Fréttablaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 1
Ísland meðal undra veraldar
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ...
Skilaði fjórum | Hagnaður
Icelandair Group nam rúmum
þremur milljörðum króna fyrir
skatta á þriðja ársfjórðungi og
tæpum fjórum milljörðum króna
fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum
ársins.
Batnandi rekstur | Árvakur,
útgáfufélag Morgunblaðsins, lauk
við sölu á nýju hlutafé fyrir hálfan
milljarð króna. Rekstur félagsins
það sem af er ári er nú betri en í
fyrra þegar það tapaði 187 millj-
ónum króna.
Selja Daybreak | Stjórn
Dagsbrúnar hyggst selja meiri-
hluta hlutafjár í Daybreak
Acquisitions Ltd. Stjórnin gerir
ráð fyrir 1,5 milljarða varúðar-
færslu vegna eignarhlutar félags-
ins í Daybreak.
Dagsbrún öll | Dagsbrún hefur
verið skipt upp í tvö skráð rekstr-
arfélög, 365 á sviði fjölmiðla og
afþreyingar og Teymi á sviði upp-
lýsingatækni og fjarskipta. Jón
Ásgeir Jóhannesson er nýr stjórn-
arformaður 365.
Eigendur sameinast | Eigendur
Olíufélagsins hf. og Bílanausts hf.
hafa ákveðið að sameina rekstur
félaganna snemma á næsta ári.
Bæði félögin eru í fullri eigu BNT
hf. Um sjö hundruð manns vinna
hjá fyrirtækjunum.
Vilja Marel | Hollenska fyrir-
tækjasamstæðan Stork hefur lýst
yfir eindregnum áhuga á að eign-
ast Marel. Félögin hafa hingað til
einungis átt í óformlegum viðræð-
um og vill hvor um sig eignast
hinn.
Ticket styrkist | Sænska ferða-
skrifstofukeðjan Ticket, sem er að
fjórðungshluta í eigu Fons, hefur
samið um kaup á 75 prósentum
hlutafjár í MZ Travel, sænskri
ferðaskrifstofukeðju sem sérhæf-
ir sig í viðskiptaferðum.
SÍA
Effie-verðlaunin
í annað sinn
14
Dagsbrún og Avion
Ris og fall tveggja
viðskiptamódela
8
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
F R É T T I R V I K U N N A R
Samfélagsleg
stefna fyrirtækja
Ábyrgð eða
auglýsing?
10-11
L á n s h æ f i s m a t s f y r i r t æ k i n
Moody´s Investors Service, Fitch
Ratings og Standard & Poor´s gáfu
í gær nýrri skuldabréfaútgáfu
ríkissjóðs Íslands til fimm ára
upp á einn milljarð evra einkunn
í samræmi við fyrra hæfismat
fyrirtækjanna á erlendum skuld-
bindingum ríkissjóðs. Moody´s
gefur einkunnina Aaa, en Fitch
og Standard & Poor´s einkunnina
AA-. Skuldabréfaútgáfan er ein-
vörðungu til að styrkja gjaldeyris-
forða Seðlabanka Íslands og með
gjalddaga í desember 2011.
Í greinargerð Moodys eru
horfur fyrir hæfismatið sagðar
stöðugar. Þegar Fitch mat láns-
hæfi ríkissjóðs fyrr í mánuðinum
voru horfur fyrir matið sagðar
neikvæðar og stendur sú skoðun
enn. Sömuleiðis segir Standard &
Poor´s horfur neikvæðar.
Í mati Vincents J. Truglia
og Joan Feldbaum-Vidra, sér-
fræðinga Moody´s, er bent á að
skuldir ríkisins séu mjög litlar.
„Ríkisstjórnin telur mikilvægt að
styrkja lausafjárstöðu landsins til
að það sé betur í stakk búið til að
takast á við áföll, sér í lagi vegna
viðskiptahalla þjóðarinnar sem
hafi verið ört vaxandi og þá sér-
staklega með tilliti til skulda bank-
anna,“ segir Feldbaum-Vidra, en
bendir um leið á að bankarnir hafi
þegar að fullu fjármagnað skuld-
bindingar sem til falla á næsta ári
vegna fjármögnunar þeirra. Fitch
segir enn að virðist nokkuð í land í
að jafnvægi náist í hagkerfinu og
það þrátt fyrir að bankarnir hafi
nýverið tekið fjármögnun sína
fastari tökum, en þar sem skuld-
ir þeirra nemi 90 prósentum af
heildarskuldum þjóðarinnar hafi
það skipt verulegu máli. Bent er á
að hátt vaxtastig hafi enn ekki náð
að hægja að marki á einkaneyslu
og fjárfestingu. Þótt landið standi
á margan hátt vel, skuldsetning
hafi að miklu leyti farið í arðbæra
erlenda fjárfestingu og tekjur á
mann séu háar, þá segir í mati
Fitch að tíminn verði að leiða í
ljós hvernig spilast úr ójafnvægi í
hagkerfinu. - óká
Óbreytt mat á ríkisskuldabréf
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Uppi eru efasemdir um að forsendur þær sem
Ríkisendurskoðun gaf sér varðandi áhættustýringu
Íbúðalánasjóðs fái staðist. Í byrjun mánaðarins sagði
Ríkisendurskoðun áhættustýringuna vera viðunandi
og ólíklegt að reyni á ríkisábyrgðir vegna sjóðsins.
Samkvæmt heimildum Markaðarins urðu nokkrar
deilur í sérfræðinganefndinni sem Ríkisendurskoðun
fékk til að fjalla um áhættustýringu sjóðsins og
gengu þær svo langt að hluti nefndarmanna neitaði
að skrifa undir skýrslu þá sem skila átti til félags-
og fjármálaráðuneytis nema að í hana yrði settur
fyrirvari um að matið byggði á þeirri forsendu að
sjóðurinn gæti ávallt brugðist við uppgreiðslum lána
með því að endurlána eða fjárfesta á betri kjörum.
„Hér er um mjög afgerandi forsendu að ræða og
erfitt að meta líkurnar á að hún standist,“ segir í
álitinu sem skilað var til ráðherra. „Hafi sjóðurinn
ekki færi á að endurfjárfesta innborguðu fé vegna
uppgreiðslna útlána eða endurfjárfestir það með
marktækt minni vaxtaviðbót en verið hefur þá
eykst verulega hættan á að endar nái ekki saman á
einhverjum tímapunkti.“
Greiningardeild Kaupþings banka veltir sérstak-
lega fyrir sér þeim fyrirvörum sem koma fram
hjá Ríkisendurskoðun varðandi endurfjárfesting-
aráhættu sjóðsins. „Ef langtímaraunvextir lækka
talsvert frá núverandi gildi gætu forsendur breyst
töluvert varðandi endurfjármögnun sjóðsins,“ segir
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar
bankans. „Þegar sjóðurinn skipti úr húsbréfum í
íbúðabréf gaf hann út óafturkallanlega skuldabréfa-
flokka sem eru bundnir við 4,75 prósenta vexti. Af
þeim sökum gæti almenn lækkun raunvaxta hér leitt
til þess að uppgreiðslur myndu aukast á nýjan leik
og afskaplega erfitt verður að finna greiðsluflæði á
móti útistandandi bréfum í lægra vaxtaumhverfi.“
Ásgeir segir hins vegar ólíklegt að vaxtamunur
við útlönd verði áfram jafnmikill og verið hefur, fyr-
irséð sé lækkun stýrivaxta hér og svo sé náttúrlega
aldrei að vita hvað hér gerist síðar meir í gjaldeyr-
ismálum, svo sem hvað varði upptöku evrunnar. Þá
kunni breytingar á borð við niðurfellingu á stimpil-
gjaldi að gera húsnæðislán mun hreyfanlegri og ýta
undir uppgreiðslur hjá öllum fjármálastofnum, þar
með talið Íbúðalánasjóði.
Jóhann G. Jóhannsson, sviðsstjóri fjármálasviðs
Íbúðalánasjóðs, segir forsendur Ríkisendurskoðunar
standast, enda vegi uppgreiðsluþóknun á stærstum
hluta bréfa sjóðsins á móti mun á eigin útlánum
sjóðsins og ríkistryggðum vöxtum hverju sinni.
Hann bendir á að í álitinu hafi einnig verið aðrar
varfærnar forsendur svo sem um að Íbúðalánasjóður
myndi ekki stækka. „En í dag er hann að stækka,“
segir hann og bendir á að eins og staðan sé í dag
hagnist sjóðurinn á uppgreiðslum.
Jónann segir lítið eftir af óafturkræfum skulda-
bréfaflokkum á 4,75 prósenta vöxtum. „Þar erum
við búin að fá svo mikla uppgreiðslu, en þetta ligg-
ur í húsbréfunum. Líftími þeirra er mjög stuttur
þannig að þetta hefur ekki mikil áhrif,“ segir hann
og skýtur á að af heildarútlánum sjóðsins upp á 400
milljarða, séu um 100 milljarðar sem falli í þann
flokk.
Neituðu að undirrita
Sérfræðingar Ríkisendurskoðunar neituðu að skrifa undir
skýrslu um Íbúðalánasjóð nema að settur yrði fyrirvari.
Baugur hefur til skoðunar þátt-
töku í kaupum á spítalabygging-
um í Bretlandi. Byggingarnar
hýsa spítalakeðju sem er í eigu
fjárfestingarsjóðsins Apax og
fleiri fjárfesta.
Baugur fjárfesti á sínum tíma
í fasteignasjóði undir forystu
Nick Leslau sem sá meðal ann-
ars um kaup á fasteignum Big
Food Group. Ekki er um að ræða
kaup á Spítalakeðjunni sjálfri
heldur fasteignum hennar. Aðrir
fjárfestar í hugsanlegum fast-
eignakaupum eru Tom Hunter og
HBOS bankinn.
Baugur hefur leitt verkefni
með þessum fjárfestum í smá-
söluverslun og tekið þátt í öðrum
verkefnum sem leidd hafa verið
af þessum fjárfestum, meðal
annars í fasteignakaupum. - hh
Baugur
skoðar spítala-
fasteignir
Markaðsvirði 365 hf. hélt áfram
að lækka hratt á öðrum við-
skiptadegi í sögu félagsins eftir
að Dagsbrún var skipt upp í 365
og Teymi.
Rétt fyrir lokun markaða í
gær nam heildarlækkun á virði
félagsins um 2,5 milljörðum
króna frá því á föstudaginn. Þetta
var um sautján prósenta lækkun
á gengi félagsins á sama tíma.
Stóð hluturinn í 3,81 krónu
rétt fyrir lokun markaða.
Upplýsingatækni- og fjar-
skiptafélagið Teymi hafði hins
vegar lækkað töluvert minna
frá uppstokkun Dagsbrúnar, eða
um 400 milljónir króna, á sama
tíma. Markaðsvirði Teymis og
365 hafa því verið að nálgast
hvort annað en 365 var metið á 55
prósent af heildinni við skiptingu
Dagsbrúnar. Nú munar um 400
milljónum króna á félögunum,
samanborið við 2,5 milljarða mun
við skiptinguna á föstudaginn.
365 er útgáfufélag
Markaðarins. - eþa / sjá bls. 8
365 lækkar
áfram
ukin útgjöld íslenskra
fna á borð við íþrótta-,
menningarmál heyrist
samfélagslega ábyrgð
el sótta ráðstefnu sem
avík stóð fyrir í sam-
mannatengsl í síðustu
n enn glæðst. Af máli
fram komu þar mátti
breyttra viðhorfa um
a í samfélaginu. Þau
æli skyldu sína að vera
gnar og leggja góðum
m lið og bæta þannig
mfélag sem þau starfa í.
arnar vikur hafa margir
átt í þessari umræðu.
á ð l Bjö ólf
sé að festast í sessi að stjórnendur álíti
það samfélagslega jákvætt að vera með
skilgreinda starfsmannastefnu. Styrkir til
fél k f f di þ á
tæki setja
rkmið
a að
p-
m-
ttir
gmyndina um
ga ábyrgð
em,
öt-
n
ptir
r
r starfsemi í
yrgð eða auglýsing?
Benedikt Axelsson hefur starfað semleikhústæknimaður síðan 1991. Sam-hliða vinnunni lærir hann nú lýsingar-fræði í Iðnskólanum í Reykjavík.Lýsingarfræði er nýtt þrjátíu eininga fjar
nám í Iðnskólanum sem gefallt l
mjög gott nám að sögn Benedikts. „Ég er svo-
lítið búinn að vera á höttunum eftir svona
námi en það hefur hvergi verið í boði nema
erlendis og skemmtilegt framtak hjá Iðnskól-
anum að bjóða upp á þetta. Ég hef verið að
sækja eitt og eitt nám k iI i
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
Lýsir upp umhverfið Jólahúsið á Akureyri í
fullum skrúða
Norðurland
[ SÉRBLAÐ UM NORÐURLAND – MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006 ]
BREKKUSKÓLI LES OG LESVerkefnið Orðasafn heilansBLS. 4
AKUREYRI Í VETRARBÚNINGIMannlífsmyndir að norðanBLS. 6
STAÐURINN
Nýr grænmetisstaður BLS. 8
UNGIR KRULLAKrulluæðið á Akureyri BLS. 10
UNGUR PÍANÓLEIKARILenti í öðru sæti í EPTA BLS. 10
EFNISYFIRLIT
BENEDIKT JÓLAKARLJólahúsið opið alltaf nema á jólunum
SJÁ BLS. 4
FRÚIN Í HAMBORGSönglar jólalög innan um antíkmuni
SJÁ BLS. 8
Björgólfur Guðmunds-
son, formaður bankaráðs
Landsbankans, og Eggert
Magnússon, formaður KSÍ,
keyptu í gær hið fornfræga
enska knattspyrnufélag West
Ham og greiddu rúma 14
milljarða íslenskra króna fyrir
félagið. Eggert verður stjórnar-
formaður félagsins og Björgólf-
ur heiðursforseti. Eggert mun
láta af formennsku hjá KSÍ í
kjölfarið en þar hefur hann setið
síðan 1989.
„Það verður ekkert Abramov-
ich-snið á þessum rekstri. Við
ætlum að ná okkar markmiðum
hægt og rólega. Við viljum koma
klúbbnum í fremstu röð á
Englandi og fljótlega ætlum við
að koma liðinu í þá stöðu að það
berjist um sæti í Meistaradeild-
inni,“ sagði Eggert.
Ætla með liðið
í fremstu röð
Íslenskir jöklar
hafa verið útnefndir meðal sjö
nýrra undra veraldar af sérfræð-
ingadómstól þáttarins Good Morn-
ing America á bandarísku sjón-
varpsstöðinni ABC.
Íslensku jöklarnir urðu fyrir
valinu vegna samspils síns við eld-
fjöllin sem leynast undir íshell-
unni. Bent er á að jöklunum sé
ógnað vegna hlýnunar andrúms-
lofts jarðar.
Þau sex fyrirbæri sem komust í
flokk með íslensku jöklunum og
eldfjöllunum undir þeim voru
sjálft Internetið, Potala-höllin í
Tíbet, elsti hluti Jerúsalem, vernd-
að kóralrif við Hawaii, Maasai
Mara þjóðgarðurinn í Kenía og
pýramídar Majanna í Mexíkó.
Á vefsíðu ABC eru myndir frá
Íslandi og upplýsingar um sam-
göngur til landsins.
Jónína Bjartmarz umhverfis-
ráðherra var í Kenía þegar hún
heyrði um útnefninguna í beinni
útsendingu í síðustu viku. Á fundi
hjá Samtökum iðnaðarins í gær
sagði Jónína þetta varla hafa
komið henni á óvart.
„Þessi tíðindi voru einkar
ánægjuleg nú þegar undirbúning-
ur Vatnajökulsþjóðgarðs – þjóð-
garðs elds og íss – er langt kom-
inn. Það eru að mínu mati engar
ýkjur þegar ég segi að þar séu á
ferðinni metnaðarfyllstu áform í
náttúruvernd sem fram hafa
komið,“ sagði umhverfisráðherra.
Meðal sérfræðinga ABC voru
haffræðingur, verðlaunablaða-
maður, fornleifafræðingur og
ferðafrömuður.
Mælt er fyrir tilfærslu
verkefna fyrir samtals 3,4 millj-
arða króna í frumvarpi fjármála-
ráðherra um ráðstöfun hluta sölu-
andvirðis Landssímans. Lagt er til
að verkum fyrir 2,4 milljarða
verði frestað frá næsta ári til árs-
ins 2008 en um leið að verkum
fyrir milljarð króna sem áttu að
koma til framkvæmda á næsta ári
verði flýtt til þessa árs.
Þannig verður hundrað milljón-
um varið til Sundabrautar á næsta
ári í stað 1.500 milljóna áður en á
móti nema framlögin árið 2009
3.900 milljónum í stað 2.500 áður.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra segir þessar tilfærslur ein-
faldlega vera vegna þess að fjár-
veitingar til framkvæmda hefðu
verið minnkaðar í fjárlögum. „Það
er ekki hætt við neitt heldur fært
á milli ára í samræmi við fjárlögin
og raunveruleikann.“
Dagur B. Eggertsson borgar-
fulltrúi sagði tilfærslur á fjár-
munum til byggingu Sundabraut-
ar koma sér töluvert á óvart. Hann
lagði fram tillögu um ályktun á
borgarstjórnarfundi í gærkvöld
en því var hafnað af meirihlutan-
um. „Það vekur áhyggjur að það
sé verið að fresta fjármögnuninni
án þess að neinar viðhlítandi skýr-
ingar séu gefnar á því. Það vekur
upp spurningar um það hvort að
það sé kominn einhver hægagang-
ur í þetta eða hvort að menn séu að
undirbúa einhverja vendingu í
málinu. En við munum fylgja
þessu vel eftir og kalla eftir svör-
um í borgarráði á morgun.“
Gísli Marteinn Baldursson,
foramaður umhverfis- og sam-
göngunefndar borgarinnar, segir
að ekki sé um frestun á fram-
kvæmdum við Sundabraut að ræða
heldur einungis tilfærslu á pening-
um til verksins. „Við höfum einsett
okkur að taka ákvörðun um legu
Sundabrautar á þessu ári og sú
áætlun stendur. Á næsta ári fer
fram hönnunarvinna. Fjármagnið
sem sett hafði verið á 2007 er miklu
meira en það sem þarf í þá vinnu.
Það er því verið að endurraða þeim
fjármunum sem fara í málið sam-
kvæmt þeim áætlunum sem borgin
hefur sett sér.“
Framkvæmdum við
Sundabraut frestað
Ríkið leggur 100 milljónir króna í Sundabraut á næsta ári en ekki 1.500. Fjár-
málaráðherra segir að ekki sé verið að hætta við neitt heldur sé um tilfærslu að
ræða. Samfylkingin segir ákvörðunina koma á óvart og vill skýringar.
Við höfum einsett okkur
að taka ákvörðun um
legu Sundabrautar á þessu ári.
Sala á hlut Reykjavík-
urborgar í Landsvirkjun var
samþykkt á borgarstjórnarfundi í
gærkvöld með meirihlutaatkvæð-
um sjálfstæðismanna og fram-
sóknarmanna. Borgarfulltrúar
minnihlutans greiddu hins vegar
allir atkvæði gegn sölunni.
Minnihlutinn mótmælti sölunni
harðlega og sakaði borgarstjóra
um ófagleg vinnubrögð þar sem
hann hefði ekki kynnt sér
samningsmarkmið borgarinnar
áður en skrifað var undir. Þá lægi
ekki fyrir hvort lífeyrissjóðirnir
myndu fá það fjármagn sem þeim
var lofað enda væru þau skulda-
bréf sem borgin fær af sölunni á
breytilegum vöxtum.
Í byrjun mánaðarins samþykktu
Reykjavíkurborg og Akureyri að
selja hluti sína í Landsvirkjun
fyrir 30 milljarða króna. Borgin,
sem átti 45 prósent, fær 27
milljarða fyrir hlut sinn en
Akureyri þrjá milljarða fyrir sinn
fimm prósenta hlut.
Samþykkir sölu
Landsvirkjunar