Fréttablaðið - 10.10.2006, Side 60
10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR24
UMRÆÐAN
Leikskólamál
Í Fréttablaðinu sunnudaginn 24.
september er vitn-
að í foreldra
tveggja leikskóla-
drengja: Þau Stein-
ar og Steinunn
segja frá því að
undanfarið hafi
þau þurft að sækja
strákana sína í
leikskólann áður
en hefðbundnum
skóladegi lýkur.
Þetta hefur verið
vegna manneklu í
leikskólum drengj-
anna. Steinunn seg-
ist furða sig á
hversu lítið heyrist
í ráðamönnum um
þennan vanda. Hún
dregur jafnframt í
efa að kornungir
starfsmenn hafi
burði til að sinna
störfum eins og
vera ber á þessu
fyrsta skólastigi.
Ég fagnaði þessari lesningu en
þó ekki þannig að það hafi verið
ánægjulegt að lesa um vanda
leikskólanna, foreldranna og
barnanna. Mér finnst hins vegar
ánægjulegt að sjá á prenti það
sjónarmið að leikskólastigið þurfi
menntaðan og stöðugan starfs-
kraft, en ekki nægi eingöngu að
„dekka daginn“ á einhvern hátt,
oft með ungu og lítt menntuðu
fólki sem sumt hvert staldrar
stutt við. Sá óstöðugleiki sem
hlýst af tíðum mannaskiptum
setur síðan mark sitt á það starf
sem verður með börnunum.
Þannig er einnig líklegt að skort-
ur á mannskap og menntun,
ásamt óstöðugleika, setji nú mark
sitt á líf íslenskra barna og það er
viðurkennt að lífsstíll er líklegur
til að hafa áhrif á heilsu og vel-
ferð fólks til langframa. Þetta er
því stórmál til framtíðar en ekki
dægurfluga sem þarf einhvern
veginn að redda og ekki nægir að
stinga hausnum í sandinn.
Leikskólakennarar, flestir
konur, eru of fáir á markaði sem
hefur breyst gífurlega undanfar-
in ár. Langflest börn eru nú í
heilsdagsvistun meðan foreldrar
eru við nám eða störf. Samfélagið
er þannig allt öðru vísi en var
fyrir nokkrum árum, en þeir sem
sitja við stjórnvölinn virðast ekki
huga nægilega að þessum breyt-
ingum og vandinn verður marg-
víslegur: Foreldrar og fyrirtæki
lenda í vandræðum, en það sem
virðist mest um vert er að börnin
njóta ekki þeirra uppeldisskil-
yrða sem ættu að vera til staðar í
ríku samfélagi og þurfa að vera
til staðar í flóknu nútímasamfé-
lagi. Starfsfólk við uppeldis- og
kennslustörf í leikskólunum dreg-
ur of þungt hlass. Kröfur og nauð-
syn um langan vistunartíma og
gæði annars vegar og hins vegar
tölur um mikla starfsmannaveltu
og skort á leikskólakennurum,
benda m.a. til þessa. Mæður hafa
meira komið að uppeldi barna og
konur sjá enn að mestu um þenn-
an þátt þó í breyttri mynd sé. Þeir
sem starfa við leikskólana gera
sér líklega best grein fyrir því að
gæði eru afgerandi þáttur. Til að
halda uppi nauðsynlegum gæðum
þarf betri bjargir en nú eru til
staðar. Langvarandi ójafnvægi
um þær kröfur sem gerðar eru og
þær bjargir sem eru tiltækar er
líklegt til að valda vanheilsu og
streitu.
Nýskipað leikskólaráð í
Reykjavík hyggur nú á aðgerðir
til að bæta ímynd leikskólakenn-
arastarfsins, lokka fólk til starfa í
leikskólum og
draga jafnframt úr
starfsmannaveltu.
Vonandi tekst því
vel til þó ekki hafi
enn komið nægi-
lega fram hvaða
aðferðir á að nota
til þessa og
áhyggjuefni virð-
ist sú skipan ráðs-
ins að allir aðal-
menn eru konur.
Meðal varamanna
eru aðeins tveir
karlar. Skólamál
ættu og þurfa að
vera mál beggja
kynjanna, þó ekki
væri nema vegna
þess að löng hefð
er fyrir því að
konur fá oft skert-
an hlut þó vel sé
gert og áhugi fyrir
úrbótum fyrir
hendi.
Til marks um
mikinn áhuga leik-
skólastarfsfólks
við að halda uppi
góðu skólastarfi
sóttu um 300 leik-
skólakennarar og leikskólaleið-
beinendur ráðstefnu sem skóla-
þróunarsvið kennaradeildar
Háskólans á Akureyri stóð fyrir
laugardaginn 23. september. Af
þessum fjölda voru um 160 af
höfuðborgarsvæðinu og enn fleiri
komu einnig langt að. Flestir fóru
norður eftir vinnu á föstudaginn
og sátu svo ráðstefnuna í blíð-
skaparveðri á laugardaginn.
Þetta er aðeins eitt dæmi um það
hvernig leikskólastarfsfólk sækir
sér innblástur og hvatningu án
þess að hefðbundið skólastarf
truflist.
Við hlustuðum á fyrirlestra
um það hvernig stærðfræði birt-
ist meðal ungra barna og hvernig
starfsfólk getur og ætti að hvetja
til aukinnar stærðfræði í náms-
umhverfi leikskólanna. Einnig
voru fyrirlestrar um mikilvægi
góðrar umönnunar sem undir-
stöðu skólastarfsins og um leik
og uppgötvun sem mikilvægustu
námsleið barna.
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunn-
ar voru frá Stokkhólmi. Þær
höfðu skoðað leikskóla fyrir norð-
an og sögðust dást að arkitekt-
úrnum. Þær sögðu jafnframt að í
Stokkhólmi væri mikil fjölgun
leikskólaplássa en að ekki væri
byggt svo stórhuga eins og hér er
gert. Hins vegar gáfu þær okkur
aðrar mikilvægar upplýsingar
um hópastærðir og kennara-
fjölda: Þar kom fram að á deild 1-
3ja ára barna eru 14 börn og 3
kennarar í 2,7 stöðugildum. Á
deild eldri barnanna eru börnin
18 talsins, en sami starfsmanna-
fjöldi. Allir kennararnir hafa
formlega menntun til starfsins.
Tölur geta skipt býsna miklu
máli: Í íslenskum leikskólum eru
oft 20 börn á yngri deildunum.
Þar með eru starfsmenn að vísu
fleiri, en hætt er við að fjölmenn-
ari deildarsamfélög verði flókn-
ari og háværari, ekki síst ef stöð-
ugleika og menntun er ábótavant.
Á deildum eldri barnanna eru
börnin oftast 25–30. Hópastærð
skiptir máli og menntun skiptir
máli. Í grein í Morgunblaðinu
sunnudaginn 1. október ítrekar
Eva María Jónsdóttir einnig að
tímalengd foreldra með börnum
skipti máli og virðist þarft að það
sjónarmið komi fram aftur.
Að búa vel að börnum og þeim
kerfum sem þau vaxa upp í, fyrst
og fremst fjölskyldum og skólum,
er öllu samfélaginu mikilvægt til
framtíðar og það er brýnt að gera
fjölbreyttar ráðstafanir til bóta.
Höfundur er leikskólakennari.
Lífsstíll leikskólabarna
– til heilsu eða vanheilsu
FANNÝ HEIMISDÓTTIR
UMRÆÐAN
Eldri borgarar
25,2% kjósenda telja líklegt, að
þeir mundu styðja
framboð eldri borg-
ara, ef það kæmi
fram við alþingis-
kosningar samkvæmt
skoðanakönnun
Gallups. Þetta er gíf-
urlegt fylgi við hugs-
anlegt framboð eldri
borgara. Þessi niður-
staða bendir til þess,
að framboð eða flokk-
ur eldri borgara gæti
strax í byrjun orðið einn stærsti
flokkur landsins. Þetta er með
ólíkindum. Hvað segir þetta okkur:
Jú þetta segir okkur það, að það er
gífurleg óánægja meðal eldri
borgara með kjör og aðbúnað
þessa fólks. Þetta segir okkur það,
að eldri borgarar blása á þetta
svokallaða „samkomulag“ eða
yfirlýsingu ríkisstjórnar og Lands-
sambands eldri borgara. Þeir telja
það lítils virði. Eldri borgarar vilja
fá raunhæfar kjarabætur og
úrbætur í sínum málum strax.
Þess vegna eru þeir tilbúnir að
bjóða fram við alþingiskosningar,
ef þess þarf til þess að fá fram
þær kjarabætur, sem nauðsynleg-
ar eru.
Ríkisstjórnin hefur brugðist
Ég hefi áður skrifað um þetta mál,
kjör eldri borgara og hugsanlegt
framboð þeirra. Ég varpaði fram
þeirri hugmynd, að gefa ætti
stjórnmálaflokkunum eitt tæki-
færi enn. Ég veit, að vísu, að aldr-
aðir eru orðnir mjög þreyttir á
stjórnmálamönnunum. Þeir eru
orðnir þreyttir á ríkisstjórninni og
telja hana hafa brugðist í málefn-
um eldri borgara. Þeir treysta því
ekki, að hún muni
taka sig á og þeir
eru tortryggnir
gagnvart öðrum
stjórnmálaflokk-
um. Það er eðli-
legt. Sporin hræða.
Fróðlegt verður að
sjá hvernig stjórn-
málaflokkarnir
bregðast við þess-
um tíðindum um
gífurlegt fylgi við
hugsanlegt fram-
boð eldri borgara.
Munu stjórnmála-
flokkarnir taka sig
á og sýna öldruð-
um, að þeim sé
alvara með það að gera róttækar
breytingar á kjörum aldraðra. Ef
stjórnmálaflokkarnir geta sýnt
fram á það, er hugsanlegt að ekki
verði af framboði eldri borgara.
En það þarf mjög róttækar aðgerð-
ir til þess að afstýra slíku fram-
boði.
Lífeyrir aldraðra hækki í 160-170
þúsund
Hvað þarf að hækka lífeyri aldr-
aðra mikið svo sómasamlegt sé?
Ég hefi bent á, að meðaltals neyslu-
útgjöld einstaklinga samkvæmt
neyslukönnun Hagstofu Íslands
séu 167 þúsund krónur á mánuði
fyrir utan skatta. Með hliðsjón af
þeirri könnun er ljóst, að hækka
verður lífeyri einstaklinga frá
almannatryggingum upp í 160-170
þúsund krónur á mánuði svo við-
unandi sé. Það er algert lágmark.
Þessi upphæð er í samræmi við
kröfu sem Öryrkjabandalag
Íslands og Landssamband aldraða
(LEB) settu fram sameiginlega í
skýrslu um kjaramál. Mín skoðun
er sú, að það sé algert lágmark að
hækka lífeyri einstaklinga frá
almannatryggingum í 160 þúsund
á mánuði (er 123 þúsund í dag).
Verði það gert má hugsanlega
afstýra framboði eldri borgara.
Síðan þarf að hækka skattleysis-
mörkin verulega. Öryrkjabanda-
lagið og LEB gerðu kröfu til þess,
að þau færu í 130 þúsund á mán-
uði. Það er ekki nóg. Það þarf að
hækka þau meira. Önnur leið er
sú, að hafa lífeyri aldraðra frá
almannatryggingum skattfrjálsan
án þess að hækka skattleysis-
mörkin svo mikið almennt. Síðan
þarf að lækka skatt á lífeyri úr líf-
eyrissjóðum. Hann á ekki að vera
hærri en skattur á fjármagnstekj-
um eða 10%. Og sá skattur á að
haldast óbreyttur þó skattur á
fjármagnstekjum verði hækkað-
ur. Tekjur úr lífeyrissjóði eiga
ekki að skerða lífeyri frá almanna-
tryggingum. Draga verður úr
öðrum tekjutengingum. Allar
þessar breytingar verða að taka
gildi strax eða í síðasta lagi um
næstu áramót. Gera verður einnig
átak í því að fjölga hjúkrunarrým-
um fyrir aldraða strax. Þar dugir
ekkert margra ára „plan“. Það
verður sennilega að taka í notkun
eldra húsnæði í þessu skyni og
breyta því svo unnt sé að taka það
í notkun fljótlega.
Hvað gerir LEB?
Landssamband eldri borgara
(LEB), sem stóð að yfirlýsingunni
með ríkisstjórninni, sagði: Við
komum aftur í haust. LEB ætlar
að knýja á um frekari kjarabætur
nú í haust fyrir eldri borgara.
Fróðlegt verður að sjá viðbrögð
ríkisstjórnar við þeim kröfum.
Það veltur á viðbrögðum ríkis-
stjórnarinnar og viðbrögðum allra
stjórnmálaflokkanna hvort eldri
borgarar bjóða fram sjálfstætt
eða ekki. Það liggur alla vega ljóst
fyrir, að framboð eldri borgara
mundi fá mikið fylgi.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
25,2% styðja framboð eldri borgara
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
Foreldrar og fyrirtæki
lenda í vandræðum, en
það sem virðist mest um
vert er að börnin njóta
ekki þeirra uppeldisskil-
yrða sem ættu að vera til
staðar í ríku samfélagi.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
��������������������������������������� ������������� ������������
���������� ��������
Ef þú kaupir Miele þvottavél færðu kaupverðið
endurgreitt með betri meðferð á þvottinum þínum
���������������������� ��� ������������ ���
��������������� ������� ����� ��� ���������
����������� �����
������ ������������ ���� �������� �� ����������
��� �������� ����� ����������� ��� �������� ������
��������������������������������
������ ������������ ������� ������� ��� ������
������������
Íslenskt stjórnborð
AFSLÁTTUR
30%
ALLT AÐ
1. VERÐLAUN
í Þýskalandi
W2241WPS
����� ���������� �������
���������� ����� ������������ �����������
����������������
�������������� ������������ ����������
���������������
��������������� ������������ ����������
����������������
MIELE ÞVOTTAVÉL
- fjárfesting sem borgar sig
Hreinn sparnaður