Fréttablaðið - 10.10.2006, Síða 61
ÞRIÐJUDAGUR 10. október 2006 25
Tónlistarmennirnir Barði Jóhanns-
son og Garðar Thór Cortes verða
fyrstu listamennirnir til að njóta
góðs af nýjum fjárfestingasjóði sem
FL Group hefur stofnað. Sjóðurinn
hefur hlotið nafnið Tónvís og er
honum ætlað að vinna með íslensk-
um tónlistarmönnum í útlöndum og
fjárfesta í mögulegri velgengni
þeirra þar.
Stuðningur Tónvíss við verkefni
þeirra Garðars Thórs og Bang Gang,
með Barða Jóhannsson í broddi
fylkingar, mun meðal annars felast í
útgáfu- og kynningarstarfsemi.
Garðar, sem gaf út plötu hér heima
síðasta vetur undir stjórn Einars
Bárðarsonar, mun njóta stuðnings
sjóðsins í Bretlandi þangað sem
hann á fyrirhugaða tónleikaferð á
næstu misserum. Barði vinnur hins
vegar að útgáfu Bang Gang í Banda-
ríkjunum, ásamt útgáfufélagi sínu
og Sigurðar Pálma Sigurbjörnsson-
ar, From Nowhere Records.
Tónvís verður, að sögn Hannesar
Smárasonar, forstjóra FL Group,
ólíkur styrktarsjóðum eins og þeir
hafa þekkst hingað til hér á landi.
„Við munum hjálpa listamönnunum
að koma sinni list á framfæri utan
landsteinanna, taka áhættuna með
þeim og fá af því ávinning ef hann
verður til. Okkar styrkur til þeirra
felst ekki bara í fjárfestingunni
heldur ætlum við að koma með
ákveðna viðskiptahugmyndafræði
inn líka og fylgjast náið með fram-
gangi mála.“
Hannes segir stofnun sjóðsins
falla vel að markmiði FL Group um
að styðja við íslenska tónlist. „Við
höfum sett okkur það markmið að
styðja við menningu og höfum ein-
beitt okkur sérstaklega að tónlist-
inni. Við erum aðalstyrktarfélag
Sinfóníunnar, við erum að fara að
styrkja tónleikana hjá Sykurmolun-
um og nú erum við að stofna þennan
sjóð.“
Þeir Barði og Garðar eru fyrstu
listamennirnir til samstarfs við Tón-
vís en ekki þeir síðustu að sögn
Tryggva Jónssonar, framkvæmda-
stjóra sjóðsins. „Þetta er sjóður sem
hefur sjálfstætt líf og mun taka að
sér sambærileg verkefni fyrir fleiri.
Það er ekki búið að velja næstu þátt-
takendur en það verður gert á næstu
vikum og mánuðum.“
holmfridur@frettabladid.is
VIÐ KYNNINGUNA Á TÓNVÍS Tryggvi
Jónsson, framkvæmdastjóri Tónvíss,
tónlistarmennirnir Garðar Þór Cortes og
Barði Jóhannsson og Hannes Smárason,
forstjóri FL Group. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Sótt í breska sparibauka
Landsbankinn ætlar að auka við starfsemi
sína í Bretlandi á næstunni og mun
meðal annars gefa kúnnum sínum kost
á að stofna sérstakan sparireikning í
netbanka fyrirtækisins. En landnám
Landsbankans á Bretlandseyjum og
sparnaður almennings virðist fara
illa í suma því um helgina birtist
lítil klausa í breska dagblaðinu
The Guardian þar sem segir að
Landsbankinn ætli að feta í fótspor
netbankans ING Direct, og seilast í
sparifé landsmanna.
OMX stígur norskan dans
OMX-kauphallararmurinn, sem stefnir að því að eignaðist
Kauphöll Íslands og Verðbréfaskráningu Íslands, hefur
keypt tíu prósenta hlut í Oslo Børs Holding
ASA sem rekur Kauphöllina í Osló. Kaup-
verðið er um þrír milljarðar króna.
Forsvarsmenn OMX fara ekki dult með
áhuga sinn á að
komast yfir markað-
inn í Osló svo að allar
norrænu kauphallirnar
verði undir einum hatti. Sam-
bærilegur áhugi hefur hins vegar
ekki verið til staðar hjá stjórnend-
um og eigendum Kauphallarinnar í
Osló, sem vilja halda sjálfstæði sínu
og láta það samstarf sem þegar er til
staðar við OMX duga.
Stærsti eigandinn norsku Kaup-
hallarinnar, með fimmtungshlut, er
stórbankinn DnB Nor sem vill halda
í sjálfstæði markaðarins.
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.418 +0,63% Fjöldi viðskipta: 412
Velta: 4.955 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 69,00 -1,15% ... Alfesca 5,04 +0,00% ... Atlantic
Petroleum 574,00 +0,70% ... Atorka 6,54 -0,31% ... Avion 30,80 -0,65% ... Bakkavör 58,50
+0,00% ... Dagsbrún 5,08 -0,20% ... FL Group 22,80 +1,33% ... Glitnir 20,90 +0,97% ...
Kaupþing 887,00 +1,37% ... Landsbankinn 26,70 +1,14% ... Marel 80,00 +0,63% ... Mosaic
Fashions 17,10 -0,58% ... Straumur-Burðarás 17,00 -1,16% ... Össur 124,00 +0,00%
MESTA HÆKKUN
Hampiðjan +3,85%
Kaupþing +1,37%
FL Group +1,33%
MESTA LÆKKUN
Straumur-Burðarás -1,16%
Actavis -1,15%
Avion -0,65%
Umsjón: nánar á visir.is
Óformlegar viðræður hafa átt sér
stað milli Marels hf. og Stork Food
Systems um hugsanlegt nánara
samstarf, að því er fram kemur í
tilkynningu Marels til Kauphallar
Íslands í gær. Tilkynningin er
sögð send vegna fjölmiðla-
umfjöllunar í Hol-
landi og á
Íslandi um
hugsanlega
sameiningu
Marels og
Stork Food Syst-
ems.
Het Financieele Dagblad í Hol-
landi sagði, líkt og Fréttablaðið,
frá því í forsíðufrétt í gær að
Marel hefði hug á að taka yfir mat-
vælavinnsluvélahluta Stork N.V.
Staða Stork hefur vakið mikla
athygli ytra en félagið á sér tæp-
lega 180 ára sögu í Hollandi. Tveir
bandarískir fjárfestingasjóðir
sem fara með 32 prósenta hlut í
félaginu hafa farið fram á að seld-
ur verði hliðariðnaður frá kjarna-
starfsemi félagsins, en forstjóri
þess er á móti uppskiptingunni.
Hluthafafundur kýs um málið á
fimmtudag.
Þá hefur Mergermarket.com
eftir talsmanni Stork í gær að
félagið væri fyrst nú að heyra af
áhuga Marels á Food Systems-hlut-
anum og sagði félagið ekki eiga í
viðræðum við Marel um sölu á mat-
vælavinnsluvélahlutanum. Hann
sagði stefnu fyrirtækisins vera að
vaxa í þeim geira. „Við horfum til
allra fjárfestingarkosta í þeim
efnum, líka til Marels.“ - óká
HOLLENSKA VIÐSKIPTAFRÉTTABLAÐIÐ
Í forsíðufrétt greindi Het Financieele
Dagblad í Hollandi frá því í gær að
Marel vildi taka yfir Stork Food Systems.
Ræðast óformlega við
Áhugi Marels á Stork Food Systems vekur athygli.
RÉTT LAUN Á RÉTTUM TÍMA
MEÐ TOK LAUNUM
TOK laun spara okkur mikinn tíma
og fyrirhöfn við útreikning á launum.
Hvort sem um tíma- eða mánaðarkaup
er að ræða greiðum við rétt laun á réttum
tíma sem skilar sér í ánægðu starfsfólki
og metnaðarfullri þjónustu við gesti okkar.
Ágústa Magnúsdóttir, eigandi
Pottur ehf. - Argentína Steikhús
Ræddu við okkur um hvernig
TOK hentar þér í síma 545 1000.
HugurAx Grjóthálsi 5 www.hugurax.is
HugurAx Guðríðarstíg 2-4 hugurax@hugurax.is
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
3,4%
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006
FL Group eykur stuðning
sinn við íslenskt tónlistarlíf
Garðar Thór Cortes og Bang Gang verða fyrstu verkefni nýja fjárfestingarsjóðs-
ins Tónvíss, sem ætlað er að vinna með íslenskum tónlistarmönnum á erlendri
grundu. Stofnfé sjóðsins er 200 milljónir króna.
Peningaskápurinn