Fréttablaðið - 23.11.2006, Síða 1

Fréttablaðið - 23.11.2006, Síða 1
Smáauglýsi Fatahönnuðurinn Ásgrímur Már Frið-riksson tók nýlega við stöðu skemmt-anastjóra á Rex. Það má segja að Ásgrímur fatahönnuður, betur þekktur sem Ási, hafi fyrst komist almennilega í sviðsljósið fyrir búninga- hönnun Silvíu Nætur, sem hann sá um ásamt söngdívunni knáu Í kjölfÁsi tekið þá uð á mig á Indlandi. Ég teiknaði þau bara upp, gekk inn á saumastofu og svo voru þau tilbúin svona þremur dögum síðar. Það er náttúrlega æðislegt að eiga jakkaföt sem eru þau einu sinnar tegundar í heiminum og klæðskerasaumuð að auki,“ segir Ási og bætir því við að sægræna skyrtan komi sér- staklega vel út við jakkafötiÁsi í K Á einstök jakkaföt, sérsaumuð á Indlandi Opið til 21 í kvöld Jólabæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag Samgönguáætlun gerir ráð fyrir að á næstu árum verði ráðist í frágang Sundabraut- ar, tvöföldun þjóðvegarins á milli Akureyrar og Reykjavíkur í áföng- um og tvöföldun vegar á milli Reykjavíkur og Markarfljótsbrú- ar. Gert er ráð fyrir að byrjað verði á framkvæmdunum á næsta ári og að þeim verði lokið árið 2017. Þetta kom fram í máli Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra á fundi Samtaka verslunar og þjónustu og viðskiptaráðs á Grand hóteli í gær. Sturla segir að framlög til vega- mála verði aukin um 3,5 milljarða á næsta ári. Framlögin nemi nú 13,9 milljörðum króna en upphæð- in verði hækkuð í rúma 17,4 millj- arða. Samgönguráðherra segir stór- átak í vegamálum þegar hafið og nefnir jarðgangaframkvæmdir og lengri vegakafla með bundnu slit- lagi því til sönnunar. „Fólksbif- reiðum á Íslandi hefur fjölgað um rúm 27 prósent frá árinu 1999 sem þýðir aukinn umferðarþunga á vegum. Þegar umferðarþungi ákveðinna vegakafla er skoðaður kemur í ljós að árið 2005 er mesti þunginn á Vesturlandsvegi sunnan Þingvalla og hefur hann aukist um 61,3 prósent frá árinu 1999.“ Sturla segir framkvæmdirnar fjármagnaðar með auknum fram- lögum úr ríkissjóði en nefnir einn- ig einkaframkvæmd sem leið til fjármögnunar. Til standi að breyta lögum þannig að ekki þurfi sér- staka lagaheimild í hvert sinn sem ráðist er í gerð samgöngubóta í einkaframkvæmd. Sjóvá er í fararbroddi þeirra einkaaðila sem sýnt hafa vega- framkvæmdum áhuga og leggja þeir áherslu á tvöföldun Suður- landsvegar á næstu árum. Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, segir tvöföldun Suðurlandsvegar ábatasama aðgerð þar sem hún dragi úr slysatíðni á veginum. „Erlendis eru samgöngur í auknum mæli kostaðar af einkaað- ilum og okkar áætlanir gera ráð fyrir að ljúka tvöföldun Suður- landsvegar í árslok 2009.“ Þá nefnir Þór möguleika á að einkaaðilar komi að uppbyggingu Sundabrautar, Suðurlandsvegar, Vesturlandsvegar og styttingu leiðar á milli Akureyrar og Reykja- víkur um 40-60 km. „Tillögur Sjóvár gera ráð fyrir að fjármagna framkvæmdirnar með vegagjöldum eða skugga- gjöldum þar sem ríkið greiðir fyrir hvern bíl sem keyrir um veg- inn,“ segir Þór. Vill tvöfalda norðurleiðina Á samgönguáætlun til ársins 2017 er gert ráð fyrir tvöföldun vegar á milli Akureyrar og Reykjavíkur og á milli Reykjavíkur og Markarfljótsbrúar. Stöðugt verður algengara að bláar perur séu sett- ar í ljós á almenningssalernum til varnar gegn eiturlyfjafíklum. Þannig hafa bláar perur verið sett- ar í ljósastæði á almenningssal- ernum á Slysavarðsstofunni og í Sundhöll Reykjavíkur. Fíklarnir sjá ekki æðarnar í bláu ljósi. Ófeigur Þorgeirsson, yfirlækn- ir á Slysavarðsstofunni, segir að fíklarnir eigi erfiðara með að sjá til þegar þeir sprauta sig í bláu ljósi en vörnin sé ekki hundrað prósent. „Fólkið er orðið það flinkt að það kemst hjá þessu en bláa ljósið hjálpar og eitthvað hefur þetta minnkað,“ segir hann. „Við tókum þetta upp á salern- inu frammi við biðstofuna okkar fyrir ári. Fólk var að sprauta sig þar og við fundum nálar þar þannig að við settum upp bláu ljósin. Það er vel þekkt aðferð því að æðarnar sjást verr í bláu ljósi,“ segir hann. Katrín Irvin, rekstrarstjóri Sundhallar Reykjavíkur, segir að það hafi verið óhuggulegt fyrir starfsmenn Sundhallarinnar að þurfa að tína upp nálarnar eftir sprautufíklana á almenningssal- erninu frammi í anddyrinu og því hafi blátt ljós verið sett upp. „Mér skilst að þetta sé notað víða,“ segir hún. Bláa ljósið fælir burt fíklana Gefur út myndabók með kærastanum Þegar umferðarþungi ákveðinna vegakafla er skoðaður kemur í ljós að árið 2005 er mesti þunginn á Vest- urlandsvegi sunnan Þingvalla og hefur hann aukist um 61,3 prósent frá árinu 1999.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.