Fréttablaðið - 22.11.2006, Qupperneq 8
RAKKAJÓLAHLAÐBORÐ
með Bárði á Hótel Örk
Sunnudaganna 26. nóvember, 3. desember og 10. desember
Skemmtidagskrá milli 15-17
Jólasveinninn
kemur í heimsókn með gjafir í poka og dansar
í kringum jólatréð með krökkunum.
Hæ!
Sjáumst hress á
Hótel Örk
Forsala miða:
Hótel Örk
sími 483 4700
Hótel Cabin
Borgartúni 32 Reykjavík
sími 511 6030
Leiðtogar Kína og
Indlands hafa ákveðið að efla mjög
samskipti ríkjanna og stefna að
því að viðskipti milli þeirra muni
tvöfaldast á næstu þremur árum.
Hu Jintao, forseti Kína, kom í
gær í opinbera heimsókn til Ind-
lands, en það er í fyrsta sinn í ára-
tug sem forseti Kína kemur þang-
að. Hu átti fund með Manmohan
Singh, forsætisráðherra Indlands,
í Nýju-Delhi, og sendu þeir frá sér
sameiginlega yfirlýsingu að fund-
inum loknum.
Fyrir tveimur áratugum voru
viðskipti milli Indlands og Kína
nánast engin.
Samskipti Kína og Indlands
hafa almennt verið afar stirð allar
götur frá því þjóðirnar háðu stríð
sín á milli árið 1962 út af landa-
mæradeilum, sem enn hafa ekki
verið leystar þótt samningavið-
ræður hafi staðið yfir með hléum í
aldarfjórðung.
Tortryggni hefur einnig ríkt
milli ríkjanna vegna þess að bæði
hafa þau áhuga á að vera ráðandi
afl í Asíu. Markmið fundarins í
gær var að draga úr þessari tor-
tryggni.
„Það er nóg pláss fyrir bæði
ríkin til að þróast saman með
gagnkvæmum stuðningi og sýna
jafnframt skilning á hagsmunum
og markmiðum hvors annars,“
sagði Singh að fundinum loknum.
Þrátt fyrir bjartsýnan tón tókst
samt sem áður ekki að finna lausn
á neinum af þeim stóru málum
sem enn eru umdeild milli Kína og
Indlands. Þar á meðal eru deilur
um legu landamæra, búsetu Dalai
Lama og 120 þúsund annarra
útlaga frá Tíbet á Indlandi, og
umfangsmikil vopnasala frá Kína
til Pakistans, sem hefur verið höf-
uðandstæðingur Indlands allt frá
því bæði ríkin hlutu sjálfstæði frá
Bretum fyrir meira en hálfri öld.
Engu að síður ætla Indland og
Pakistan að stórefla samskiptin,
bæði í alþjóðamálum og nærtæk-
ari málefnum ríkjanna tveggja.
Shiv Shanker Menon, utanríkis-
ráðherra Indlands, sagði að það
hefði orðið gríðarlega mikilvægt
ef lausn hefði fundist á landa-
mæradeilunni, „en það kemur ekki
í veg fyrir samskipti okkar.“
Ekkert var minnst á Tíbet á
leiðtogafundinum í gær og ind-
verska lögreglan hafði mikinn við-
búnað til þess að vernda Hu frá
því að þurfa að horfa upp á mót-
mælaaðgerðir Tíbeta og stuðn-
ingsmanna þeirra.
Meira en þúsund Tíbetar efndu
engu að síður til mótmælagöngu í
Nýju-Delhi fáeinum klukkustund-
um áður en Hu kom til borgarinn-
ar.
Ætla að stórefla öll
samskipti ríkjanna
Leiðtogar Kína og Indlands hittust í Nýju-Delhi í gær og hétu því að tvöfalda
viðskipti landanna á næstu þremur árum. Engin lausn fékkst þó á landamæra-
deilum þeirra og lögregla gætti þess vel að mótmæelndur frá Tíbet sæust ekki.
Hvaða Íslendingur er kominn
í úrslit í keppninni um sterkasta
mann heims?
Hverjir heilsa tvö þúsund
sinnum á dag?
Hvar var skíðasvæðið opnað
um helgina?
„Það þarf greinilega að
styrkja til muna hinn tíu ára gamla
varnargarð í Öxarfirði, til að koma
í veg fyrir að vatnið flæmist ekki
yfir gróið land og árfarvegur Jök-
ulsár á Fjöllum breytist varan-
lega,“ sagði Sigurður Brynjólfsson,
yfirlögregluþjónn á Húsavík í gær.
„Það hefur komið fyrir oft áður að
það stíflast þarna og flæðir annað-
hvort til austurs eða vesturs. Það
þarf því að fara í framkvæmdir til
að styrkja varnargarðinn.“
Gífurlega mikill krapi hefur
myndast í Jökulsá á Fjöllum og
hefur áin stíflast skammt frá
ósnum og brotið sér leið í gegnum
varnargarðinn í Öxarfirði og renn-
ur í gegn um hann til suðvesturs og
vestur í Skjálftavatn. Einnig hefur
hún rofið Vestursandsveg, en þar
eru engir bæir í byggð lengur og
því lítil hætta á ferðum. Þó gæti
verið varhugavert ef áin breytti
um farveg til lengri tíma og færi
þá að flæða víðar.
Lögreglan á Húsavík metur
breidd flóðsins rúman kílómetra
og lengd krapastíflunnar skiptir
nokkrum kílómetrum frá norðri til
suðurs. Erfitt er að meta dýpt
vatnsflaumsins en krapinn er nokk-
urra metra hár þar sem hann er
hæstur. Kunnugir í Kelduhverfi
segja þetta með stærri krapastífl-
um sem þeir hafa séð.
Varnargarðurinn í Öxarfirði brast
Stangaveiðifélag Reykja-
víkur hefur kynnt nýja söluskrá.
Hefur tveimur ám verið bætt við,
Hvítá Vestra og Varmá í Árborg.
Athygli vekur að gjaldskráin
hefur hækkað síðan í fyrra.
„Við erum búnir að vera með
óbreytti krónuverð í tvö ár,“ segir
Páll Þór Ármann, formaður SVFR.
„Í sumum tilfellum er því um að
ræða vísitöluhækkun. Í öðrum til-
fellum erum við búnir að fram-
lengja samningnum til að tryggja
ársvæðið, sem hækkar verðið um
15-20%.“
Söluskráin verður send félags-
mönnum og mun einnig liggja
frammi í veiðivöruverslunum.
Stjórn Stangaveiðifélags
Reykjavíkur samþykkti ályktun á
fundi sínum í mánuðinum þar sem
skorað var á fjárveitingarvaldið
og þingmenn á Alþingi Íslendinga
að beita sér fyrir því að fjárveit-
ingar til Veiðimálastofnunar verði
auknar verulega á komandi árum.
Stjórn SVFR tekur undir með for-
stjóra stofnunarinnar að það væri
stórslys ef loka þyrfti starfsstöðv-
um á landsbyggðinni.
Japanski forsætisráð-
herrann Shinzo Abe sór á
mánudag að Japan yrði áfram
kjarnorkuvopnalaust land og
sagði að hinar margströnduðu
sexveldaviðræður um kjarnorku-
áætlun Norður-Kóreumanna yrði
að skila áþreifanlegum árangri
sem fyrst.
Ummæli Abes féllu undir lok
leiðtogafundar efnahagssam-
vinnuráðs Asíu- og Kyrrahafs-
ríkja, APEC, í Hanoi í Víetnam.
Hann hvatti þar leiðtoga kjarn-
orkuvelda heims til að leggja sig
meira fram við kjarnorkuvopna-
afvopnun. Abe sagði það „ekki til
umræðu“ í japanska stjórnar-
flokknum LDP að kjarnorku-
vopnavæðing N-Kóreu kallaði á
að Japan kjarnorkuvopnavæddist
líka.
Enga kjarnorku-
vopnavæðingu
Valdimar L. Friðriks-
son, þingmaður utan flokka, sagði
sig í fyrradag
úr þeim
þingnefndum
sem hann sat í
fyrir hönd
Samfylkingar-
innar.
Valdimar
sat í félags-
málanefnd og
landbúnaðar-
nefnd en ætlar
að falast eftir
setu sem
áheyrnarfull-
trúi í félags-
málanefnd og samgöngunefnd.
Hann sagðist í samtali við
Fréttablaðið í gær leggja fram
formlegar óskir þar að lútandi
síðar í vikunni.
Valdimar hefur skrifstofu í
húsakynnum þingsins við
Austurstræti – þar sem skrifstof-
ur þingmanna Samfylkingarinnar
eru – en vissi ekki í gær hvort
hann þyrfti að flytja sig um set.
Segir sig úr
þingnefndum
Sýslumaðurinn á
Akranesi hefur gefið út ákæru á
hendur karlmanni á þrítugsaldri
fyrir líkamsárás. Karlmaðurinn
gekk í skrokk á tæplega tvítugum
manni fyrir utan skemmtistaðinn
Breiðina í Bárugötu á Akranesi
aðfaranótt sunnudagsins 27. ágúst
síðastliðins.
Árásarmaðurinn felldi fórnar-
lambið til jarðar og traðkaði á
vinsti fæti hans auk þess að taka
hann hálstaki. Fórnarlambið
tognaði, marðist og hlaut fleiður-
sár á vinstri ökkla við árásina,
auk þess að merjast á hægri
augabrún.
Traðkaði illa á
ungum manni