Fréttablaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 102
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Við í útvarpsþættinum Capone
sjáum um skipulagningu. Svo er
hópur manna í akademíunni. Sex
sem þar sitja. Já. Fagmenn. Huldu-
her og hefur alltaf verið. Þannig
er það best. Svo þeir verði ekki
fyrir áreiti,“ segir Andri Freyr
Viðarsson útvarpsmaður.
Gullkindin verður haldin annað
kvöld á Klassík Rokk í Ármúla og
verður mikið um dýrðir. Eða
þannig. Því þar eru veitt verðlaun
fyrir það sem að mati dómnefndar
hefur farið miður í kvikmynda- og
sjónvarpsgeiranum. Að sögn
Andra ber nokkuð á því að menn
reyni að garfast fyrir um hverjir
sitja í akademíunni. „Við vitum
um ónefndan kvikmyndaleikstjóra
sem er að njósna, frekar illur, og
spyr hvort Sigurjón Kjartansson
eigi þarna hlut að máli, sem er
ekki.“
Tilnefningar til Gullkind-
arinnar eru þegar fyrirliggj-
andi og segir Andri Freyr
menn almennt taka því vel.
Þó er það ekki án undan-
tekninga.
„Við höfum reyndar
ekki náð í Baltasar
Kormák og Bubba.
Alltaf þetta hallæris-
lega talhólf hjá
Bubba. En sú eina sem hefur gefið
skít í okkur og afboðað komu sína
alveg brjáluð er Sirrí.“
Til stóð að kynnar á hátíð-
inni yrðu þeir þrjúþúsund-
kallar, Stjáni
3000 og Þröstur 3000. En því miður
forfallaðist Þröstur.
„Við verðum að finna eitthvað
„sædkikk“ fyrir Stjána. En þetta
hefst klukkan átta og er ókeypis
inn. Engir boðsgestir eins og á
Eddunni. Þetta er fyrir sauðsvart-
an almúgann og ekkert „upper
class“ pakk. Það þarf enginn að
mæta í smóking á Gullkindina.“
Það var svo skömmu áður en
blaðið fór í prentun að samning-
ar tókust við alheimsfegurðar-
drottninguna, sjálfa Unni Birnu,
og mun hún verða Stjána til aðstoð-
ar við kynningar á Gullkindinni.
Stjáni 3000 og Unnur Birna á svið saman
59.900 kr.
Hvað er jólalegra en tónleikar með Pouges á
aðventunni í London? Þessi stórkostlega
hljómsveit hefur farið sigurför um heiminn
síðustu misserin. Gríptu tækifærið og sjáðu
Shane MacGowan og félaga þann 17. des.
Carling Academy rixton-höllinni. Innifalið er
flug fram og tilbaka með sköttum, gisting á 4*
hóteli í 2 nætur með morgunverði, rúta til og
frá flugvelli, íslensk fararstjórn og miði á
tónleika The Pogues. Fararstjóri er Óli Palli
enda er ferðin í samstarfi við Rokkland.
ROKKLANDSFERÐ:
THE POGUES
Verð á mann í tvíbýli:
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
16.–18. desember
61.900 kr.
Sannkölluð menningarveisla sem enginn óperu-
unnandi má missa af. Ein þekktasta ópera
Wagners, Loehengrin, í leikstjórn Peter
Konwitschny, sýnd í Nýju Óperunni. Innifalið er
flug fram og tilbaka með sköttum, gisting í 3
nætur á Hótel Imperial Copenhagen, 4* hóteli í
hjarta borgarinnar, akstur til og frá flugvelli og
miði á Lohengrin í Nýju Óperunni. Fararstjóri er
Magnús Gíslason. Ferðin er í samstarfi við
Borgarleikhúsið.
ÓPERUFERÐ
TIL KÖBEN
12.–15. janúar
Verð á mann í tvíbýli:
„Ég sleit á mér hásinina í nágranna-
slagnum milli Þjóðleikhússins og
Borgarleikhússins,“ segir leikar-
inn Halldór Gylfason sem varð
fyrir þessum alvarlegu meiðslum
undir lok leiks. Leikarinn tók hins
vegar skýrt fram að hann hefði
ekki verið tæklaður niður af ein-
hverjum erkióvini. „Ég var bara
að hlaupa með fótboltann á gervi-
grasinu en fann síðan fyrir ægi-
legum verk eins og einhver hefði
sparkað í mig. Ég leit við en sá
engan og féll bara niður,“ lýsir
Halldór sem lék að þessu sinni í
vörninni þótt hann alla jafna
standi á milli stang-
anna í knattspyrnu-
leikjum. Leikarinn
lá rúmfastur þegar
Fréttablaðið náði
tali af honum og
má sig hvergi
hreyfa næstu dag-
ana. Hann
verður því
frá leiksviði
Borgarleik-
hússins í það
minnsta
fram að ára-
mótum en
hann leikur
meðal ann-
ars í Ronju
Ræningja-
dóttur og
Amadeus.
Leikurinn
var harður og
æsispennandi
og skildu liðin
jöfn með fjór-
um mörkum
gegn fjórum en
þetta eru einungis í
annað sinn sem þessi
leikhús eigast við á
knattspyrnuvellinum.
„Við höfðum sigur í
fyrsta leiknum en urðum
að sætta okkur við jafn-
tefli að þessu sinni,“
segir Halldór en
ljóst má vera
að lið Borgar-
leikhússins
hefur orðið
fyrir töluverðri
blóðtöku með
meiðslum Hall-
dórs. Engar
smákanónur
öttu þarna kappi
því fyrir hönd
Borgarleikhússins
kepptu meðal ann-
ars Björn Ingi
Hilmarsson sem
stóð vaktina í
markinu, Bergur
Ingólfsson,
Hilmir Snær
Guðnason og
Gísli Örn Garðars-
son auk reynsluboltans Þórs Túl-
iníus. Stjarna liðsins var þó Þor-
valdur Davíð Kristjánsson sem
skoraði tvö mörk. Lið Þjóðleik-
hússins var skipað hverri stór-
stjörnunni á fætur annarri en
meðal þeirra voru nýbakaður
Edduverðlaunahafinn Atli Rafn
Sigurðarson, Rúnar
Freyr Gíslason, Bald-
ur Trausti Hreinsson,
Ólafur Darri Ólafs-
son, Hjálmar Hjálm-
arsson, Björn Hlyn-
ur Haraldsson og
Gunnar Helgason.
„Þeir Björn Hlyn-
ur og Gunni Helga
voru langbestir
enda góðir og gegnir
Þróttarar,“ segir Hall-
dór og hlær. „Aðrir
ættu bara að halda sig
við leiklistina,“ bætir
hann við.
...fær Magnús Scheving, sem í
gervi Íþróttaálfsins hefur haft
slík áhrif á börn um víðan völl
að grunnskólanemendur í
London nefndu nýtt íþróttahús
sitt í höfuðið á honum.
„Ég hef alltaf verið rosalega
mikið fyrir að elda,“ segir Yes-
mine Olsson sem hefur safnað að
sér uppskriftum í mörg ár og
gefur þær nú út í bókinni Fram-
andi og freistandi. „Ég elda rosa-
lega mikið indverskt, afrískt og
fleira framandi en er búin að
breyta réttunum og gera þá holl-
ari,“ bætir Yesmine við en tekur
fram að þetta sé samt alls engin
megrunarbók. „Bókin er fyrst og
fremst fyrir fólk sem finnst
gaman að elda en vill gera hollan
mat. Ég vann bókina með Rúnari
og Jóni Arnari í kokkarnir.is en
þeir prófuðu alla réttina og gerðu
þá klára fyrir myndatökurnar
svo allt gengi nú vel upp.“
Margar af uppskriftunum í
bókinni hefur Yesmine notað í
gegnum tíðina og sankað þeim að
sér frá vinum sínum og fleirum
úti um allan heim en vann með
uppskriftirnar og breytti þeim
eftir sínu höfði.
„Ég skrifaði bókina á með-
göngunni og ætlaði að vera búin
með hana áður en Ronja Isabel
fæddist 2. september en hún
kom mánuði fyrir tímann þannig
að ég varð að ljúka við bókina
eftir að hún fæddist. Hún svaf
svo mikið fyrst þannig að ég náði
alveg að skella þessu saman með
mjög góðri hjálp,“ segir Yesmine
og hlær. „Addi Fannar, kærast-
inn minn, var náttúrulega frá-
bær og hjálpaði mér rosalega
mikið enda vorum við með
nýfætt barn heima.“
Skrifaði bók á meðgöngunni