Fréttablaðið - 22.11.2006, Qupperneq 92
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
EMPIRE
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í
GULLVILD OG PLATÍNUM GLITNIS, EF
GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
70 þúsund gestir
MEÐ ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI I
"BESTA BOND
MYNDIN Í ÁRARAÐIR"
- V.J.V. TOPP5.IS
M.M.J. kvikmyndir.com
"...LOKSINS FUNDINN
LEIKARI SEM FYLLIR SKARÐ
CONNERYS. HANN HEFUR
MÝKT OG HÖRKU,
DROTTNANDI ÚTGEISLUN
OG ER ÁMÓTA
KARLMANNLEGUR Á VELLI
OG SKOTINN."
S.V. MBL
" EIN BESTA MYNDIN FRÁ
UPPHAFI...BOND ER KOMINN
AFTUR Í FJÓRAR OG FEITAR
STJÖRNUR, ÞAÐ ER EKKI
HÆGT AÐ ÓSKA SÉR BETRI
AFÞREYINGAR Í
SPENNUMYNDAGEIRANUM."
MBL
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
CASINO ROYALE kl. 5.30, 8.30 og 11.20 B.I. 14 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6
MÝRIN kl. 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
BORAT kl. 6 og 8.30
FEARLESS kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 8
CASINO ROYALE kl. 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 11
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 4
OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 4, 6, 8 og 10
BORAT kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6
BORAT kl. 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 8 B.I. 12 ÁRA
besta mynd, besti leikari, besti
leikstjórinn, besti aukaleikarinn
og besta tónlistin (Mugison)
5 edduverðlaun
Ný og endurhljóðblönduð
plata Bítlanna, Love, kom
út fyrir stuttu, fjölmörg-
um aðdáendum þeirra til
mikillar ánægju. George
Martin, sem var upptöku-
stjóri sveitarinnar, og sonur
hans Giles þykja hafa unnið
stórvirki með útgáfunni.
Lögin á plötunni voru upphaflega
notuð í sýningunni vinsælu Cirque
du Soleil í Las Vegas. Hin endur-
hljóðblandaða plata með sömu
lögum hefur að geyma 78 mínútur
af tónlist og eru lögin alls yfir
þrjátíu, þar á meðal slagararnir
heimsþekktu Get Back, Eleanor
Rigby, I Am the Walrus, Something,
Help!, Blackbird, Strawberry
Fields Forever, Hey Jude og All
You Need is Love. Er sumum lög-
unum blandað saman á óhefðbund-
inn hátt í nokkurs konar Bítla-
syrpu auk þess sem tenging er á
milli allra laganna svo að platan
hljómi eins og samofin heild.
Eftir að George Martin hafði talað
við eftirlifandi meðlimi Bítlanna
og fjölskyldur þeirra Johns
Lennon og George Harrison fékk
hann leyfi til að vinna með tónlist-
ina við Cirque du Soleil á sinn hátt
með hjálp sonar síns. „Við hvött-
um George til að leika sér með
lögin eins mikið og hann vildi,“
sagði Paul McCartney og Ringo
bætti við: „Við eyddum miklum
tíma með honum í gamla daga og
treystum honum því fullkomlega
til að gera þetta.“
Sjálfur segir Martin að það hafi
vakið upp gamlar tilfinningar að
grafa upp þessar upptökur sem
höfðu legið í dvala í langan tíma.
„Ég hafði Giles með mér sem var
mjög mikilvægt. Það fyrsta sem
hann gerði var að færa alla tónlist-
ina yfir á harðan disk til að varð-
veita hana. Sumar þessara upp-
taka voru mjög viðkvæmar enda
orðnar fjörutíu ára gamlar,“ sagði
hann.
Bæði Sir Paul McCartney og Ringo
Starr hafa lýst yfir ánægju sinni
með plötuna og segja hana ennþá
betri en þeir áttu von á.
„Þessi plata sameinar
Bítlana á nýjan leik, vegna
þess að skyndilega eru
þarna John, George, ég og
Ringo,“ sagði McCartney.
„Það kom okkur öllum á óvart
hversu vel þetta gekk upp. Var
það að hluta til vegna þessu hversu
vel þeir stóðu sig [George og
Giles] og líka vegna þess hversu
vel okkur gekk í upphaflegu tök-
unum.“ Ringo var á sama máli:
„Það voru mjög litlar breytingar
gerðar af okkar hálfu vegna þess
að þeir stóður sig einfaldlega svo
vel,“ sagði hann um feðgana. „Plat-
an er mjög kraftmikil og ég heyrði
meira að segja ýmislegt sem ég
var búinn að gleyma að við hefð-
um tekið upp.“
Paul McCartney segir að Bítlarnir
hafi notið góðs af aukinni tækni,
sem var ekki til staðar þegar þeir
voru og hétu. „Með því að hreinsa
lögin upp heyrðist meira af því
sem var tekið upp, til dæmis heyr-
ist gítarhljómurinn betur núna án
allra aukahljóðanna. Ég hef líkt
þessari útgáfu við stórmenni á
borð við Churchill og og merka
rithöfunda á borð við Tolstoj. Upp-
runalegu skjölin þeirra eru geymd
á söfnum og
verða sífellt
verr farin
með árunum en Bítlalögin verða
bara flottari, nýrri og hreinni og
það er töfrum líkast.“
McCartney gerir sér grein fyrir
því að mörgum aðdáendum
Bítlanna finnst það hálfgerð helgi-
spjöll að eiga svona við gömlu
góðu lögin. Hvetur hann þessa
sömu aðdáendur til að spila þá
bara gömlu plöturnar og hætta að
setja út á þessa nýjung. „Mér
finnst þetta frábært og ég sé ekk-
ert athugavert við þetta. Með því
að gefa okkar leyfi fyrir þessu
verkefni er augljóst að við höfum
ekkert á móti því að hreinsa lögin
upp á þennan hátt. „Hreintrúar-
fólkið“ heldur sig bara við gamla
hljóminn en hinir sem vilja hlusta
á lögin í hreinni útgáfu gera það
bara,“ sagði hann.
Ringo er sammála Mccartney
og segir þessa plötu algjörlega
nýja reynslu. „Hið ótrúlega varð-
andi Bítlana er að þeir hljóma enn
nútímalegir enda eru margar
hljómsveitir sem reyna að hljóma
eins. Besta gjöfin sem við skildum
eftir okkur er þessi ótrúlega tón-
list, sem á svo vel við enn þann
dag í dag.“
Nú hefur nýtt stjörnupar fæðst í
Hollywood en sögusagnir ganga
nú fjöllum hærra um að hjarta-
knúsarinn Orlando Bloom og Kirst-
en Dunst séu par. Skötuhjúin sáust
láta vel hvort að öðru á lúxushótel-
inu Chateau Marmont í Los Angel-
es fyrir framan fjölmenni sem
þýðir að þau eru til í að gera sam-
bandið opinbert. Bloom og Dunst
kynntust fyrir ári við tökur á kvik-
myndinni Elizabethtown en þá fór
einnig orðrómur af stað um að þau
væru saman en þau neituðu því.
Bloom var þá með leikkonunni
Kate Bosworth og Dunst í sambúð
með Jake Gyllenhaal en sambönd-
unum lauk á fyrr á
þessu ári.
Samkvæmt blað-
inu Daily Mail er
Bloom yfir sig ást- fanginn af Dunst vegna þess hve
náttúrulega fögur hún er. „Honum
líkar að hún hefur ekki mat og
útlit á heilanum eins og Bosworth.
Sú gat ekki farið út úr húsi án þess
að vera búin að hafa sig til,“ segja
vinir Bloom við blaðið.
Nýtt stjörnupar
V
in
n
in
g
ar
ve
rð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
DÝRIN TAKA VÖLDIN!
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS JA OSF Á 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA
FARÐU ÁMYNDINASPILAÐULEIKINN!
11.
HVERVINNUR!