Fréttablaðið - 10.10.2006, Page 74
38 10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
FÓTBOLTI Á morgun mætir enska
landsliðið því króatíska í E-riðli
undankeppni EM 2008. Bæði lið
hafa misst einn leik í jafntefli en
um helgina gerði England marka-
laust jafntefli við Makedóníu.
Eftir HM í sumar tók nýr maður
við króatíska landsliðinu, Slaven
Bilic sem gerði garðinn frægan
með West Ham og Everton undir
lok síðasta áratugar. Þegar hann
lék með fyrrnefnda liðinu fylgd-
ist hann með ungum og efnileg-
um leikmönnum á borð við Frank
Lampard og Rio Ferdinand sem
eru nú lykilmenn í enska landslið-
inu.
„Það var mikið um fordóma
þegar Frank var að leika með
West Ham þar sem pabbi hans
var aðstoðarstjóri liðsins,“ sagði
Bilic en Lampard hefur mátt þola
mikið á undanförnum mánuðum
þar sem hann hefur ekki þótt
standa undir væntingum. „Undan-
farin ár hefur hann hins vegar
sannað sig sem einn besti miðju-
maður heims.“
Það var sérstaklega á HM í
Þýskalandi í sumar sem Lampard
náði ekki að sýna sitt rétta andlit.
„Öllum gekk illa í enska liðinu og
hann spilaði ekki eins og hann á
að sér. Það getur verið mjög erfitt
fyrir stærstu stjörnurnar því fólk
býst við því að hann skori viku
eftir viku. Hann lenti í smá krísu
en fyrr eða síðar, örugglega fyrr,
mun hann komast aftur á rétta
braut.“
Hann sagðist fljótt hafa gert
sér grein fyrir þegar hann lék
með West Ham hversu efnilegir
Lampard og Ferdinand voru.
„Fyrir sjö eða átta árum sagði ég
Rio og Harry Redknapp (þáver-
andi stjóra West Ham) að hann
gæti orðið einn af þremur bestu
miðvörðum í heimi. Ég varð oft
eftir á æfingum þar sem ég æfði
með Rio og sýndi honum einn eða
tvo hluti. Hvað mig varðar finnst
mér hann í dag vera einn af fimm
eða sex bestu varnarmönnum í
heimi.“
Þrátt fyrir allt þetta veit Bilic
að enska landsliðið býr yfir
ákveðnum veikleikum sem hann
ætlar að færa sér í nyt í leiknum
á morgun. „Ég mun ekki greina
frá þessum veikleikum í smá-
atriðum en við ætlum okkur sigur
í leiknum.“ - esá
SLAVEN BILIC Berst um boltann við
Ian Rush, leikmann Leeds, er hann lék
með West Ham árið 1997.
NORDIC PHOTOS/AFP
Slaven Bilic, landsliðsþjálfari Króata, þekkir vel til enskrar knattspyrnu:
Frank Lampard á eftir að koma til
FÓTBOLTI Lars Lagerbäck, þjálfari
Svía, er nokkuð bjartsýnn fyrir
leikinn gegn Íslandi á morgun
enda unnu Svíar góðan sigur á
Spánverjum á laugardaginn á
meðan Íslendingar fengu á bauk-
inn í Lettlandi. Það er þó skarð
fyrir skildi hjá Svíum að í liðið
vantar nokkra mikilvæga menn.
Lagerbäck telur leikinn ekki unn-
inn.
„Ég býst við erfiðum leik eins
og alltaf á móti Íslandi. Síðast
þegar við lékum hér á Íslandi
vorum við heppnir að ná að skora
þrjú mörk mjög snemma í leikn-
um og það gerði út um leikinn að
mínu mati. Allir aðrir leikir milli
þessara þjóða sem ég man eftir
hafa verið mjög miklir baráttu-
leikir, t.d. þegar við unnum Ísland
í Svíþjóð í fyrra, þannig að ég býst
við mjög erfiðum leik á morgun,“
sagði Lagerbäck en Svíþjóð vann
Ísland 3-1 fyrir ári síðan. Síðasti
leikur liðanna hér á Íslandi var
árið 2004 og endaði með 4-1 sigri
Svía.
Svíar léku frekar varnarsinnað
gegn Spánverjum á laugardaginn
en Lagerbäck býst við að sænska
liðið þurfi að stjórna leiknum
meira gegn Íslandi á morgun. „Ég
bæði vona það og býst við því að
við verðum meira með boltann. Á
laugardaginn vorum við ekki með
boltann nema um 40% af leiknum
en venjulega erum við meira með
boltann en það. Ég vona að við
munum stjórna leiknum og hafa
boltann meira en íslenska liðið,“
sagði Lagerbäck.
Fredrik Ljungberg meiddist í
leiknum gegn Spánverjum en
hvernig er staðan á öðrum leik-
mönnum? „Ljungberg verður pott-
þétt ekki með, hann fór til London
í gær þar sem hann mun fara í
myndatöku hjá Arsenal. Það er
hins vegar spurning með Tobias
Linderoth þar sem hann og kona
hans eiga von á barni á næstu
dögum. Dyrnar verða þó opnar
fyrir hann ef hann vill koma í hóp-
inn,“ sagði Lagerbäck en auk
þeirra er Anders Svensson í banni
á morgun. Í kjölfar leiksins gegn
Spánverjum hlýtur maður að
spyrja hvort liðið sakni eitthvað
Zlatans Ibrahimovic?
„Já, auðvitað. Ég væri til í að
hafa hann 100% einbeittan í hópn-
um en staðan er bara eins og hún
er. Leikmennirnir sýndu á laugar-
daginn að við getum leikið mjög
vel án hans og að því leyti sakna
ég hans ekki en ég myndi frekar
vilja hafa hann með okkur,“ sagði
Lagerbäck.
Það sem ef til vill einkennir lið
Svía er hve fáar svokallaðar
stjörnur eru í liðinu á meðan óhætt
er að segja að Eiður Smári sé lang-
stærsta stjarna íslenska liðsins.
Lítur Lagerbäck á það sem kost
fyrir sitt lið? „Nei, það held ég
ekki. Ég væri meira en til í að hafa
jafn góðan leikmann og Guðjohn-
sen í mínu liði og því vildi ég alveg
hafa stórar stjörnur á mínum
snærum,“ sagði Lagerbäck að
lokum. dagur@frettabladid.is
Væri til í að hafa Eið í mínu liði
Lars Lagerbäck vonast til að stjórna leiknum á morgun. Hann segir að Svíar sakni ekki Zlatans Ibrahimov-
ic á meðan liðið leikur eins og það gerði gegn Spánverjum. Svíar eru enn með fullt hús stiga í riðlinum.
LARS LAGERBÄCK
Býst við erfiðum leik á morgun en
Svíar hafa unnið Ísland stórt í tveim-
ur síðustu leikjum þjóðanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FÓTBOLTI Erik Edman hefur leikið
með Svíum á þremur stórmótum í
knattspyrnu og ljóst er að þar er
gríðarlega leikreyndur leikmaður á
ferð. Edman er vinstri bakvörður
og hefur átt fast sæti í liðinu undan-
farin ár. Hann leikur nú með Renn-
es í Frakklandi en áður hefur hann
leikið með liðum eins og Heeren-
veen í Hollandi og Tottenham á
Englandi. Edman segir að vanmat
komi ekki til greina hjá Svíum í
leiknum á morgun.
„Við búumst allir við mjög erf-
iðum leik. Íslendingar eru með
nokkra mjög góða leikmenn í
sínum röðum og eru mjög líkam-
lega sterkir,“ sagði Edman.
„Markmið okkar er alltaf að
stjórna leikjum og þar breytir
engu í því sambandi hvort við
erum að spila gegn lítilli eða
stórri knattspyrnuþjóð. Við reyn-
um alltaf að spila okkar leik en
gegn Spánverjum duttum við
aðeins aftar á völlinn. Spánverjar
eru með mjög gott lið og við þurft-
um aðeins að laga leik okkar að
þeirra sóknarleik til að vinna leik-
inn og það tókst.“
Edman sagði að margt væri
líkt með Íslandi og Svíþjóð. „Liðin
eru lík að því leyti að við erum
ekki með mjög stóran hóp og því
þurfum við á öllum okkar leik-
mönnum að halda. Þetta á ekki
bara við í fótbolta heldur einnig í
handbolta svo dæmi sé tekið. Zlat-
an Ibrahimovic er til að mynda
ekki með okkur núna en það kom
ekki að sök af því að Marcus All-
bäck og Johan Elmander náðu
mjög vel saman í leiknum gegn
Spánverjum. Til þess að vinna
leiki þurfum við að spila eins sem
lið en ekki sem ellefu einstakling-
ar. Þannig var það gegn Spánverj-
um, við náðum mjög vel saman.
Við þurfum að eiga mjög góðan
leik gegn Íslandi ef við eigum að
eiga möguleika á sigri,“ sagði
Erik Edman. - dsd
ÆFING SÆNSKA LANDSLIÐSINS Edman er hér lengst til hægri. Þessi reyndi leikmaður
telur að Svíar þurfi að eiga góðan dag til að ná fram sigri á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hinn leikreyndi bakvörður Svía Erik Edman segir að Svíar þurfi að vera varir um sig í leiknum á morgun:
Þurfum að eiga góðan leik til að sigra
FÓTBOLTI Rafael Benitez, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, er allt
annað en sáttur við hollenska
knattspyrnusambandið þessa
dagana. Dirk Kuyt, leikmaður
Liverpool, fór meiddur af velli í
leik Hollands gegn Búlgaríu á
laugardaginn en Hollendingar
þráast við að senda leikmanninn
til síns heima og ætla að sjá til
hvort hann verður klár í leikinn
gegn Albaníu á morgun. Benitez
segir að þetta sé enn eitt dæmið
um að landslið taki ekkert tillit til
félaganna sem borgi leikmönnun-
um laun og segir að Kuyt ætti að
vera sendur til Liverpool.
„Þeir segja að tvísýnt sé hvort
Kuyt geti leikið á miðvikudaginn.
Þá er hann ekki klár. Þeir ætla
hins vegar að sjá til hvort hann
geti spilað og ef hann spilar á
miðvikudaginn þá gæti hann
misst af nokkrum leikjum með
Liverpool vegna meiðslanna,“
sagði Benitez. - dsd
Dirk Kuyt er meiddur:
Benitez alls
ekki sáttur
DIRK KUYT Hefur leikið vel fyrir Liverpool
í síðustu leikjum.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Stjórnarmenn í franska
liðinu Marseille hafa viðurkennt
að viðræður standa á milli
Arsenal og Marseille um kaup á
landsliðsmanninum Franck
Ribery en neita að samkomulagi
hafi nú þegar verið náð.
„Arsene Wenger hefur rætt
við forseta Marseille um Ribery
en það er líka önnur lið búin að
tala við okkur um leikmanninn.
Okkar markmið er hins vegar að
ná Meistaradeildarsæti og til þess
að það náist þurfum við á öllum
okkar mönnum að halda. Af þeim
sökum þá sé ég það ekki gerast að
Ribery yfirgefi félagið á næst-
unni. Ef við náum ekki Meistara-
deildarsæti verður hins vegar
mjög erfitt að haldi í leikmann
eins og Ribery en ég tek það fram
að ekkert samkomulag hefur
verið gert við Arsenal né önnur
lið,“ sagði talsmaður Marseille í
gær. - dsd
Marseille:
Ribery orðaður
við Arsenal
FRANCK RIBERY Þótti leika vel á HM
í sumar og vakti athygli margra liða í
Evrópu. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI ÍS-stúlkur urðu í gær
Reykjavíkurmeistarar í körfu-
bolta kvenna í áttunda skiptið
þegar liðið lagði Ármann/Þrótt að
velli, 87-16.
Berglind Ingvarsdóttir var
atkvæðamest í liði ÍS með 20 stig,
Jófríður Halldórsdóttir skoraði 18
stig og tók 14 fráköst og Hafdís
Helgadóttir skoraði 17 stig. Hjá
Ármanni/Þrótti var Íris Andrés-
dóttir, fyrrum landsliðskona í
knattspyrnu, stigahæst með 6
stig. - dsd
Reykjavíkurmótið í körfubolta:
ÍS meistari í
áttunda skiptið