Fréttablaðið - 16.11.2006, Side 32
[Hlutabréf]
Hagnaður Icelandair Group, sem
stefnt verður á að skrá í Kauphöll
Íslands hinn 6. desember, nam
rúmum þremur milljörðum króna
fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi og
tæpum fjórum milljörðum króna
fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum
ársins.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri
félagsins, segir að þetta sé einn
besti árangur í sögu þess. Afkoma
stærstu einingarinnar, millilanda-
flugsins, hefur verið góð þrátt fyrir
tveggja milljarða hækkun á elds-
neytisverði á árinu.
Rekstrartekjur félagsins voru
43,6 milljarðar króna á fyrstu níu
mánuðunum og hækkuðu um 8,2
milljarða króna á milli ára eða sem
svarar 23 prósenta aukningu.
Rekstrarhagnaður eftir afskrift-
ir (EBIT) nam 3,8 milljörðum króna
og hækkaði um einn milljarð á milli
ára.
Eignir Icelandair Group stóðu í
67,9 milljörðum króna í lok sept-
ember og höfðu hækkað um 5,6 pró-
sent frá áramótum. Eigið fé var 23,4
milljarðar og hafði hækkað um
rúman fimmtung frá ársbyrjun.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar
nemur því 34,4 prósentum.
Icelandair var í eigu FL Group á
fyrstu níu mánuðum ársins en var
síðar selt til hóps fjárfesta og Glitn-
is fyrir alls 43 milljarða króna.
Glitnir mun selja bréf áfram, meðal
annars til almennra fjárfesta.
Icelandair skilaði
fjórum milljörðum
Stefnt að skráningu félagsins sjötta desember.
Árvakur, útgáfufélag Morgun-
blaðsins, hefur lokið við sölu á
nýju hlutafé fyrir hálfan milljarð
króna til að styrkja félagið.
Stefán P. Eggertsson, stjórnar-
formaður Árvakurs, segir að
rekstur félagsins það sem af er ári
sé betri en í fyrra þegar það tapaði
187 milljónum
króna. Samt
sem áður þurfi
að gera betur á
næsta ári.
Unnið hafi verið ötullega að því að
laga til í rekstri Árvakurs en
aðgerðir, sem ráðist er í, skili sér
ekki strax.
Allir þáverandi hluthafar
félagsins nýttu sér forkaupsrétt
að hlutafénu. Breytingar hafa
orðið á hluthafahópnum er Ólafs-
fell, félag Björgólfs Guðmunds-
sonar, stjórnarformanns Lands-
bankans, eignaðist átta prósenta
hlut af Leifi Sveinssyni.
Á hluthafafundi í síðustu viku
tók Steingrímur Pétursson, fyrr-
verandi fjármálastjóri Avion, sæti
í stjórn Árvakurs af Halldóri Þ.
Halldórssyni
og Ragnhildur
Geirsdóttir tók
við starfi vara-
formanns
stjórnar af Kristni Björnssyni.
Stefán verður eftir sem áður
stjórnarformaður félagsins.
Árvakur heldur utan um helm-
ing hlutafjár í Ár og degi, útgáfu-
félagi Blaðsins. Fyrir skemmstu
var hlutafé Blaðsins aukið og von-
ast Stefán að ekki þurfi meira til í
þeim efnum. Með aukinni dreif-
ingu hafi Blaðinu vaxið fiskur um
hrygg.
Rekstur Árvakurs fer batnandi
Peningaskápurinn ...
Hreinsar loftið í gegnum vatn og
gefur frá sér raka. Margar teg.
ilmefna. Einnig lyktareyðir sem
fjarlægir t.d. tóbakslykt og matarlykt
NÝTTNÝT
T
enginn filter
frí heimsending
Sjord Vollebrecht, for-
stjóri fyrirtækjasam-
stæðunnar Stork N.V. í
Hollandi, lýsti í viðtali
við Het Financieele
Dagblad í gær áhuga á
því að kaupa íslenska
matvælavinnsluvéla-
framleiðandann Marel.
Búist er við að formlegar
viðræður fari fljótlega í
gang.
Formlegar viðræður Marels og
hollensku fyrirtækjasamstæðunn-
ar Stork um samruna Marels og
Stork Food Service gætu hafist
innan tíðar. Félögin hafa hingað til
einungis átt í óformlegum viðræð-
um og vill hvor um sig eignast
hinn.
Innan Stork hefur verið deilt
þar sem stjórn samstæðunnar
hefur sett sig upp á móti samþykkt
hluthafafundar um að skipta félag-
inu upp og einbeita sér að kjarna-
starfsemi þess sem er í flugvéla-
iðnaði. Það myndi þýða að seldur
yrði frá samstæðunni matvæla-
vinnsluvélahlutinn.
Stork hefur áhuga á að efla
mjög vöxt sinn og gera það hratt
að því er hollenska viðskiptablað-
ið hafði í gær eftir Sjord Volle-
brecht, forstjóra Stork. Þessu
markmiði á að ná með stórum
kaupum, en ólíkt því sem hluthaf-
arnir Paulson og Centaurus,
bandarískir fjárfestingasjóðir,
sem saman fara með um 32 pró-
senta hlut í fyrirtækinu vilja, vill
Vollebrecht fara þessa leið í allri
starfsemi félagsins, ekki bara
kjarnastarfseminni, flugvélaiðn-
aði. „Þörfin fyrir vöxt er jafnsterk
í Food Systems og tækniþjónustu-
hlutanum,“ sagði hann við blaðið
og staðfesti áhuga félagsins á
Marel.
Í ljósi þess að forstjórinn hefur
með þessum hætti lýst áhuga á því
að kaupa Marel er líklegt að félög-
in taki fljótlega upp formlegar
viðræður. Óvíst er svo hvað út úr
þeim kemur, en samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins þykir heldur
líklegra að niðurstaðan verði sú að
Marel kaupi Stork Food Systems
þar sem Stork sé ekki tilbúið að
greiða jafnhátt verð fyrir Marel
og Marel er tilbúið að reiða af
hendi fyrir Stork. Félagið hefur
enda nýlokið hlutafjáraukningu
gagngert í þeim tilgangi að fara út
í frekari fyrirtækjakaup.
Á sama tíma og þessi umræða
fer fram greinir Financal Times
frá því að fjárfestingasjóðirnir
Paulson og Centaurus hugleiði að
lögsækja framkvæmdastjórn
Stork fyrir að fara ekki að vilja
meirihlutafundar hluthafa í októ-
berbyrjun um að skipta upp félag-
inu og selja frá því jaðarstarfsemi.
Heimildarmaður blaðsins sem
stendur stjórn Stork nærri segir
að þar innandyra telji menn sjóð-
ina ekki líklega til að fara með
sigur af hólmi í slíkum málaferl-
um og gætu jafnvel lent í að þurfa
að selja hlut sinn í samstæðunni.
Verði af samruna Marels og
Stork Food Systems, sem metinn
hefur verið á um 25 milljarða
króna, tvöfaldast Marel að stærð
og verður stærsta fyrirtæki heims
á sínu sviði. Núna er Marel meðal
fjögurra stærstu, en hvert um sig
er með um 8 prósenta markaðs-
hlutdeild.
Marel og Stork Food Systems
eru bæði með um tíu prósenta
rekstrarhagnaði (EBIT) af veltu
og velta hvort um sig um 300 millj-
ónum evra á ári, eða sem nemur
um 27 milljörðum íslenskra króna.
Þá starfa félögin á ólíkum sviðum
matvælavinnslugeirans og því
mikil samlegðaráhrif sem hægt
væri að ná fram með samruna
þeirra.