Fréttablaðið - 10.10.2006, Page 69
ÞRIÐJUDAGUR 10. október 2006 33
Fyrrverandi kryddstúlkan Geri
Halliwell hefur nú kært barn-
fóstru sína til lögreglu vegna þess
að söngkonuna
grunar að fóstr-
an hafi lagt
hendur á barn
hennar. Breska
götublaðið The
Sun segir Halli-
well hafa farið
beinustu leið til
lögreglu þegar
hún uppgötvaði
marbletti á dóttur sinni sem barn-
fóstran gat ekki útskýrt.
Dóttir Halliwell fæddist í maí á
þessu ári og heitir Bluebell.
Kærir barn-
fóstruna
GERI HALLIWELL
Fyrrverandi kryddstúlkan og fót-
boltafrúin Victoria Beckham
hefur gefið út þá yfirlýsingu að
hún muni aldrei
syngja aftur.
Einnig blæs frú
Beckham á allt
slúður sem
tengist því að
hún stefni í leik-
listarbransann.
„Ég mun aldrei
gera þetta aftur.
Ég er búin að
prófa bæði og
það var gaman. En ég elska allt
sem tengist tísku,“ segir Victoria
en árið 2005 byrjaði hún með sína
eigin gallabuxnalínu hjá banda-
ríska fatamerkinu Rock and Rebu-
blic sem hefur gengið vonun
frama og stefnir frú Beckham á
framtíð í fatahönnun.
Syngur
aldrei aftur
VICTORIA
BECKHAM
Forsprakki hljóm-
sveitarinnar Baby-
shambles, Pete
Doherty, frestaði
tónleikum sveitar-
innar í Liverpool á
föstudaginn. Nú
hefur komið í ljós
að líklega þurfi að
fresta hljómleika-
ferð sveitarinnar
um ókomna framtíð
því Doherty þykir
hafa byrjað of fljótt
að spila eftir að
hann kom úr með-
ferð.
Fréttirnar komu
daginn eftir að
bresk slúðurblöð
voru búin að fjalla
um meint rifrildi
Dohertys og unn-
ustu hans Kate
Moss um barneign-
ir og þykir þessi
frestun tónleikanna
ýta enn meira undir
þær sögusagnir.
Babyshambles á
fimm tónleika eftir
á hljómleikaferð
sinni en býst for-
stjóri útgáfufyrir-
tækis sveitarinnar,
EMI, ekki við því að
Doherty klári túr-
inn þar sem hann
þurfi á fríi að
halda.
Neyddur í frí
PETE DOHERTY Skipað í frí eftir
meðferðina og ekki er víst hvort
hann klári hljómleikaferð Baby-
shambles.
Yves Saint Laurent, stofnandi
samnefnds tískuhúss, hneig niður
úti á götu í París um helgina og
var hann keyrður beinustu leið
upp á spítala. Atvikið átti sér stað
fyrir utan YSL búðina nálægt aðal-
verslunargötu Parísarborgar,
Champs Elysées. Það hefur nú
komið fram að Saint Laurent fékk
vægt hjartaáfall en hann er búinn
að vera við slæma heilsu síðustu
ár vegna mikillar áfengis- og eitur-
lyfjanotkunar gegnum tíðina.
Laurent er sjötugur á þessu ári en
hann er þekktur fyrir að vera
mjög fjölmiðlafælinn og lætur því
oftast lítið á sér bera.
Hneig niður
FRUMKVÖÐULL Fatahönnuðurinn og
frumkvöðullinn Yves Saint Laurent fékk
hjartaáfall um helgina og setti það
svartan blett á tískuvikuna sem stendur
hátt um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Ástin blómstrar meðal leikara í
spennuþáttunum Lost sem aldrei
fyrr. Nú hefur verið tilkynnt að þau
Dominic Monaghan og Evangeline
Lilly hyggist ganga upp að altarinu
næsta sumar. Skötuhjúin, sem leika
fyrrum eiturlyfjaneneytandann
Charlie Pace og flóttamanninn Kate
Austin í þáttunum vinsælu, kynnt-
ust við upptökur á Lost og trúlof-
uðu sig fyrr á þessu ári. Nú stefna
þau að brúðkaupi næsta sumar.
„Þau ákváðu að það væri rétti
tíminn og eru ástfangnari en
nokkru sinni fyrr. Þetta verður
sumarbrúðkaup,“ sagði vinur
hjónaleysanna. Þetta er ekki eina
tilhlökkunarefnið hjá Dominic og
Evangeline því hann lýsti því
nýlega yfir hversu mikið hann
langaði til að verða pabbi. „Ég hef
verið spenntur fyrir því síðan ég
var sjálfur krakki. Ég elska að
vera í kringum dýr og börn vegna
þess að samskiptin við þau eru svo
hrein. Það snýst allt um augna-
blikið. Þess vegna elska ég börn.
Þau eru æðisleg,“ segir Dominic.
Brúðkaup næsta sumar
EVANGELINE OG DOMINIC Parið úr Lost-þáttunum ætlar að ganga í hjónaband
næsta sumar. Þau hafa aldrei verið eins ástfangin. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES