Fréttablaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 48
{ norðurland } 4
„Við köllum þetta verkefni Orða-
safn heilans og því er ætlað að efla
lesskilning barna en grunnskóla-
börn lesa því miður minna nú en
áður,“ segir Ragnheiður Ólafsdóttir,
kennari í Brekkuskóla. „Guð-
mundur Engilbertsson, aðjúnkt
við Háskólann á Akureyri, stjórn-
ar þessu verkefni og við erum að
prófa þetta í þriðja og fjórða bekk
hér í skólanum. Við sóttumst eftir
því að fá að taka þátt í þessu verk-
efni því okkur þykir þetta áhuga-
vert starf. Það sem við gerum er
að við lesum texta og tökum orð
út og skoðum merkingu þeirra. Þá
höfum við tekið orðhluta og látum
börnin finna eins mörg orð og þau
geta út frá því. Þetta er tíu vikna
verkefni og við erum nú þegar búin
að vinna að þessu í þrjár vikur.
Árangurinn er strax farinn að sjást.
Börnin sýna þessu mikinn áhuga
og lestur hefur aukist mikið. Nú
leita nemendur eftir merkingu orða
og velta þeim fyrir sér.“
Ragnheiður segist vonast til að
þetta nám verði tekið inn í kennslu
í grunnskólum landsins.
„Þetta er hins vegar margra ára
ferli og það þarf mikla þjálfun til að
þetta verði kennurum tamt. Þetta
mun skila sér í auknum lesskilningi
nemenda og áhuginn eykst jafn-
hliða auknum skilningi á efninu.“
- öhö
Lestur eykst jafnhliða skilningi
Nemendur í yngri bekkjum Brekkuskóla á Akureyri hafa undanfarið tekið þátt í verk-
efni sem ætlað er að auka orðaforða þeirra. Ragnheiður Ólafsdóttir, kennari í Brekku-
skóla, segir árangurinn góðan.
„Þetta átti í upphafi bara að vera
lítið jólahús. Við byrjuðum að
undirbúa þetta fyrir ellefu árum
en húsið sjálft var opnað fyrir tíu
árum. Við opnuðum húsið að vori
til, en okkur fannst eðlilegra að
gera það að vori en hausti, því ef
það hefði opnað að hausti hefði fólk
haldið að við værum að þjófstarta
jólunum. Með því að opna að vori
hélt fólk bara að við værum biluð,“
segir Benedikt Grétarsson en hann
rekur Jólahúsið ásamt fjölskyldu
sinni.
„Það er mest aðsókn að húsinu
yfir sumartímann, bæði af innlendu
og erlendu ferðafólki. Strax fyrsta
sumarið fengum við miklu fleiri
gesti en okkur hefði getað órað
fyrir. Ýmsum finnst skrítið að heim-
sækja svona hús á sumrin en flestir
hafa húmor fyrir því. Aðsóknin var
svo góð að við ákváðum að stækka
húsið fyrir þremur árum og núna
er það á tveimur hæðum, en önnur
er niðurgrafin,“ segir Benedikt.
Það má segja að Jólahúsið sé
eins og félagsheimilið þar sem
Stuðmenn léku í myndinni Með
allt á hreinu. Þegar inn er komið
kemur stærðin manni mjög á óvart.
Jólaandinn er líka mikill í húsinu
og Benedikt býður gestum oft upp
á hangikjöt í bland við jólalögin
sem óma allt árið um kring.
„Við segjum stundum að þessi
hugmynd hafi komið þegar við
hjónin vorum þreytt seint að
kvöldi. Eyjafjörður hefur ekki haft
perlur eins og Mývatn, Gullfoss
og Goðafoss. Okkur þótti vanta
eitthvert aðdráttarafl fyrir svæðið
og það var það sem ýtti okkur af
stað í þessu. Okkur hjónin lang-
aði til að búa til eitthvað sérstakt
sem gæti laðað ferðamenn að. Við
erum mikil jólabörn sjálf en jólin á
okkar heimili hafa breyst töluvert
síðan við fórum af stað með húsið.
Við erum á fullu alla daga fyrir jól
en heimilishaldið situr á hakanum.
Við höfum hins vegar haft lokað á
aðfangadag og jóladag og erum þá
heima saman. Það er dálítið merki-
legt að Jólahúsið er opið alla daga
ársins nema á jólunum sjálfum.“
Fjöldi heimsókna hefur auk-
ist jafnt og þétt á þeim árum sem
húsið hefur starfað og eru þar
erlendir ferðamenn engin undan-
tekning. „Síðan farið var að fljúga
milli Akureyrar og Kaupmanna-
hafnar hefur verið nokkuð um
fólk sem leggur leið sína hingað
til lands sérstaklega að heimsækja
Jólahúsið. Það skiptir okkur því
miklu máli að farið verði í leng-
ingu flugbrautarinnar á Akureyrar-
flugvelli, því það er framkvæmd
sem mun nýtast um allt Norður-
land. Frá Akureyri er stutt í marg-
ar helstu perlur landsins og þar er
einnig margt að sjá,“ segir Bene-
dikt. - öhö
Jólalög árið um kring
Rétt innan við Akureyri er hús þar sem jólin eru haldin hátíðleg allt árið um kring.
Benedikt Grétarsson, sem rekur Jólahúsið ásamt fjölskyldu sinni, segir fleiri heimsækja
húsið yfir sumartímann en á veturna.