Fréttablaðið - 16.11.2006, Page 45
Mama mio eru nýjar vörur á mark-
aðnum en að baki merkinu standa
þrjár vinkonur sem samanlagt hafa
eignast sjö börn.
Allar vörurnar frá Mama Mio eru fram-
leiddar með því markmiði að vernda húð-
ina á meðgöngunni og reyna að koma í
veg fyrir slit. Að baki merkinu standa
þrjár breskar konur sem allar hafa starf-
að í snyrtivörugeiranum til fjölda ára, en
á þessum árum hafa þær viðað að sér víð-
tækri þekkingu um verndun húðarinnar.
Undirstaðan í vörunum frá Mama Mio
eru margs konar olíur, en vörurnar eru
unnar í umhverfi
sem er viðurkennt
af FDA (Food and
Drug Administrat-
ion). Olíurnar eru
m.a. gerðar úr
lofnarblómi, sítr-
ónu, appelsínu og
ylang ylang.
Vörurnar frá
Mama Mio eru
m.a. fáanleg-
ar í apótekum
og snyrti-
vöruverslun-
um.
Nýjung fyrir
verðandi mæður
Hin umdeilda Imelda Marcos,
fyrrverandi forsetafrú á Filipp-
seyjum, markaðssetur eigin
skartgripalínu.
Marcos byggir línuna á eigin
skartgripum, og verður hún í
ódýrari kantinum miðað við fyrir-
myndirnar,
enda ætlað
að höfða til
ungu kyn-
slóðarinnar.
Marcos
var vægast
sagt mjög
umdeild í
forsetatíð
eiginmanns
síns, ekki
síst fyrir
óhóflegt líf-
erni, sem
braust meðal
annars fram
í gríðarlegu
skósafni, en
þegar mest
lét taldi það
3.000 skópör.
Marcos, sem á yfir höfði sér
allt að þúsunda ára fangelsisvist í
heimalandi sínu fyrir almenna
spillingu, hefur að vonum gengið
illa að losna við þá neikvæðu
ímynd sem
fylgir henni
allt frá for-
setatíð eig-
inmannsins.
Með mark-
aðssetningu
skartgripa-
línunnar
vonast frúin
til að breyt-
ing verði
þar á.
-rve
Skart í stað
skófatnaðar
Snyrtivöruheimurinn er enginn
smáiðnaður og það er ekki að
ástæðulausu sem flest stóru
tískuhúsin blanda sér í þann slag.
Sum hver eru reyndar eingöngu
í heimi ilmvatna og rakakrema
líkt og Guerlain en önnur líta á
snyrtivörurnar sem aukabúgrein
enda getur metsöluilmvatn rakað
saman heilmiklum upphæðum.
En snyrtivöruiðnaðurinn er harð-
ur heimur og nauðsynlegt að
vera í sífelldri endurnýjun til að
halda markaðshlutdeild sinni eða
að auka hana eins og markmiðið
er nú oftast. Mikill vill meira.
Hjá stóru tískuhúsunum eins
og Yves Saint Laurent, Chanel og
Dior, sem eru gríðarlega sterk í
þessum geira, er snyrtivöru-
framleiðslan aðskilið fyrirtæki.
Þar eru stórar rannsóknarstofur
sem leita stöðugt nýjunga, prófa
vörurnar, ráða fólk í vinnu við að
nota þær og fylgjast með áhrif-
unum sem þær hafa. Á haustin
er af nógu að taka í nýjungum.
Í förðun eru tískulitir eins og
í annarri tísku. Í vetur er það til
dæmis Parísarstíllinn sem gildir
í varalit, hárautt eins og nýi rauði
Ópíumvaraliturinn frá YSL. Dior
hefur einnig sent frá sér rauðan
varalit sem Monica Belucci
kynnir og heitir einfaldlega
Rouge Dior. Tískan er undir
áhrifum sjöunda áratugarins og
litirnir í snyrtivörunum fylgja.
Því er mikið um fjólublátt, málm-
liti, gyllt og kopar. Pallíettur
diskóáranna lifa góðu lífi.
Chanel markaðssetti í sept-
ember alveg nýtt rakakrem sem
á að gera kraftaverk. Það heitir
Sublimage og kostar litlar 230
evrur krukkan (21.000 krónur)
sem er með því allra dýrasta sem
gerist í kremum. Þetta nýja krem
á að gera allt í einu, næra húðina,
minnka hrukkur og örva endur-
nýjun húðfruma. Ótrúlegt en
satt, þetta dýra krem selst mjög
vel og ég get svo sem tekið undir
að það sé ágætt þar sem ég var
svo heppinn að prófa það. Skal
hins vegar ekki segja neitt um
kraftaverkið, hef meiri trú á
íslensku lýsi sem ég hef flutt
með mér út í tíu ár.
Annað sem er nú orðið ómiss-
andi eru ýmiss konar hrukku-
krem sem vinna á djúpum hrukk-
um, til dæmis í kringum munn
(blómavasinn frægi) eða á enni.
Lancaster hefur til dæmis sent
frá sér eitt slíkt, Wrinkle Lab.
Hjá Chanel er það Micro Solu-
tions sem er á boðstólum og er
selt með eins konar míní-kíttis-
paða. Í orðsins fyllstu merkingu
á semsagt að sparsla í hrukkurn-
ar!
Snyrtivörusalarnir luma
sömuleiðis stundum á fegurðar-
leyndarmálum. Vissuð þið til
dæmis að sólbrúnkukremi á að
blanda saman við rakakrem áður
en það er borið á andlitið til þess
að liturinn verði jafn?
Leyndarmál eilífrar æsku er
þó ekki enn fundið þrátt fyrir
lausnir fjölda snyrtivörufram-
leiðenda. Líklega best að halda
áfram að drekka vatn, sofa vel
og taka lýsi.
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr