Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 28
hagur heimilanna
Biðraðirnar hjá hjólbarða-
verkstæðunum á höfuðborg-
arsvæðinu gefa til kynna að
fólk hafi ekki alveg búist við
þessu fannfergi, og jafnvel
áætlað að veturinn yrði jafn
snjóléttur og þeir síðustu.
Gefum okkur það að vetur-
inn verði harður og snjó-
koman um helgina sé dæmi
um það sem koma skal.
Hvað mun þá vetrarharkan
kosta meðalmanninn?
Samkvæmt lauslegri könnun kost-
ar 168.044 krónur að koma sér í
vetrargírinn. Langdýrasti hlutinn
eru vetrardekkin undir bílinn. Ef
kaupa þarf nýjan umgang má
búast við að spandera um 50-80
þúsund krónum á hvern fólksbíl,
en meira fyrir jeppa eða pallbíla.
Föt eru vitanlega misdýr en
samkvæmt könnun okkar kostar
góður vetrarpakki – peysa, húfa,
trefill, úlpa, skór, nærföt, sokkar
og vettlingar – um 77.000 krónur.
Endurskinsmerki eru nauðsyn-
leg í myrkrinu. Þau má fá ókeypis
hjá tryggingafélögum eða bönk-
um, en svo má kaupa þau líka á
bensínstöðvum. Þar er líka hægt
að kaupa mikilvæga hluti í bílinn,
lásasprey, sköfu, snjóskóflu og
frostlög.
Alls konar pestir sækja á fólk í
kuldanum og því er gott í forvarn-
arskyni að eiga C-vítamín og lýsi. Í
kulda og óveðri er notalegt að vera
heima og óveðrið þjappar oftar en
ekki fjölskyldum og pörum saman.
Fólk hefur það auðvitað náðugt
á eins ólíka vegu og það er margt,
en ágætur huggulegheitapakki
sem samanstendur af kakódufts-
dós, hálfpotti af Stroh (í kakóið),
sprittkertapoka og nuddolíu kost-
ar 5.948 krónur.
Svo má auðvitað ekki gleyma
smáfuglunum. Það er lítil fórn að
gleðja þessa litlu vini því 800
gramma fræpoki kostar ekki nema
129 krónur.
Samanlagt gerir þetta svo
168.044 krónur.
Undirbúningur fyrir
veturinn á 170 þúsund
Arnbjörg Sveinsdóttir alþingis-
kona segist hafa tekið í arf að vera
sérvitur hvað varðar þvott.
Hljóðkerfi sem fór ekki í gang