safnið flutt
þangað árið 2002 í glæsilegan sýn-
ingarsal sem er um 1100 fermetrar
að stærð. 20. júlí 2002 var safnið
formlega opnað af Sturlu Böðvar-
syni samgönguráðherra.
Safnið hefur vaxið jafnt og þétt
með árunum og eru fleiri gömul
tæki í eigu Vegagerðarinnar sem
nú bíða endurbóta. Að sögn Jakobs
vinna starfsmenn á verkstæðum
Vegagerðarinnar sjálfir að viðgerð-
um þessara fornfrægu minja þegar
þeir eru ekki að sinna meiri aðkall-
andi verkefnum. Af þeim fjölmörgu
gripum sem tilheyra safninu má
nefna hestaveghefil frá árinu 1920,
Caterpillar-beltaskóflu frá árinu
1945 og Priestmann-skurðgröfu frá
sama ári.
Safnið á Skógum er opið almenn-
ingi á sumrin og geta hópar fengið
aðgang að safninu á veturna.
Fornfrægar minjar
í Skógum
Um árin hafa hin ýmsu tól og tæki verið notuð til sam-
göngubóta og vegagerðar hér á landi. Vegagerðin hefur
um nokkurt skeið haldið upp á gamlar vinnuvélar og
gert þær upp.
Beltaskófla-Caterpillar D4 DD, árgerð 1945.
Skurðgrafa-Priestman, árgerð 1945.