Fréttablaðið - 16.11.2006, Side 74

Fréttablaðið - 16.11.2006, Side 74
Andmæli við þágufallssýki heyrast vart meir, þó svo að sýkin hafi langt í frá „læknast“. Gísli Sigurðsson prófessor segir umburðar- lyndið meira í dag gagnvart málbreytingum. Við þurf- um frekar að vera vakandi yfir því að íslenskan verði notuð á öllum sviðum mann- lífsins, en víki ekki fyrir ensku sem opinbert mál. Umburðarlyndi í málpólitík hefur aukist. Það segir að minnsta kosti Gísli Sigurðsson, rannsóknarpró- fessor við Stofnun Árna Magnús- sonar. Í síðari hluta greinar hans, Íslensk málpólitík, sem birtist í nýjasta hefti Tímarits Máls og menningar, segir hann til dæmis; „Það er líka liðin tíð að norðlenska harðmælið og raddaði framburð- urinn séu ótvírætt talin fegurri í útvarpi en sunnlenska linmælið. Nú erum við öll jöfn …“ Gísli telur sig til þess hóps sem hefur lagt fyrir sig málrækt og málvöndun, en kannast ekki við að vera málfarsfasisti, spurður um hvað hafi eiginlega orðið um þá. „Mikið af þeirri pólitík sem rekin var, var nokkuð einstreng- ingsleg. Hún miðaði við að fólk hélt að það gæti sett ákveðnar reglur um hvað væri rétt og hvað væri rangt og haldið því síðan fram með miklum þunga. Oft var það þannig að það sem var úrskurðað rangt féll ágætlega að máltilfinningu fjölda fólks í landinu sem átti erfitt með að tengja sig við þessar pred- ikanir um hvað mætti segja og hvað ekki.“ Sem dæmi nefnir Gísli að fólk hafi sagt „komustum“. Svo var læknir fallbeygður „læknir“ um „læknir“ í stað „lækni“. Svona tali enn fjöldi eldra fólks. Máltilfinning Íslendinga um hvað sé rétt breytist sífellt. Tvennt er hægt að nefna sem dæmi. Annars vegar hin þráláta þágufallssýki sem íslenskukennarar og málrækt- arsinnar hafa barist gegn af mikilli hörku. Hins vegar er tiltölulega ný breyting sem birtist í nýrri þolm- ynd. Börnin segja „Það var hrint mér“ í stað „Mér var hrint“ og skilja ekki af hverju það er rangt. Gísli segir málbreytingar eðli- legar í hverju tungumáli. „Sumt er bara í munni barna og þau eiga eftir að læra það sem málsamfé- lagið telur almennt vera rétt. En sumt lifir lengur og verður að mál- tilfinningu fullorðinna. Um leið og stór hópur fullorðins fólks viður- kennir eitthvað í málinu, þá er mjög erfitt að fara að halda því fram að það sé rangt. Tungumál og reglur um tungumál eiga að vera lýsandi um það sem er í raun og veru lifandi tungutak fólksins sem kann málið.“ Hvað varðar þágufallssýkina segir Gísli að tilhneigingin til að nota þágufall hafi komið fram strax á 19. öld og sé nú orðin ríkj- andi. „Við verðum bara að horfast í augu við það, eins og staðan er núna, að hvort tveggja er rétt. „Mér langar til“ er alveg eins rétt og „mig langar til“. Þetta er rétt í munni mjög margra. Hann segir að enn sem komið sé, þá hreinsi yfir- lesarar einkenni þágufallssýkinn- ar úr opinberu máli. „En þetta kemur inn í barnaefni í sjónvarpi og enginn stoppar það þar. Þannig að ég held að það sé orðinn það mikill þungi í þessari breytingu að innan skamms verða yfirlesarar líka búnir að kyngja henni.“ Ef slíkar breytingar, sem málfars- sinnar virtust óttast mest fyrir um áratug, eru í dag eðlilegar, hver er þá mesta ógnin sem íslenskan stendur frammi fyrir? Ensku- grýlan, segir Gísli. „Við þurfum að halda uppi öfl- ugu stofnanakerfi sem grundvall- ast á því að íslenska sé þjóðtunga í þessu landi sem við búum í. Það kemur mikið inn af nýrri tækni og nýjum umræðuefnum sem fer fram á ensku.“ Gísli segir hættuna ekki vera að við hættum einn daginn að tala íslensku við börnin okkar, eða yfir kaffinu í spjalli um daginn og veg- inn. „Hættan er sú að við hættum að nota íslensku sem hið opinbera mál sem okkur hefur tekist að halda í til þessa.“ Íslenskan er mál menntunar, stjórnmála, lagasetn- ingar og dægurmenningar. Í dag, segir Gísli, snýst baráttan um að halda tungumálinu lifandi á öllum þessum sviðum, þannig að íslensk- an sé fullgilt tungumál í samfélagi heimsins, en ekki minnihlutatungu- mál. Stjórnmálamenn í pontu á Alþingi, mælandi á enska tungu, er kannski ekki líklegt í náinni framtíð. Né heldur hljómar það líklega að meg- inhluti kennslu í grunnskóla fari fram á ensku. En það þarf ekki að leita lengi til að finna dæmi þess að enskan sé að auka vægi sitt á þess- um tveimur sviðum. Mikill meirihluti lesefnis í háskólum er á ensku og boðið er upp á námskeið sem fram fara á ensku. Þá bendir Gísli á að um helmingur tölvunámskeiða fari fram á því sem kalla má ísl-ensku, því að enskan sé tungumál tölvunn- ar. Byrjendur læra að seifa og dílíta og hvernig hægt sé að vista skjöl á desktoppinu. Eftir fyrstu tímana taka nemendur svo við að koppí og peista. Þegar mikil færni er fyrir hendi er svo hægt að dóvnlóda fæla eftir að hafa bráv- sað á netinu. Í alþjóðasamstarfi er íslenskan ekki notuð og mjög kostnaðarsamt er að þýða öll skjöl og viðhalda íslensku sem opinberu máli. Gísli segir að ekkert langt sé í þá kröfu, þar sem allir skilji ensku hvort eð er, að tilskipanir vegna Evrópska efnahagssvæðisins séu bara á ensku. Með því sparist þýðingar- kostnaður, en á sama tíma er enska komin í lagamálið og þar með orðin hluti af opinberu máli. „Þar með er eitt vígið fallið. Eins í dægurmenningunni, þegar menn eru að framleiða kvikmyndir eða tónlist. Ef markaðurinn er ekki bara Ísland er ekkert óeðlilegt að sú hugmynd komi upp að gera þetta bara á ensku. Það er ekkert sem stoppar góða tónlist eða kvik- mynd í útlöndum, annað en tungu- málið. Þetta er mjög aðkallandi vandamál, viljum við stíga þetta skref, eða viljum við halda þessum hluta dægurmenningar á okkar tungumáli.“ Gísli bendir á að tungumálið sé notað til sköpunar, auk þess að koma hlutum til skila, eða til að móta hugsun og tjá hana á íslensku. Þá sé tungumálið valdatæki, tján- ingartæki og sterkur hluti sjálfs- myndar hvers einstaklings. „Það sem skiptir sköpum fyrir líf íslenskrar tungu er að við höldum áfram að nota hana á öllum sviðum lífsins og að við viljum kosta því sem til þarf til að það megi verða.“ Mér langar svo að lyfta mér á kreik Kennararnir Anna Guðrún Júlíusdóttir og Sigríður Ólafsdóttir eru höfundar Kötlu, kennsluvefjar sem inniheldur námsefni í íslensku fyrir börn innflytj- enda. Þær munu kynna vefinn í dagskrá í Reykjavík- urakademíunni sem hefst klukkan tvö í dag. Kynninguna á Kötlu ber upp í miðri umræðu um innflytjendur á Íslandi; tæpri viku eftir að ríkis- stjórnin samþykkti að veita 100 milljónum króna á næsta ári í að efla íslenskukennslu í landinu. Kennslu- vefurinn á að hjálpa börnum innflytjenda að læra íslensku. Draumur Önnu Guðrúnar og Sigríðar er að fá nægilega háan styrk frá ríkinu til að geta gert aðgang að Kötlu gjaldfrjálsan og opinn öllum, þannig gætu nemendur sem vilja læra íslensku notað kennsluvef- inn sér að kostnaðarlausu. Til þess þurfa þær mun hærri styrk en þær hafa fengið. Hingað til hafa þær fjármagnað vinnu sína við Kötlu með því að selja 34 skólum aðgang að honum gegn vægu gjaldi. Kennsluefnið á Kötlu hentar börnum í öllum ald- urshópum og er meðal annars ætlað að auðvelda börnum innflytjenda að sigrast á hjalla sem rann- sóknir frá mörgum löndum benda til að þeir eigi erf- itt með að komast yfir. „Rannsóknirnar sýna að orða- forði barna innflytjenda staðnar gjarnan við 8.000 orðin, sem samsvarar meðalorðaforða barna á mið- stigi grunnskólans. Þetta er ástæðan fyrir því að þessi börn hætta oft í skóla,“ segir Anna Guðrún. Sig- Katla er kennslutæki fyrir börn innflytjenda ríður bætir því við að börn lendi oft á þessum þröskuldi þegar þau eru níu eða tíu ára. Við verðum bara að horfast í augu við það, eins og staðan er núna, að hvort tveggja er rétt. „Mér langar til“ er alveg eins rétt og „mig langar til“.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.