Fréttablaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 4
Seyðisfjarðar-
kaupstaður ætlar ekki að kæra
niðurstöðu úrskurðarnefndar um
upplýsingamál, vegna deilumáls
Hjörleifs Guttormssonar, Seyðis-
fjarðarkaupstaðar og Íslenskrar
orkuvirkjunar ehf., þrátt fyrir að
lögfræðingar sveitarfélagsins hafi
undrast niðurstöðu nefndarinnar.
Nefndin komst að þeirri niður-
stöðu að Hjörleifur ætti að fá
aðgang að samn-
ingi Seyðis-
fjarðarkaup-
staðar við
Íslenska orku-
virkjun ehf.
vegna orkuöfl-
unar í Fjarðará,
á grundvelli
almannahags-
muna.
Ólafur Sig-
urðsson segir
samninginn
skipta miklu máli fyrir Seyðis-
fjarðarkaupstað en sveitarfélagið
fær tæpar 900 milljónir að núvirði
á samningstímanum sem nær til
50 ára. „Samningurinn snýst um
landnot og not af ánni. Meðalarð-
greiðsla til sveitarfélagsins er
7,75 prósent af brúttóorkusölu frá
virkjuninni í Fjarðará. Þetta er
hagstæðasti samningur sem gerð-
ur hefur verið við landeiganda um
nýtingu á vatnsauðlind hér á landi.
Við ætlum ekki að kæra niður-
stöðu úrskurðarnefndarinnar en
lögfræðingar sem voru okkur
innan handar undruðust mjög nið-
urstöðuna og töldu hana ganga
lengra en aðra sambærilega
úrskurði. Við höfum þegar afhent
Hjörleifi samninginn og ætlum
ekki að aðhafast meira vegna
þessa máls.“
Hjörleifur sagðist í samtali við
Fréttablaðið í gær líta svo á að
ekki væri óeðlilegt, á grundvelli
niðurstöðu nefndarinnar, að látið
yrði á það reyna hvort leyndin yfir
sambærilegum samningum sem
álframleiðslufyrirtæki hafa gert
við fyrirtæki í opinberri eigu gæti
talist lögleg.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir
fyrirtækið ekki þurfa að veita
aðgang að samningum sem gerðir
hafa verið við erlenda álframleið-
endur. „Það er eðlismunur á því í
lögunum hvort um er að ræða
stjórnvald, til dæmis sveitarfélag,
eða fyrirtæki í eigu hins opinbera
í tilteknum málum. Í raun má
segja að Landsvirkjun sé einkaað-
ili í skilningi þeirra laga sem um
ræðir í okkar tilfelli og á þeim for-
sendum er okkur ekki skylt til
þess að veita aðgang að samning-
um sem leynd hvílir yfir vegna
mikilvægra samkeppnisupplýs-
inga sem eru í samningum fyrir-
tækisins.“
Nefndin byggði niðurstöðu sína
á því að viðskiptahagsmunir
nægðu ekki til þess að halda leynd
yfir samningum „sem eru tengdir
því að almenningur eigi kost á að
fá upplýsingar um ráðstöfun opin-
berra eigna“.
og 2 lítra Pepsi
10 bitar, stór franskar
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 6
0
7
8
8
Pierre Gemayel, iðnað-
arráðherra í Líbanon og áhrifa-
mikill leiðtogi kristinna manna þar
í landi, var myrtur í gær á götu úti
í einu af úthverfum Beirút.
Gemayel var akandi á bifreið
sinni í hverfinu Jdeidah, þar sem
kristnir kjósendur hans eru í
meirihluta, þegar annarri bifreið
var ekið á bíl hans, út úr henni
stigu vopnaðir menn og skutu
Gemayel í gegnum rúðuna af
stuttu færi.
Gemayel var andsnúinn því að
Sýrlendingar fengju aukin áhrif í
stjórn Líbanons. Alls hafa nú fimm
andstæðingar Sýrlendinga verið
myrtir í Líbanon á tveimur árum.
Óttast er að morðið á Gemayel
auki enn á óstöðugleikann í stjórn-
málum landsins, þar sem Hizbollah-
samtökin og aðrir flokkar sem
aðhyllast náin tengsl við Sýrland
krefjast þess að fá aukin völd í rík-
isstjórn Líbanons. Stjórnvöld í
Sýrlandi fordæmdu hins vegar
morðið í gær og segjast leggja
mikla áherslu á að stöðugleiki og
öryggi ríki í Líbanon. Andstæðing-
ar Sýrlendinga í Líbanon hafa hins
vegar ásakað sýrlensk stjórnvöld
fyrir að eiga hlut að máli í fyrri
morðtilræðum, meðal annars
morðinu á Rafik Hariri, fyrrver-
andi forsætisráðherra, sem var
myrtur í febrúar í fyrra.
Sættast á að opna
orkusamninginn
Seyðisfjarðarkaupstaður hefur þegar afhent Hjörleifi Guttormssyni samning
við Íslenska orkuvirkjun ehf. vegna virkjunar í Fjarðará. Samningurinn sagður
sá hagstæðasti sem landeigandi hefur gert vegna vatnsaflsvirkjunar hér á landi.
Hæstiréttur hefur
staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir konu sem átti stóran þátt í að
reyna að smygla tæpum tveimur
kílóum af kókaíni til landsins.
Fíkniefnin voru tekin í
Leifsstöð þegar burðardýr reyndi
að koma þeim inn í landið frá
Spáni. Konan sem situr inni vegna
málsins er talin hafa haft milli-
göngu um flutning fíkniefnanna
hingað til lands. Þá situr inni
karlmaður sem fór með konunni
til Spánar til að sækja kókaínið.
Konan, sem hefur játað sök, hefur
verið dæmd til að sitja í gæslu-
varðhaldi til 18. janúar.
Framlengt á
kókaínsmyglara
Ekkert lát hefur verið á
mannfalli í Írak undanfarna daga.
Fram að þessu hafa alls um 1.400
Írakar látið lífið í árásum það sem
af er nóvember, en mannfallið er
þar með orðið það mesta í einum
mánuði frá því AP-fréttastofan hóf
að halda mannfallstölum í Írak
skipulega til haga í apríl 2005.
Yfir 20 manns týndu lífi í
árásum uppreisnarmanna víðs
vegar um Írak í gær, þriðjudag.
Ennfremur fundust á götu í Bagdad
lík níu manna sem rænt hafði verið.
Á sunnudag lokkaði Íraki í Hillah
verkamenn að bíl sínum með
loforðum um störf og sprengdi svo
bílinn upp og sjálfan sig með. 22
menn fórust og 44 særðust.
Mannfall nær
nýjum hæðum
Á leiðtogafundi
Atlantshafsbandalagsins, sem
haldinn verður í Riga í Lettlandi í
næstu viku, ætlar George W.
Bush Bandaríkjaforseti að gera
það að tillögu sinni að fimm
ríkjum verði boðin sérstök
samstarfsaðild að bandalaginu.
Ríkin fimm eru Svíþjóð,
Finnland, Japan, Ástralía og
Suður-Kórea. Þessi lönd hafa ekki
sóst eftir aðild að NATO, en „við
viljum samstarf við þau til þess
að við getum haft öflugri
æfingar,“ segir Richard Burns,
einn af aðstoðarutanríkisráðherr-
um Bandaríkjanna.
Bush vill fimm
ríki í samstarf