Fréttablaðið - 23.11.2006, Page 44
Jasmin Milos beitir sérstakri
tækni við kertagerð sem hún
lærði í Afríku.
„Ég fæ útrás fyrir sköpunarþörf-
ina,“ segir Jasmin um kertagerð-
ina, en hún flutti með fjölskyldu
sinni fyrir einu og hálfu ári til
Íslands þar sem eiginmaður henn-
ar, Nenad Milos, tók að sér
þjálfarastöðu hjá Sundfélagi
Hafnarfjarðar.
Áður en Milos-hjónin fluttu til
Íslands bjuggu þau í átta ár í
Afríku, þar sem Nenad var sund-
þjálfari. Þar lærði Jasmin kerta-
gerð af innfæddum.
„Kertagerðin var mér alveg ný
reynsla, þótt ég sé að eðlisfari list-
ræn manneskja,“ útskýrir Jasmin,
sem er verkfræðingur að mennt.
„Á meðan ég bjó í föðurlandi mínu
Serbíu var ég til dæmis vön að
útbúa myndaramma og hafði síðan
umsjón með uppsetningu á nokkr-
um listsýningum þar og í Afríku.“
Jasmin vill ekki láta alltof
mikið uppi varðandi tæknina sem
hún lærði í Afríku, en segir tölu-
verða vinnu fara í kertagerðina.
„Ég tíni íslensk blóm til að blanda
saman við vax og beiti síðan
afrísku tækninni við kertagerð-
ina,“ útskýrir hún.
Afrakstur vinnunnar er falleg
og sérstæð kerti, sem eru vís með
að vekja athygli á jólamarkaði
Hafnarfjarðar þar sem þau verða
höfð til sölu. „Þetta verður í fyrsta
skipti sem Íslendingum gefst kost-
ur á að kaupa kerti eftir mig,“
segir Jasmin. „Draumurinn er að
opna síðan verslun þar sem hægt
verður að nálgast kertin allt árið
um kring.“
Afrísk kerti með
íslenskum blómum